
Miðfjarðará: Fín opnun en aðstæður erfiðar
Það er mál manna sem voru við veiðar hversu vel haldinn fiskurinn er að mæta úr hafinu, en hins vegar voru aðstæður í Miðfjarðaránni "fjandi erfiðar“; lítið vatn og gargandi sól.
Allt um stang- og skotveiði á Íslandi. Vetur, sumar, vor og haust.
Það er mál manna sem voru við veiðar hversu vel haldinn fiskurinn er að mæta úr hafinu, en hins vegar voru aðstæður í Miðfjarðaránni "fjandi erfiðar“; lítið vatn og gargandi sól.
Sogið er vatnsmesta lindá landsins með fjölmörgum veiðisvæðum. Ekki var byrjað að selja leyfi á Torfastaðsvæðið fyrr en fyrir um tveimur árum. Meðalveiði síðustu tvö sumur er um 100 laxar.
Alls komu 13 laxar á land þegar Hofsá var opnuð í gær. Selá er komin í um 30 laxa og sá stærsti sem Veiðivísir hefur frétt af í sumar veiddist þar í gær. Sá mældist 100 sentímetrar.
Veiðimenn sem voru svo heppnir að opna Ytri Rangá í gær lentu svo sannarlega í veislu í gær en alls komu 18 laxar á land og meirihlutinn vænn tveggja ára lax, sá stærsti 89 sentimetrar.
Snævarr Örn Georgsson veiðimaður veiddi fallegar staðbundnar bleikjur fyrir ofan Steinbogann í Jöklu. Hann er telur líkur á því að áin sé full af bleikju allt upp á Kárahnjúkavirkjun. Þetta kemur fram á vef Veiðiþjónustunnar Strengja.
Lax er genginn í Breiðdalsá. Á vef Veiðiþjónustunnar Strengja er sagt frá því að laxateljarinn hafi verið settur í laxastigann við fossinn Efri-Beljanda í dag. Þegar það var gert var að sjálfsögðu kíkt í hylinn og þar sáust tveir vænir laxar.
Kostir kerfisins eru helst þeir að auka upplýsingastreymi til veiðimanna, þannig að þeir geti skoðað aflabrögð eftir veiðiám, veiðidögum og veiðistöðum hvenær sem þeim lystir. Aðgengi að veiðitölum verður þannig stóraukið, öllum til hagsbóta.
Eftir fjögurra daga veiði hafa 68 laxar komið á land í Elliðaánum. Aðeins einn veiddist á kvöldvaktinni í dag þrátt fyrir að stór ganga hafi sést á leið upp árnar. Stærsti laxinn veiddist í dag.
"Við sóttum í smiðju sérfræðinga Árnastofnunar um að fá góða vætti í veiðihúsin í Vopnafirði og standa við Hofsá og Selá,“ segir Orri Vigfússon, sem opnar nýtt veiðihús á bökkum Selár í Vopnafirði í dag.
Eins er það að frétta af bökkum Skjálfandafljóts að Lax-á bíður nú gistingu með laxsvæðunum í Skjálfandafljóti frá með næstu mánaðarmótum.
Tveir laxar komu land ásamt einum sjóbirting en laxarnir voru 11 og 12 pund og komu báðir úr Djúpfossi á maðk. 19 laxar gengnir Ægissíðufoss í Ytri-Rangá.
Eftir fyrstu vakt höfðu veiðst 22 laxar og voru þeir fengnir víða um ána. Mikill lax er genginn upp á miðsvæðin, að því segir í frétt á svfr.is.
Nú liggur fyrir að Elliðaárnar skiluðu 31 laxi á fyrsta degi, og er það mjög til efs að hægt sé að finna betri opnun í ánni í seinni tíð.
Alls hafa 124 laxar veiðst í Norðurá það sem af er sumri. Landssamband veiðifélaga hefur birt nýjar tölur um veiði í laxveiðiám.
Átta laxar veiddust á sólríkum opnunardegi í Laxá í Aðaldal í gær. Fjórir komu á morgunvaktinni og fjórir á kvöldvaktinni,
Ellefu laxar komu land í Laxá í Kjós í gær. Þetta voru allt fallegir eins árs fiskar.
Veiði hófst í Hítará á Mýrum á mánudaginn. Mikið er af laxi í ánni miðað við árstíma og byrjunin ein sú besta sem um getur, segir á heimasíðu SVFR.
Fyrri vaktin sem veiddi Elliðaárnar í dag fékk 16 laxa. Þar af komu tíu á land úr Teljarastreng sem er pakkaður af laxi.
Það tók Reykvíking ársins, Theodóru Rafnsdóttur, aðeins 48 sekúndur að setja í fyrsta laxinn, glæsilegan 5 - 6 punda hæng sem var landað stuttu síðar . Að auki hafði Theodóra landað öðrum laxi og á land fyrir stuttu voru komnir sex laxar á land, þannig að veiðin byrjar vel í Elliðaánum þetta sumarið.
Þrír laxar, þar af 12 punda nýrunninn hrygna, veiddust í Brúarlagshyl í Fnjóská en hún var opnuð um helgina. Í gær veiddist svo einn lax í Kolbeinspolli en um tíu laxar voru í pollinum. Þetta kemur fram á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, svfr.is.
Um tvær vikur eru síðan að fyrsti laxinn sást í Laxá í Dölum og hefur lax reyndar legið á veiðistaðnum Dönustaðagrjótum undanfarið.
Tveir laxar voru um 10 pundin og komu úr Skáfossi og við Neðri-Brú
Í hádeginu voru sex laxar komnir á land í Skjálfandafljóti en veiðihófst þar í gærmorgun. Á vef SVFR er greint frá því að laxinn í Norðurá hafi verið óvenju tregur til að taka síðustu daga.
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 24. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.
Fyrir skömmu gerðust þau merku tíðindi að lax gekk upp ána Rín allt til bæjarins Rheinfelden í Sviss. Þetta hafði ekki gerst í fimmtíu ár.
Gott vatn er í ánum og vart hefur orðið við töluvert af laxi í veiðistöðum eins og Kvíslafossi, Laxfossi og Klingenberg á neðsta veiðisvæði Laxár. Horfur eru því góðar
Veiði hefst í Skjálfandafljóti í dag. Á síðustu fimm árum hafa fyrstu tvær vikurnar gefið að meðaltali 43 laxa.
Laxinn togar í marga en það er ekkert leyndarmál að verð á laxveiðileyfum er hátt. Veiðivísir hefur tekið saman nokkur laxveiðisvæði þar sem hægt er fá leyfi undir 20 þúsund krónum og töluvert góð von er á að krækja í lax. Hafa ber í huga að þessi listi er engan veginn tæmandi.