Stefán Ingi: „Myndi ekki hoppa á hvað sem er“
Stefán Ingi skoraði bæði mörk Breiðabliks í 5-2 tapi gegn HK á föstudagskvöld. Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 10 mörk um þessar mundir og hefur vakið athygli erlendis. Lið frá Belgíu er í samningaviðræðum við Breiðablik með það að leiðarljósi að kaupa Stefán Inga áður en tímabilinu á Íslandi er lokið.