Sunnudagsmessan: Eggert hefur tröllatrú á Torres

Eggert Magnússon var gestur Guðmundar Benediktssonar í Sunnudagsmessunni í gær á Stöð 2 sport. Þar ræddi Eggert um ýmislegt sem tengist ensku knattspyrnunni en Eggert var á sínum tíma stjórnarformaður West Ham á meðan liðið var í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Eggert hefur enn tröllatrú á Fernando Torres framherja Chelsea og hann er sammála ákvörðun eigenda Chelsea að ráða hinn kornunga Andre Villas Boas sem knattspyrnustjóra Chelsea.

4491
03:07

Vinsælt í flokknum Messan