Enn eykst verðbólga
Verðbólga jókst á milli mánaða, mælist 5,4 prósent í mars og hefur ekki verið hærri í næstum eitt og hálft ár. Verðbólgan var einkum drifin áfram af hærri eldsneytiskostnaði en verð á bensíni hækkaði um tæplega sex prósent milli mánaða. Fjármálaráðherra kynnti í dag fjármálaætlun næstu ára í skugga þessara tíðinda og Berghildur Erla var á kynningarfundi.