Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram. 2.10.2026 14:23
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum. 2.10.2026 14:20
Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Stjórn Landsvirkjunar nýtur áfram trausts fjármálaráðherra þrátt fyrir ágreining hennar við Hörð Arnarson, fráfarandi forstjóra. Ráðherrann segir þær skýringar sem hann hafi fengið á ágreiningnum vera almenns eðlis en telur fulla ástæðu til að yfirfara málið. 2.10.2026 14:11
Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Ríkisfyrirtæki geta ekki rekið eigin utanríkisstefnu, segir Ingvar Smári Birgisson, einn þriggja stjórnarmanna RÚV sem leggjast gegn áframhaldandi sniðgöngu Eurovision. Hann telur varhugavert að stjórn félagsins taki ákvörðun sem geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis. 1.10.2026 12:07
Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú. 30.9.2026 14:02
Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Allar líkur eru á að ESA falli frá málsókn gegn Íslandi ef Alþingi samþykkir frumvarp um innleiðingu bókunar 35, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Hún hvetur þingmenn til að klára málið. 30.9.2026 13:02
Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði. 29.9.2026 12:01
Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir slys í tengivirki við Vatnshamra í Borgarfirði í dag. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans eða hvernig slysið varð. 28.9.2026 15:38
Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026. 28.9.2026 15:03
Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur OECD fann engin tengsl milli þess að símabann varð algengara frá 2022 til 2025 og breytinga á árangri nemenda í lestri eða náttúrufræði. Íslenskir nemendur nota jafnframt stafræn tæki minna til afþreyingar í skólanum en nemendur OECD að meðaltali og segja síður að tækin trufli kennslu. 28.9.2026 14:36