Af Hofsá í Skagafirði Nú hafa 62 bleikjur verið færðar til bókar úr Hofsá í Lýtingsstaðahreppi og tveir laxar - en laxarnir eru fleiri því við fengum senda mynd af einum sem ekki hefur verið skráður og sá reyndist vera hvorki meira né minna en 85 sm. Veiði 10. október 2011 09:18
Fiskvegur í Jökulsá á Dal Veiðifélag Jökulsár á Dal bíður þess nú að Skipulagsstofnun gefi grænt ljós á gerð fiskvegar fram hjá svokölluðum Steinboga. Veiði 10. október 2011 09:11
Met í Stóru Laxá? Nú eru loks öll kurl komin til grafar í Stóru Laxá í Hreppum, en ekki höfðu allir laxar skilað sér í bókina þegar áin lokaði. Nú hafa síðustu skráningar skilað sér í hús og lokatalan er 795 laxar samkvæmt okkar bókum – sem okkur skilst að sé met. Veiði 7. október 2011 10:46
Innsent bréf varðandi ástandið á rjúpnastofninum Við höfum fengið þó nokkuð af pósti þar sem menn eru með gott innleg í umræðuna varðandi ástandið á rjúpnastofninum og orsakir þess, hverjar svo sem þær kunna að vera. Margir eru þó á sama máli um að refurinn eigi stærri sök í máli en talið hefur verið. Veiði 6. október 2011 09:52
Boltar í hamslausu Tungufljóti Vötn og Veiði greindu frá góðu skoti í Tungufljóti fyrr í vikunni og getum nú bætt við smá viðbót. Greinilegt er að vatnshæð hefur verið afar óstöðug í fljótinu og sum flóðin nálægt því mest var í fyrra. Og enn eru risafiskar að veiðast. Veiði 6. október 2011 09:47
Lokatalan í Straumunum Lokatalan í Straumunum þetta sumarið er 333 laxar og 284 sjóbirtingar. Um er að ræða ágætis veiði á dagsstangirnar tvær. Veiði 6. október 2011 09:42
Veiði leyfð á 31.000 rjúpum Umhverfisráðherra hefur gefið frá sér yfirlýsingu á vef ráðuneytisins þar sem tilkynnt er um ákvörðun ráðherra um tilhögun veiða á rjúpu á þessu hausti. Veiði 5. október 2011 15:26
Kanadíska leiðin möguleg á Íslandi við rjúpnaveiðar? Veiðireglur landa eru mismunandi og veiðitíminn er það líka. Það getur verið skynsamlegt að líta til annara landa og sjá hvernig þeir haga stjórn á sínum veiðum á villibráð til að gera veiðarnar sem sjálfbærastar. Veiði 5. október 2011 11:28
Veiði lokið í Breiðdalsá, Jöklu, Hrútu og Minnivallalæk Breiðdalsá: Það var brokkgeng síðasta vikan og rúmlega það í Breiðdalsá vegna mikilla flóða sem komu reglulega vegna rigninga og náði áin aldrei að detta í eðlilega vatnshæð svo um hægðist verulega í laxveiðinni. Veiði 5. október 2011 10:01
Ert þú með innlegg í umræðuna um rjúpnaveiðar? Eins og rætt hefur verið er ákvörðun Umhverfisráðherra ekki ennþá komin í hús og veiðimenn bíða með óþreyju eftir því að sjá hvort rjúpnaveiðar verði leyfðar í ár eða ekki. Mjög víða í umræðunni hefur komið upp sá efi að veiðimenn séu einn stærsti þátturinn í því að rjúpann á undir högg að sækja í sumum landshlutum í dag. Það virðist alveg gleymast að það eru aðrir þættir sem hafa líka mikil áhrif. Veiði 5. október 2011 09:26
Rjúpa eða ekki rjúpa? Enn hefur ekki verið tilkynnt um ákvörðun Umhverfisráðherra varðandi veiðar á rjúpu þetta haustið og víst er að mörgum þykir þessi seinagangur í ákvarðanatöku ótrúlega sérstakur. Veiði 4. október 2011 14:25
Ennþá veiðist ágætlega í Ytri Rangá Veiðar ganga enn ágætlega í Ytri Rangá. Flestir dagar eru að gefa 35-50 laxa á dag en þó komu dagar í síðustu viku þar sem aðstæður voru erfiðar, þá datt veiðin niður í 20 laxa. Veitt er út mánuðinn í Ytri og kæmi mikið á óvart ef lokatala þar fer ekki yfir fimm þúsund. Veiði 4. október 2011 14:14
Bráðabirgðatölur úr Soginu Bráðabirgðatölur af svæðum SVFR í Soginu eru 752 laxar. Ef að líkum lætur er um að ræða annað besta laxveiðiárið í Sogi frá því skráningar hófust. Veiði 4. október 2011 10:00
Fréttir úr Tungufljóti Það virðist vera nokkuð af sjóbirtingi í Tungufljóti eftir sunnan áhlaupin undanfarið. Hollið 26-28/9 fékk 19 fiska við mjög erfiðar aðstæður. Veiði 3. október 2011 15:36
Lokatölur úr Andakílsá Veiði lauk í Andakílsá á sl. föstudag. Samtals veiddust 180 laxar í ánni í sumar samkvæmt Kristjáni Guðmundssyni formanni árnefndar. Veiði 3. október 2011 09:30
Laxá í Ásum fór á 28 milljónir Laxá á Ásum var sem kunnugt er leigð félaginu Salmon tails á dögunum eftir útboð, en Lax-á hefur haft ána á leigu í all mörg ár. Leiguverð var ekki gefið upp, en við höfum það eftir góðum heimildum að ársleigan sé 28 milljónir. Veiði 3. október 2011 09:27
Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn ,,Aðstæður voru mjög erfiðar og við höfum oft veitt meira í Húseyjarkvísl. Sjóbirtingsveiðin var þó ágæt og fínir birtingar inn á milli. Enn og aftur voru það Kröfluflugurnar sem voru að skila okkur þessum fiskum enda eru þær mjög sterkar í sjóbirtingsveiðinni ekki síður en laxveiðinni,“ sagði Hörður Birgir Hafsteinsson en hann og félagar hans voru að ljúka veiðum í Húseyjarkvísl. Þetta var næst síðasta hollið á laxasvæðinu í ánni. Alls fékk hollið 3 laxa og 10 sjóbirtinga. Veiði 30. september 2011 13:45
Mjög gott veiðisumar í Fnjóská Laxveiðisumarið var mjög gott í Fnjóská, en að sögn Ingvars Karls Þorsteinssonar hjá Flúðum eru skráðir laxar að minnsta kosti 650 talsins. Þetta kemur fram í Flugufréttum Flugur.is í dag. Veiði 30. september 2011 09:30
Flott morgunveiði í Skagafirðinum í dag Eins og við sögðum ykkur frá í morgun voru menn að gera fína veiði í túnunum fyrir norðan í morgun, nánar tiltekið í Skagafirði. Við fengum senda mynd frá þeim núna rétt í þessu og það er ekki annað að sjá en að afrakstur morgunsins sé 28 gæsir og 5 endur. Veiði 29. september 2011 15:48
Sófaþjófnaður úr veiðihúsinu við Djúpavatn Síðastliðið haust var sófasetti stolið úr veiðihúsinu við Hlíðarvatn. Núna varð Djúpavatn fyrir barðinu á þjófum og sófasettinu var stolið þaðan um síðustu helgi. Veiði 29. september 2011 15:23
Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni. Veiði 29. september 2011 14:58
Margar skytturnar í góðri veiði í morgun Klukkan átta í morgun fengum við hjá Veiðivísi símtal frá veiðimenni sem var ofan í skurði og vildi koma því á framfæri að það væri allt fullt af gæs fyrir norðan í Skagafirðinum. Veiði 29. september 2011 09:13
Stórlaxar síðustu daga Þangað til að menn fara að vigta alla lengdarmælda stórlaxa, verður ekki hægt að tala um stærstu laxa eða bera saman hvað var að berast á land. 94 sentimetra lax, grútleginn, sem veiddist fyrir skemmstu í Vatnsdalsá var veginn 10 kg, eða 20 pund. Veiði 28. september 2011 09:42
Forúthlutunarvinna SVFR að hefjast Umsóknarferli forúthlutunar veiðileyfa fyrir sumarið 2011 lauk þann 20. september sl. Næstu tvær vikurnar eða svo mun úthlutunarvinna standa yfir. Veiði 27. september 2011 14:36
Eitt besta laxveiðisumarið senn að enda komið Þrátt fyrir misjafnar skoðanir stangaveiðimanna á veiðinni í sumar, þá eru heildar laxveiðitölurnar þær fjórðu hæstu frá upphafi skráninga! Veiði 27. september 2011 14:33
Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust. Veiði 27. september 2011 09:34
Gæsaveiðin heldur róleg víða vegna veðurs Gæsaveiðin er komin á fullt og víða á landinu er hún farin að bunka sig saman á túnum, bændum frekar til óþurftar en annars. Í Skagafirði og Húnaflóa eru sum túnin svört af gæs en hún hefur verið frekar erfið til veiða vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Veiði 26. september 2011 09:53
Nokkrar lokatölur og orð um aflabrest í hafbeitinni Nú eru lokatölur komnar úr nokkrum ánum og veiði að ljúka í laxánum nema Rangánum og Vatnsá. Sumarið er líklega það fjórða eða fimmta besta frá upphafi mælinga svo að veiðimenn mega vel við una. Veiði 26. september 2011 08:59
Fréttir úr Fossálum Fossálar eru að gefa mjög vel og eru hollin sem hitta á réttu aðstæðurnar að fá jafna og góða veiði. Menn sem voru í síðustu viku að veiða fengu 14 sjóbirtinga. Næsta holl þar á eftir lenti í miklum vatnavöxtum og fékk 3 birtinga. Þá komu menn sem voru að um helgina og fengu 11 sjóbirtinga. Í því holli fengust fiskar á veiðistöðum nr. 4, fimm fiskar komu á land á veiðistað nr. 8, þá nr.12, 18 og 19. Uppistaðan í aflanum var 5-8 pund Veiði 26. september 2011 08:54
Flott veiði í Grenlæk svæði 4 Við fáum fréttir þessa dagana af fínni veiði á öllum okkar sjóbirtingssvæðum fyrir austan og er Grenlækur sv. 4 engin undantekning þar á. Þeir veiðimenn sem voru við veiðar á 18-20 sept. fengu 28 fallega sjóbirtinga. Allur fiskurinn var nýgenginn og og flestir 3-5 pund. Stærstur var 7 punda fiskur sem veiddur var í gamla árfarveginum. Mest fékkst út á flóðinu sjálfu og var hann allur veiddur á spón. Þess má einnig geta að félagið er nýbúið að koma litlum bát á svæðið til að auðvelda mönnum að komast um flóðið. Veiði 26. september 2011 08:50