Wolves - Chelsea 1-3
Úlfarnir brutu tvívegis af sér í eigin vítateig í fyrri hálfleik. Cole Palmer steig á vítapunktinn í bæði skipti og skoraði af miklu öryggi. Palmer var síðan aftur á ferðinni rétt fyrir hálfleik en þurfti enga vítaspyrnu þá. Chelsea sundurspilaði Úlfana og Marc Cucurella renndi boltanum út í teiginn á Palmer sem skoraði. Mjög óvænt tókst Wolves að minnka muninn í upphafi seinni hálfleiks þegar Tolu Arokodare skoraði upp úr hornspyrnu, en heimamenn voru aldrei nálægt því að skora annað mark.