Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Hún hefur ekki gögn sem skýra hversu mikið samdrátturinn tengist minni áfengisneyslu og hversu mikið því að viðskiptin hafi færst annað. 26.10.2026 15:35
Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Tæplega kílómetra löngum kafla Oxford Street í London var í dag lokað fyrir bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjól. Breytingin er liður í áformum um að glæða eina þekktustu verslunargötu Bretlands nýju lífi. 26.10.2026 14:29
Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Áformað er að rífa kaffiskúr leigubílstjóra við Leifsstöð sem var lokað í júní í fyrra eftir deilur um aðgang að aðstöðunni og bænahald þar. Leigubílstjórar hafa nú afdrep inni í flugstöðinni, meðal annars í mötuneytinu. 26.10.2026 13:01
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Klukkuturninn sem áður stóð við strætóbiðstöðina á Hlemmi verður settur upp á ný. Við mathöllina verður aðstaða fyrir töskugeymslu og Norðurpólnum verður að hluta sökkt niður til að bæta aðgengi. 23.10.2026 16:12
Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Markmiðið með úttekt á rekstri Borgarbókasafnsins sé að efla söfnin og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu til að bæta þjónustuna, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún segir látið að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni. 23.10.2026 15:44
Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Nýta á betur öryggisbúnað sem þegar er til staðar í skólum Hafnarfjarðar og samræma reglur um hverjir komast inn í skólana og hvernig tekið er á móti þeim. Formaður fræðsluráðs segir öryggisúttekt á skólunum ekki hafa verið viðbragð við tilteknu alvarlegu atviki. Heitar deilur urðu í bæjarstjórn þegar fulltrúi Miðflokksins velti upp tengslum öryggismálanna við móttöku hælisleitenda. 23.10.2026 14:33
Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Í menningarráði Reykjavíkur hefur verið lögð fram tillaga um að fara yfir rekstur Borgarbókasafnsins og kanna hvernig nýta megi fjármuni þess betur. Meðal þess sem tillöguflytjendur vilja skoða er hvort veita megi sambærilega eða betri þjónustu með færri útibúum og samnýtingu við skólabókasöfn. 23.10.2026 13:59
Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Fjögurra vikna frestur sem Icelandair og flugvirkjar gáfu sér til að ná nýjum kjarasamningi rann út á miðvikudag án þess að samningar næðust. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en búist er við óformlegum samtölum í næstu viku. 23.10.2026 12:41
Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Í 55 skráðum atvikum í grunnskólum Reykjavíkur frá því í febrúar hefur starfsmaður fengið einhvers konar áverka. Þrjú atvik hafa leitt til fjarveru frá vinnu. Borgin undirbýr breytingar á aðgangi að skólunum en tímasetning framkvæmda liggur ekki fyrir. 23.10.2026 09:02
Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Þetta er meðal þess sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar vilja láta skoða í úttekt á rekstri safnsins. 22.10.2026 22:03