Íbúar Barcelona sögðust ekki óttast hryðjuverk „Ég er ekki hræddur,“ var slagorð göngu gegn hryðjuverkum í Barcelona í gær sem hálf milljón manna tók þátt í. 27.8.2017 09:44
Trump gagnrýndur fyrir náðun umdeilds fógeta Háttsettir repúblikanar eru á meðal þeirra sem fordæma náðun Trump á umdeildum fógeta frá Arizona. Sá hefur lengi verið sakaður um ómannúðlega meðferð á föngum, ofsóknir gegn innflytjendum og önnur embættisbrot í gegnum tíðina. 27.8.2017 08:39
Syrgjendur mótmæla blóðugri herferð Duterte Sautján ára drengur virðist hafa verið tekinn af lífi af lögreglumönnum á Filippseyjum. Hann er einn þúsunda manna sem liggja í valnum í blóðugu fíkniefnastríði Duterte forseta. 27.8.2017 08:11
Maður stöðvaður með sverð á Rauðarárstíg Eftir að sverðið var tekið af honum birtist maðurinn í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu og var með ónæði, að sögn lögreglu. 27.8.2017 07:43
Viðvörun um banvæn skyndiflóð gefin út í Texas Hitabeltisstormurinn Harvey er öflugasti stormurinn sem hefur gengið yfir Texas í hálfa öld. 27.8.2017 07:21
Lífshættuleg flóð gætu fylgt fellibylnum Harvey Varað er við sjávar- og skyndiflóðum í Texas þar sem stærsti fellibylurinn í Bandaríkjunum í tólf ár á að ganga á land í kvöld. 25.8.2017 10:31
Vaxandi hitabeltislægð stefnir á strendur Texas Lægðin gæti breyst í fyrsta stóra fellibylinn sem gengur á land í Bandaríkjunum í tólf ár. 24.8.2017 16:20
Besta myndin sem hefur náðst af fjarlægri stjörnu Stjörnufræðingar hafa náð nákvæmustu mynd af yfirborði og lofthjúpi annarrar stjörnu en sólarinnar okkar sem tekin hefur verið til þessa. 24.8.2017 15:23
Trump heldur áfram að bauna á leiðtoga eigin flokks Bandaríkjaforseti spáir því að viðræður um hækkun skuldaþaksins verði klúður og kennir leiðtogum repúblikana um. 24.8.2017 14:21
Fórna náttúruverndarsvæði í Amason fyrir gullvinnslu Þingmaður kallar áform brasilískra stjórnvalda um að opna svæði á stærð við Danmörku fyrir námuvinnslu stærstu árásina á Amasonfrumskóginn í hálfa öld. 24.8.2017 12:12
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent