Tillögur til að auka samkeppni á raforkumarkaði
Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að rjúfa eignarhald á milli Landsnets og Landsvirkjunar og að kaupendur raforku geti selt umframorku aftur inn á dreifikerfið. Samtökin kynntu níu tillögur til að auka samkeppni á raforkumarkaði á fundi í Hörpu í morgun.