Sameinaður kór hundrað barna
Sameinaður kór hundrað barna úr Fellaskóla og Hólabrekkuskóla kom fram í fyrsta sinn í Fella- og Hólakirkju í morgun. Kórinn kemur saman í tilefni Barnamenningarhátíðar og í honum svífur fjölmenningin sannarlega yfir vötnum; yfir níutíu prósent kórmeðlima eiga foreldra af erlendum uppruna.