

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kallaði eftir því fyrir leikinn gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag að leikmennirnir sínir sýndu almennileg viðbrögð við slæmri byrjun félagsins í fyrstu þremur umferðunum. Hann hafi þó ekki vilja niðurlægja Bournemouth á þann hátt sem Liverpool gerði
Arsenal er aftur komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 endurkomusigur á nágrönnum sínum í Fulham í fjórðu umferð deildarinnar í dag.
Manchester City tókst að koma til baka gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag og vinna 4-2 eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik. Norski markahrókurinn Erling Haaland skoraði þrennu í leiknum og var allt í öllu í endurkomu Englandsmeistarana. Haaland segist hafa komið til City til þess að spila akkúrat svona leiki.
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley er liðið vann öruggan 1-5 útisigur gegn Wigan í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.
Eftir erfiða byrjun í ensku úrvalsdeildinni er Liverpool komið í gang eftir sannkallaðan stórsigur gegn nýliðum Bournemouth í dag. Lokatölur 9-0 þar sem Roberto Firmino var allt í öllu í sóknarleik heimamanna.
Norðmaðurinn Erling Braut Haaland var sjóðandi heitur er Englandsmeistarar Manchester City komu til baka og unnu 4-2 sigur gegn Crystal Palace eftir að hafa lent 0-2 undir í fyrri hálfleik.
Chelsea vann virkilega góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Leicester í ensku úrvalsdeildinni í dag þrátt fyrir að þurfa að leika manni færri seinasta klukkutíma leiksins.
Manchester United vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag er liðið hafði betur gegn Southampton, 0-1. Markaskorarinn Bruno Fernandes var eðlilega kátur í leikslok.
Nýliðar Nottingham Forest hafa vægast sagt verið duglegir á leikmannamarkaðinum í sumar, en félagið er við það að fá sautjánda leikmann sumarsins til liðs við sig.
Bruno Fernandes skoraði eina mark leiksins er Manchester United vann langþráðan 0-1 útisigur gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Hollenska félagið Ajax hefur hafnað nýjasta tilboði Manchester United í brasilíska vængmanninn Antony. Tilboðið hljóðaði upp á 90 milljónir evra.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur náð samkomulagi við Leicester um kaupverðið á franska miðverðinum Wesley Fofana.
Nýjasti leikmaður Manchester United, Casemiro, segir að lið af sömu stærðargráðu og Manchester United eigi skilið að spila í Meistaradeild Evrópu.
Aðeins eru þrjú ár síðan Nicolas Pépé var gerður að dýrasta leikmanni í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. Hann hefur nú yfirgefið félagið á lánssamningi og mun nú spóka sig um á frönsku Ríveríunni og spila með Nice í frönsku úrvalsdeildinni.
Alþjóða íþróttadómstóllinn hefur loks komist að niðurstöðu i máli Emiliano Sala sem lést er hann ferðaðist yfir Ermasundið í flugvél í janúar 2019 til að ganga í raðir þáverandi Cardiff City. Félagið þarf að borga Nantes uppsett verð fyrir leikmanninn þó hann hafi aldrei spilað fyrir félagið.
Enski knattspyrnumaðurinn Dele Alli hefur gengið til liðs við tyrkneska liðið Besiktas á láni frá Everton. Dele mun leika með liðinu út tímabilið.
Leit enska knattspyrnuliðsins Manchester United að samkeppni fyrir David De Gea, aðalmarkvörð liðsins, gengur vægast sagt brösuglega. Martin Dúbravka er næsta skotmark eftir að Kevin Trapp ákvað að vera áfram hjá Eintracht Frankfurt.
Sænski framherjinn Alexander Isak er í þann mund að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United. Verðmiðinn er um 60 milljónir punda eða tæpir 10 milljarðar íslenskra króna.
Bruce Grobbelaar, fyrrum markvörður Liverpool, segir að Liverpool hafi unnið ensku úrvalsdeildina árið 2020 af því að hann aflétti bölvun liðsins með því að míga á markstangirnar á heimavelli Liverpool.
„Það er fyrst og fremst heiður að vera valin fyrirliði félagsins og að finna traustið sem því fylgir. Ég er mjög spennt fyrir mínu nýja hlutverki, ég tel mig vera leiðtoga og mun enn vera ég sjálf og já, að er gríðarlegur heiður,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir, nýr fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United.
Douglas Luiz skoraði stórglæsilegt mark beint úr hornspyrnu er lið hans Aston Villa vann 4-1 sigur á Jóni Daða Böðvarssyni og félögum í Bolton Wanderers í enska deildabikarnum í gærkvöld.
Ann-Katrin Berger, markvörður Englandsmeistara Chelsea, hefur greinst með krabbamein í hálsi. Er þetta í annað sinn sem hún greinist með krabbamein. Hún sigraðist á því áður og stefnir á slíkt hið sama nú.
Þó Cristiano Ronaldo hafi gefið til kynna að hann vildi yfirgefa Manchester United þá virðast fá lið í Evrópu, og heiminum raunar, hafa áhuga á að fá Portúgalann í sínar raðir. Eina félagið sem hefur boðið í framherjann til þessa kemur frá Sádi-Arabíu.
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, refsaði sjálfum sér ásamt leikmönnum liðsins eftir slæmt tap fyrir Brentford þarsíðustu helgi. Eitthvað virðist leikmannahópur United hafa hrist sig saman þar sem sigur á Liverpool fylgdi á mánudagskvöld.
Réttarhöldin yfir Benjamin Mendy, vinstri bakverði enska knattspyrnuliðsins Manchester City, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa nauðgað átta konum, reynt að nauðga einni til viðbótar sem og eitt kynferðisbrot. Leikmaðurinn neitar sök í öllum málunum.
Tilraunum Manchester United til að fá hollenska miðjumanninn Frenkie de Jong frá Barcelona er lokið, samkvæmt hinum virta miðli The Athletic.
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gengið frá kaupum á ítalska landsliðsmanninum Emerson Palmieri frá nágrönnum sínum í Chelsea.
Jill Scott, næst leikjahæsta landsliðskona Englands frá upphafi, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
Það var nóg um að vera í annarri umferð enska deildarbikarsins í kvöld þar sem 21 leikur fór fram. Alls komu 13 úrvalsdeildarfélög inn í keppnina á þessu stigi keppninnar, en það vekur kannski mesta athygli að úrvalsdeildarfélagið Fulham er úr leik eftir 2-0 tap geg D-deildarliði Crawley Town.
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley er liðið vann 0-1 sigur gegn C-deildarliði Shrewsbury í annarri umferð enska deildarbikarsins í kvöld.