Skoða málsókn gegn fjármálaeftirlitinu Danski ríkisendurskoðandinn kemur hingað til lands í næstu viku til að kynna rannsóknarnefnd Alþingis skýrslu sem verður notuð sem grunnur að málsókn gegn stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Stjórn þess er sökuð um að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með Hróarskeldubanka sem varð gjaldþrota í fyrrasumar. Innlent 18. september 2009 05:30
Aðgerðir gegn eftirliti bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að hugsanlegar aðgerðir, eins og til dæmis málsóknir, gegn eftirlitsaðilum vegna vinnubragða þeirra í aðdragenda efnahagshrunsins í haust munu bíða eftir niðurstöðum frá rannsóknarnefnd Alþings. Viðskipti innlent 17. september 2009 15:11
Leggja væntanlega til framhaldsrannsókn á bankahruninu Rannsóknarnefnd Alþingis skilar niðurstöðum sínum um bankahrunið eftir nokkrar vikur. Í byrjun næsta mánaðar fær nefndin skýra mynd af stöðu mála og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um endanleg skil. Þá verður ár fá því að bankarnir féllu. Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, telur ekki ólíklegt að gerðar verði tillögur um framhaldsrannsókn á einstökum þáttum bankahrunsins. Innlent 17. september 2009 13:35
Óvænt vitneskja í máli Bretanna Mál skilanefndar Kaupþings gegn breska fjármálaráðuneytinu var flutt munnlega fyrir breskum áfrýjunardómstól hinn 1. júlí. Innlent 7. september 2009 04:00
Rannsóknarnefnd skoðar bankana Styrkir til stjórnmálaflokka eru meðal þess sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið rannsakar, staðfesti Tryggvi Gunnarsson nefndarmaður í samtali við Fréttablaðið 11. apríl. Innlent 2. september 2009 05:45
Geir Haarde: Erfiðustu dagar á starfsævi minni Vikurnar eftir fjármálahrunið á Íslandi voru rosalegar, sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á BBC World Service. Innlent 18. ágúst 2009 16:33
Slitastjórn Kaupþings ræður PwC til rannsóknarvinnu Slitastjórn Kaupþings hefur ráðið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers (PwC) til að sinna rannsókn á ráðstöfunum bankans áður en hann fór í greiðslustöðvun með sérstakri áherslu á mögulega riftun ráðstafana þrotamanns á grundvelli gjaldþrotaskiptalaga. Viðskipti innlent 18. ágúst 2009 13:30
Ráðherra kynnti frumvarp um rýmri heimildir til eignakyrrsetningar Skattrannsóknarstjóra verður heimilt að krefjast kyrrsetningar á eignum í málum sem hann rannsakar ef hætta þykir á að eignum verði skotið undan eða þær glatist eða rýrni að mun, samkvæmt nýju frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórninni í morgun. Innlent 7. ágúst 2009 15:26
Óskiljanlegt að verja lögbrot Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að fara þurfi yfir þær reglur sem gilda um aðgang að upplýsingum sem tengjast bankahruninu, í ljósi frétta síðustu daga af lánamálum Kaupþings. Í þeim efnum hafi stjórnvöld brugðist algjörlega. Innlent 5. ágúst 2009 03:15
Hvíta bókin Fólkið í landinu þarf að velta því fyrir sér, hvers vegna ekki bólar enn á því, níu mánuðum eftir hrun, að ábyrgðarmenn hrunsins séu látnir svara til saka. Þeir hafa nú haft níu mánuði í boði yfirvalda til að koma gögnum og eignum undan. Fáeinir menn hafa verið kvaddir til skýrslutöku, það er allt og sumt. Bandaríkjamaðurinn Bernard Madoff, sem játaði sök fyrir sex mánuðum og reyndist hafa hlunnfarið viðskiptavini sína um sömu fjárhæð og íslenzku bankarnir, eða rösklega 60 milljarða Bandaríkjadala, hefur nú fengið 150 ára fangelsisdóm. Rannsóknin hér heima virðist vera í skötulíki og ýtir ásamt ýmsu öðru undir áleitnar grunsemdir um, að yfirvöldin standi í reyndinni að einhverju leyti með meintum sakamönnum gegn fólkinu í landinu. Tökum tvö dæmi. Fastir pennar 2. júlí 2009 00:01
