Fleiri fréttir

Starfsmönnum GM bannað að segja Chevy

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hefur bannað starfsmönnum sínum að stytta nafnið á bílategundinni Chevrolet í Chevy, líkt og mörgum Bandaríkjamönnum er tamt.

Hlutabréf BP ekki verið lægra skráð í 13 ár

Hlutabréf í olíufélaginu BP hafa haldið áfram að lækka í verði í kauphöllinni í London í morgun. Nemur lækkunin 7% og bætist hún við rúmlega 15% lækkun á markaðinum í New York í gær. Hafa hlutabréfin ekki verið lægra skráð í 13 ár.

Sakar Kínverja um hunangsþvætti í Bandaríkjunum

Bandarískur öldungardeildarþingmaður hefur ásakað kínversk stjórnvöld um hunangsþvætti, það er að Kínverjar flytji hunang sitt til Bandaríkjanna í gegnum þriðja aðila til að forðast tolla.

Kreppan dempar ekki ferðagleði Dana

Kreppan í Danmörklu hefur ekki náð að dempa ferðagleði almennings þar í landi. Nú er uppselt í nær allar sólarlandaferðir sem danskar ferðaskrifstofur bjóða upp á í ár.

BP stofnar sérstakan sjóð til að hreinsa upp eftir olíulekann

Tony Hayward forstjóri BP olíufélagsins segir að öll olían sem kemur úr borholunni sem lekur á Mexíkóflóa muni renna í sérstakan sjóð. Sjóðnum er ætlað að standa undir kostnaði við hreinsun stranda þeirra ríkja sem verst hafa orðið fyrir barðinu á lekanum.

Kjóll Díönu seldist á 36 milljónir

Einn af kjólum Díönu prinsessu af Wales var seldur nýlega á uppboði í London á 192 þúsund pund. Upphæðin samsvarar um 36 milljónum íslenskra króna. Díana klæddist kjólnum þegar hún kom í fyrsta sinn opinberlega fram eftir að hún og Karl Bretaprins höfðu opinberað ást sína. Fyrirfram var búist við því að kjóllinn yrði seldur á um 30 – 50 þúsund pund.

Eistland fær evruna sem gjaldmiðil

Fjármálaráðherrar 27 þjóða ESB hafa samþykkt að Eistland verði hluti af evrusvæðinu. Mn Eistland því taka upp evruan sem gjaldmiðil frá og með 1. janúar 2011.

Forstjóri Iceland: Eigendurnir láta okkur í friði

Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar segir að hann og aðrir stjórnarmenn Iceland eigi mjög góð samskipti við eigendur sína, það er skilanefnd Landsbankans. „Eigendurnir láta okkur algerlega í friði og það virkar mjög vel," segir Walker í samtali við blaðið Telegraph.

Danskir auðmenn rétta úr kútnum eftir kreppuna

Auðugustu viðskiptamenn Danmerkur hafa lagt kreppuna og miljarða tap að baki sér. Þetta kemur fram í úttekt sem Berlingske Tidende hefur gert og byggir á skattaframtölum þessa fólks fyrir síðasta ár.

Heimsmarkaðsverð á áli hríðfellur

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hríðfallið undanfarnar vikur og er nú komið niður í 1.857 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka saminga. Hefur verðið ekki verið lægra í ár síðan uppúr áramótum.

Verða að hraða niðurskurði

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að þau 16 ríki sem eigi aðild að myntbandalagi Evrópu verði að hraða niðurskurðaraðgerðum sinum ef fjármálamarkaðir eigi ekki tapa öllum trúverðugleika.

Belgar vilja heimsækja Ísland

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tók í morgun þátt í kynningu á vegum Útflutningsráðs og Ferðamálastofu í Brussel á stöðu ferðamála á Íslandi fyrir 30 blaðamenn og fulltrúa ferðaheildsala í Belgíu. Ráðherra ræddi einnig við fjölmiðla að lokinni kynningu.

Iceland Foods skilaði 25,5 milljarða hagnaði

Breska verslunarkeðjan Iceland Foods Group skilaði methagnaði á síðasta reikningsári sem lauk í lok mars s.l. Hagnaðurinn jókst um rúmlega 19% og nam 135,4 milljónum punda eða um 25,5 milljörðum kr. fyrir skatta.

Fréttaskýring: Ótímabærar fregnir af andláti evrunnar

Fréttirnar af andláti evrunnar eru álíka ótímabærar og fréttirnar af andláti rithöfundarins Mark Twain á sinni tíð. Þrátt fyrir að evran hafi fallið um 21% gagnvart dollaranum síðan í fyrra má benda á að hún er enn sterkari en þýska markið sem hún tók við af árið 1999.

