Ísland í dag - Ásdís fer reglulega sjálf ofan í frystikistuna sína

Verslunarstjórinn Ásdís Ýr Aradóttir fór á kælinámskeið hjá Andri Iceland. Og í framhaldi af því hefur hún meðal annars komið sér upp frystikistu í bílskúrnum sem hún fer ofaní til þess að kæla sig. Og hún fer einnig iðulega á stuttermabolnum útí kuldann og skefur af bílnum með berum höndum. Þetta varð til þess að hún læknaði hjá sér ýmsa kvilla bæði andlega og líkamlega svo sem bólgur, höfuðverki, bakverki, magaverki og fleira og streitu og kulnun og svo hefur þetta haft jákvæð áhrif á þyngdarstjórnun hennar. Og Ásdís segir þetta hafa algjörlega breytt lífi sínu. Vala Matt fór í Íslandi í dag heim til Ásdísar á Selfoss og Ásdís fór meðal annars ofaní frystikistuna í ískalt vatn fyrir Völu.

197386
12:07

Vinsælt í flokknum Ísland í dag