

Pepsi Max-deild karla
Leikirnir

„Auðvitað er pressa, eftirvænting og spenna yfir því hver tekur við þessu starfi“
Gregg Ryder var í fyrradag ráðinn þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu. Hann skrifaði undir þriggja ára samning og er Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar, ánægður með þá lendingu sem málið fékk. Hann segir KR aldrei hafa verið undir pressu að ráða inn nýjan þjálfara eftir að ákveðið var að framlengja ekki við Rúnar Kristnsson.

Vill gera stuðningsfólk KR stolt af liðinu: „Í mínum augum er þetta stærsti klúbburinn á Íslandi“
„Þetta er risastórt tækifæri fyrir mig. Ég er himinlifandi, þetta er heiður og þetta eru forréttindi. Í mínum augum er þetta stærsti klúbburinn á Íslandi,“ sagði Gregg Ryder, nýráðinn þjálfari KR í Bestu deild karla í knattspyrnu.

KR kynnir Gregg Ryder sem nýjan þjálfara
Englendingurinn Gregg Ryder er nýr þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

KR boðar til blaðamannafundar og kynnir líklega nýjan þjálfara í dag
Knattspyrnudeild KR hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem nýr þjálfari liðsins verður að öllum líkindum kynntur til leiks.

Segir að KR muni rísa á ný
Sigurvin Ólafsson, nýráðinn þjálfari Þróttar Reykjavíkur í Lengjudeildar karla í knattspyrnu, segir að KR muni rísa á ný.

Gregg Ryder að taka við KR
Gregg Ryder, fyrrverandi aðstoðarþjálfari ÍBV, þjálfari Þróttar Reykjavíkur og Þór Akureyrar, mun stýra KR í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð.

Vestri semur við markvörð sem var eitt sinn undir smásjá Milan
Nýliðar Vestra eru byrjaðir að styrkja sig fyrir tímabilið sem framundan er í Bestu deild karla.

Sá markahæsti framlengir við Skagamenn
Viktor Jónsson, leikmaður ÍA, hefur framlengt samningi sínum við félagið út tímabilið 2025.

Fram muni rísa á ný: „Árangurinn kemur ef menn leggja á sig mikla vinnu“
Rúnar Kristinsson skrifaði undir þriggja ára samning við Fram í gær og tekur við stöðu þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta. Rúnar sér mikla möguleika í liði Fram sem stefnir hærra en árangur liðsins hefur verið undanfarin ár. Félagið muni rísa aftur upp en árangur muni ekki nást nema menn leggi á sig mikla vinnu.

Rúnar nýr þjálfari Framara
Rúnar Kristinsson er tekinn við sem þjálfari Fram í Bestu deild karla í fótbolta og hann var því ekki lengi að finna sér nýtt starf eftir að hann hætti óvænt með KR í haust.

Svona var blaðamannafundur Rúnars
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi Fram þar sem Rúnar Kristinsson var tilkynntur sem nýr þjálfari karlaliðs félagsins.

Ólafur Kristjánsson tekur við kvennaliði Þróttar
Ólafur Helgi Kristjánsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning um að þjálfa kvennalið Þróttar. Liðið hafnaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili.

Ragnar Sigurðsson gæti snúið aftur til Rússlands
Það virðist næsta öruggt að Ragnar Sigurðsson verði ekki áfram þjálfari Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Samningur hans er runninn út og Fram hefur gefið út að Rúnar Kristinsson sé efstur á blaði. Nú virðist sem Ragnar gæti verið á leið til Rússlands.

Guðmundur Tyrfingsson keyrir frá Selfossi og í Árbæinn
Fótboltamaðurinn Guðmundur Tyrfingsson er genginn í raðir Fylkis frá Selfossi.

Þjálfaraleit KR: Ekki rætt við jafn marga og haldið hefur verið fram
KR-ingar leita að nýjum þjálfara fyrir karlalið félagsins í fótbolta en Rúnar Kristinsson hætti með liðið eftir tímabilið.

Fullyrðir að Ólafur Ingi sé að taka við KR
Fótboltagúrúinn Hjörvar Hafliðason, einnig þekktur sem Dr. Football, greindi frá því á Twitter í dag Ólafur Ingi Skúlason verði næsti þjálfari KR. Í sömu færslu segir hann að Rúnar Kristinsson, fyrrum þjálfari KR, sé að taka við Fram.

Dusan Brkovic skrifaði undir eins árs samning við FH
FH hefur tilkynnt um félagsskipti Dusan Brkovic frá KA. Miðvörðurinn skrifar undir eins árs samning við fimleikafélagið.

Nennir ekki að segjast vera hættur fyrr en það er staðfest
Knattspyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson er mættur í þjálfarateymi Íslands- og bikarmeistara Víkings en er þó ekki viss um að skórnir séu farnir upp í hillu.

Andri Rúnar snýr heim
Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason mun spila með Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Þessu greindi félagið frá í kvöld.

Hans Viktor í KA
Miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson er genginn í raðir KA og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Samningur hans á Akureyri gildir til 2025.

Fer Eiður Smári í Vesturbæinn?
Vesturbæingar spyrja sig þessa dagana hver tekur við karlaliði félagsins í fótbolta. Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, segir viðræður langt komnar við ónefndan aðila.

Vesturbæingar leggja til þjálfara KR: Willum á rangri hillu, Lars, Skarphéðinn eða fyrsta konan?
Margir velta fyrir sér hver eigi að taka við karlaliði KR í fótbolta þessa dagana. Vísir stökk í vettvangsferð í Vesturbæinn í von um niðurstöðu í málinu.

Meistararnir vilja fá markakónginn
Íslands- og bikarmeistarar Víkings vilja fá Emil Atlason, markakóng Bestu deildarinnar, í sínar raðir fyrir næsta tímabil.

Rúnar staðfestir viðræður | Fram vill ráða sem allra fyrst
Rúnar Kristinsson átti fund með formanni knattspyrnudeildar Fram á þriðjudaginn var um möguleikann á að taka við þjálfun liðsins. Hann leitar nýs starfs eftir að hann og KR slitu samstarfi að nýliðnu tímabili loknu.

„Ósáttur með að það var ekki gengið hreint til verks“
Ólafi Kristjánssyni var sagt upp sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðablik í ágúst. Hann segir í viðtali í þættinum „Mín skoðun“ að hann hafi verið ósáttur með framkvæmd uppsagnarinnar.

FH framlengir við tvo lykilmenn
FH framlengdi í dag samninga sína við tvo lykilleikmenn hjá knattspyrnuliði félagsins. Þeir Vuk Oskar Dimitrijevic og Ólafur Guðmundsson skrifuðu báðir undir nýja samninga.

„Pabbi veit það alveg að ég verð betri en hann“
Einn efnilegasti leikmaður landsins samdi í gær við Skagamenn í efstu deild karla í knattspyrnu. Hann á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana.

„Tími fyrir mig að taka næsta skref og standa á eigin fótum“
Halldór Árnason segir að það leggist vel í hann að taka við Blikunum og fá tækifæri á stóra sviðinu. Hann segir að verkefnið sé bæði stórt og spennandi.

Keflvíkingar kveðja þrjá leikmenn liðsins
Keflavík féll úr Bestu deildinni í fótbolta í sumar og það má búast við talsverðum breytingum á leikmannahópi liðsins.

Hinrik til ÍA
ÍA, sigurvegari Lengjudeildar karla í sumar, hefur samið við framherjann unga, Hinrik Harðarson.