Fyrrum seðlabankastjórar hafa verið yfirheyrðir Rannsóknarnefnd Alþingis hefur tekið formlegar skýrslur af 26 einstaklingum. Þar á meðal eru ráðherrar, fyrrverandi og núverandi, fyrrverandi bankastjórar Seðlabanka Íslands og forstjóri Fjármálaeftirlitsins, fyrrverandi bankastjórar, starfsmenn úr stjórnsýslunni og bönkunum og sjálfstæðir sérfræðingar sem unnið hafa á vegum þessara aðila. Þetta kemur fram á vef rannsóknarnefndarinnar. Innlent 25. júní 2009 16:41
Sigríður Benediktsdóttir ekki vanhæf Þeir Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson hafa komist að þeirri niðurstöðu að Sigríður Benediktsdóttir, samstarfskona þeirra í Rannsóknarnefnd Alþingis sé ekki vanhæf vegna ummæla sem hún viðhafði í viðtali við Yale Daily News þann 31. mars síðastliðinn. Innlent 25. júní 2009 15:24
Hart var lagt að mér að hætta „Ég staðfesti orð Jóns [Daníelssonar hagfræðings] um að það hafi verið lagt hart að mér að segja af mér," segir Sigríður Benediktsdóttir, nefndarmaður í rannsóknarnefnd Alþingis. Innlent 12. júní 2009 05:30
Koma Sigríði Benediktsdóttur til varnar Alþingi hefur nú til umfjöllunar beiðni um að Sigríður Benediktsdóttir hætti í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið vegna ummæla hennar í skólablaði Yale háskóla. Fjórir íslenskir hagfræðingar telja að brottvikning hennar myndi skaða starf nefndarinnar. Innlent 10. júní 2009 12:57
Almenn almælt tíðindi eða grundvöllur vanhæfis? Fyrir nokkru barst rannsóknarnefnd Alþingis umkvörtun frá Jónasi Fr. Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, vegna ummæla sem höfð voru eftir Sigríði Benediktsdóttur í skólablaði Yale-háskóla í samræðu við eigin nemanda. Haft er eftir Sigríði að hrunið hafi verið „afleiðing óhæfilegrar græðgi margra“ og að þær stofnanir sem áttu að setja reglur um starfsemi fjármálafyrirtækja og tryggja stöðugleika fjármálakerfisins hafi sýnt af sér „andvaraleysi“. Skoðun 10. júní 2009 06:00
Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup Þeir tíu mánuðir sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfnaðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup. Innlent 29. maí 2009 06:00
Bjarni og Guðjón Arnar bjartsýnir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er bjartsýnn á gott gengi flokksins í kosningunum á morgun þrátt fyrir að skoðanakannanir gefi til kynna að flokkurinn fái skell. Það á einnig við um Guðjón Arnar Kristjánsson, formann Frjálslynda flokksins. Innlent 24. apríl 2009 19:37
Jóhanna vill aflétta trúnaði af skýrslu um bankahrunið Forsætisráðherra vill láta kanna hvort ekki verði hægt að aflétta trúnaði af gögnum Rannsóknarnefndar Alþingis um atburðarrásina í kringum bankahrunið í október. Utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði um gögnin í morgun en Siv Friðleifsdóttir segist vera slegin yfir þeim upplýsingum sem þar koma fram. Innlent 24. apríl 2009 18:37
Ævintýraleg samskipti við Breta vegna Icesave Atburðarrásin í kringum samskipti breskra og íslenskra stjórnvalda vegna Icesave málsins voru með ævintýralegum hætti segir Siv Friðleifsdóttir. Utanríkisnefnd Alþingis fjallaði í morgun um trúnaðargögn sem varðar Icesave deilurnar. Innlent 24. apríl 2009 12:21
Atvinnulaus sjálfstæðismaður á bak við nafnlausu auglýsingarnar Einn af forsvarsmönnum hóps sem kallar sig Áhugafólk um endurreisn Íslands og birti nýverið umdeildar auglýsingar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu er flokksbundinn sjálfstæðismaður. Hópurinn hefur sent frá sér yfirlýsingu og undir hana skrifa Benedikt Guðmundsson og Sigurður Hjaltested. Í umræddum auglýsingum segir að bæði Vinstri grænir og Samfylkingin hafi talað um skattahækkanir í aðdraganda þingkosninganna. Flokkarnir hafa hinsvegar báðir gert athugasemdir við auglýsinguna og sagt þær uppfullar af rangfærslum. Sigurður segir í samtali við fréttastofu að þeir hafi fengið upplýsingarnar upp úr stefnu og viðtölum við frambjóðendur vinstriflokkanna í fjölmiðlum. Innlent 22. apríl 2009 15:01
