Staðfestu ævilangan fangelsisdóm
Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag ævilangan fangelsisdóm yfir Ratko Mladic fyrir þjóðarmorð og aðra stríðsglæpi í stríðinu í Bosníu á árunum 1992 til 1995. Þetta þýðir að hershöfðinginn fyrrverandi sem nú er sjötíu og níu ára gamall mun sitja í fangelsi það sem hann á eftir ólífað.