Ísland í dag - Lét drauma sína rætast eftir að hafa misst vinnuna

Vöruhönnuðurinn Sesselja Thorberg missti vinnuna, en eftir það sló hún svo rækilega í gegn með bæði vöruhönnun sinni og innanhússhönnun. Þannig að vinnumissir gerði það að verkum að hún gat látið marga drauma sína rætast og sló þannig í gegn. Og með einstökum hæfileikum og endalausum dugnaði og krafti fékk hún algjör drauma verkefni. Meðal annars hönnun á stórum fyrirtækjum eins og Advania og verkefnum eins og Biskupsstofu og innanhússhönnun fyrir Reykjavíkurborg. Sesselja er þekkt fyrir að nota hreina og fallega liti sem hún segir að veki hamingju og gleði. En einnig hefur hún hannað bæði íbúðir og hús með fallegum jarðlitum. Og heimili hennar er með jarðlitum sem hún segir að séu róandi þegar hún kemur heim eftir streitu og álag í vinnunni. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði bæði sterka liti og jarðliti hjá Sesselju.

72
13:39

Vinsælt í flokknum Ísland í dag