Asleigh Buhai í forystu eftir fyrsta hring
Opna breska meistaramótið hófst í dag en mótið er síðasta risamót ársins í kvennagolfinu, Asleigh Buhai er í forystu eftir fyrsta hring sem lauk nú síðdegis. Asleigh Buhai sem er frá Suður Afríku fór fyrsta hringinn á 65 höggum eða 7 undir pari vallarins en hún hefur aldrei á ferlinum hrósað sigri á risamóti.