Frambjóðendur til forseta ASÍ vilja breytingar
Styrkur Alþýðusambandsins liggur í því að mikill meirihluti vinnandi fólks á Íslandi er skráður í verkalýðsfélög sem getur með samstöðu náð árangri í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld, að mati fráfarandi forseta sambandsins. Frambjóðendur til embættisins segja tíma kominn til breytinga þar sem grasrótin verði virkjuð meira en áður.