Átak til að rannsaka hugsanleg skattalagabrot Fjármálaráðuneytið hefur í samvinnu við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra ákveðið að hafið verði sérstakt átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess. Innlent 22. apríl 2009 12:07
Stjórnmálamenn fengu óeðlilega fyrirgreiðslu úr bönkum Mörg dæmi eru um að stjórnmálamenn, jafnvel ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, aðilar tengdir þeim og forsvarsmenn lífeyrissjóða, hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu í bankakerfinu. Þetta var kallað vildarkjarakerfið eða "special deal". Innlent 21. apríl 2009 18:30
Styrkjamál Sjálfstæðisflokksins í hnotskurn Þann 7.apríl sagði fréttastofa Stöðvar 2 frá því að FL Group hefði styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna, aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Í kjölfarið hófst atburðarrás sem var nokkuð klaufaleg fyrir flokkinn og tímasetningin var ekki sem best, þar sem einungis átján dagar voru í kosningar. Framkvæmdarstjóri flokksins sagði af sér og formaður flokksins tilkynnti síðar að styrkurinn yrði endurgreiddur, auk 25 milljóna króna styrks sem flokkurinn fékk frá Landsbankanum. Fyrrverandi formaður flokksins tók á sig alla ábyrgð, en ýmsir þar á meðal Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður, blönduðustu í málið. Hér að neðan má sjá samantekt af málinu. Innlent 16. apríl 2009 22:33
Rannsakar styrki til flokka Styrkir til stjórnmálaflokka eru meðal þess sem Rannsóknarnefnd um bankahrunið mun skoða við vinnu sína. Þetta segir Tryggvi Gunnarsson, sem sæti á í nefndinni. Innlent 11. apríl 2009 09:00
Darling rangtúlkaði orð Árna segir bresk þingnefnd Beiting hryðjuverkalaga gegn íslenskum fyrirtækjum er mjög gagnrýniverð aðgerð, segir rannsóknarnefnd breska þingsins. Alistair Darling er sagður hafa rangtúlkað orð Árna Mathiesen í frægu símtali 7. október. Innlent 4. apríl 2009 08:00
Fáir fengu þúsundir milljarða Útlán til hundrað stærstu skuldara föllnu viðskiptabankanna var um helmingur heildarútlána þeirra. Því er ljóst að um 300 aðilar hafa fengið að láni þúsundir milljarða í því ljósi að heildareignir bankanna, sem að stórum hluta eru útlán, námu tífaldri landsframleiðslu þegar mest var. Rannsóknarnefnd Alþingis vinnur nú að frekari greiningu á útlánum bankanna og þróun þessara lána með tilliti til trygginga og í hvað verið var að lána. Innlent 4. apríl 2009 04:30
300 aðilar fengur 4000 milljarða að láni Um 300 hundruð aðilar fengu yfir 4000 milljarða króna að láni hjá stóru bönkunum þremur. Lán til þessara aðila nema gervöllum skatttekjum ríkisins í meira en áratug. Innlent 3. apríl 2009 18:33
Rannsóknarnefndin: 100 stærstu viðskiptavinir með helming lánanna Útlán Glitnis, Kaupþings og Landsbankans til 100 stærstu lántakenda þeirra námu um helmingi af heildarútlánum bankanna þriggja. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að kanna bankahrunið. Nefndin stóð fyrir blaðamannafundi í dag þar sem þar sem Páll Hreinsson formaður og Tryggvi Gunnarsson kynntu framgang og stöðu rannsóknar nefndarinnar. Viðskipti innlent 3. apríl 2009 16:42
Ákveða sjálfir hvort þeir upplýsa um hagsmunatengsl sín Þingmenn geta ákveðið það sjálfir hvort þeir gefi upplýsingar um hagsmuni sína og eignir samkvæmt drögum að reglum sem þingflokkar á Alþingi hafa náð sátt um. Reglurnar taka hvorki til skulda eða maka þingmanna. Innlent 9. mars 2009 18:41
Ábending úr bankakerfinu hratt af stað rannsókn á fjölmiðlamönnum Ábending innan úr bankakerfinu varð til þess að rannsóknarnefnd Alþingis ætlar að kanna þátt fjölmiðlafólks í hruni íslensku bankanna. Innlent 9. mars 2009 12:00