Bretar hefja sölu á ríkiseignum með Eurostar

Bresk stjórnvöld eru að hefja sölu á ýmsum ríkiseignum til að létta á skuldabyrði hins opinbera þar í landi. Ein fyrsta eigin sem sett verður í sölu er járnbrautarleið undir Ermasundið.

Opnað fyrir inngrip ríkisins

Danska þingið samþykkti í vikunni ný lög um viðbúnað banka og ríkis fari svo að stórir bankar lendi í alvarlegum fjárhagsvandræðum. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi 1. október í haust, þegar bráðabirgðafyrirkomulag vegna heimskreppunnar rennur úr gildi.

Cameron vill hraða niðurskurði

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir mikla erfiðleika steðja að bresku efnahagslífi. Hraða verði niðurskurði hjá hinu opinbera.

Telja evruna vera í dauðateygjunum

Evran verður dauð innan fimm ára og myntsamband Evrópu er í dauðateygjunum að mati 25 hagfræðinga sem svöruðu könnun Sunday Telegraph í Bretlandi. Hagfræðingarnir eru meðal fremstu í sinni röð í fjármálalífi Bretlands. Tólf þeirra spáðu því að evran myndi ekki lifa í núverandi mynd á næsta kjörtímabili í Bretlandi, sem eru fimm ár, á móti átta sem töldu að hún myndi lifa af.

Vel gengur að örva efnahagslífið

Fjármálaráðherra 20 stærstu efnahagsvelda heims, G20-ríkjanna, segja að vel gangi að örva efnahagslífið. Ýmis teikn séu þó á lofti.

Noda nýr fjármálaráðherra Japans

Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, hefur skipað Yoshihiko Noda sem fjármálaráðherra. Hann tekur við af Kan sem tók sjálfur við embætti forsætisráðherra í fyrradag eftir að Yukio Hatoyama sagði óvænt af sér í vikunni eftir deilur um framtíð bandarísku herstöðvarinnar á eyjunni Okinawa.

Frjáls framlög í ríkissjóð leyfð

Þeir Danir sem telja sig ekki greiða nógu háa skatta hafa nú fengið lausn mála sinna. Danska ríkið hefur opnað bankareikning sem allir geta greitt inn á frjáls framlög í ríkissjóð, telji þeir sig aflögufæra.

Bilderberg klúbburinn ræðir um framtíð evrunnar

Hinn árlegi fundur Bilderberg klúbbsins verður haldinn í Barcelóna á Spáni um helgina. Þar mun meðal annars verða rætt um framtíð evrunnar sem stendur á brauðfótum í þeirri skuldakreppu sem ríkir meðal þjóðanna í suðurhluta Evrópu.

Gríðarlegur hagnaður af norsku laxeldi

Norskar laxeldisstöðvar mala nú gull sem aldrei fyrr í sögunni þökk sé því að laxeldi Chilebúa hefur ekki náð sér á strik að nýju eftir mikil vandamál með sjúkdóma.

Google gerir 25 ára mann ríkan

Google hefur keypt netfyrirtæki af hinum 25 ára gamla Nat Turner og hermt er að verðið hafi verið um 70 milljónir dollara eða um níu milljarða króna. Þetta kemur fram í frétt Business Insider.

JP Morgan fær risasekt í Bretlandi

Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur skellt risavaxinni sekt á JP Morgan Securites. Sektarupphæðin nemur 33,3 miljónum punda eða um 6,3 milljörðum kr. Í frétt um málið á BBC segir að þetta sé hæsta sekt sinnar tegundar í sögu Bretlands.

Warren Buffett til varnar Moody´s

Ofurfjárfestirinn Warren Buffett, sem er stærsti hluthafinn í matsfyrirtækinu Moody´s, kom fyrirtækinu til varnar í yfirheyrslum fyrir bandarískri þingnefnd í gærkvöldi.

Næstum hundrað bankar á hliðina

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC) tók yfir fimm banka um síðustu helgi. Þrír þeirra eru í Flórída, einn í Nevada og annar í Kaliforníu. Bankarnir höfðu lánað mikið til íbúðakaupa og fóru því illa út úr hruni á fasteignamarkaðinum.

Herra Dómsdagur vill gjaldeyrishöft

Nouriel Roubini, prófessor í hagfræði við New York-háskóla í Bandaríkjunum, segir stjórnvöld í Brasilíu verða að innleiða gjaldeyrishöft ætli þau að koma í veg fyrir gengishrun brasilíska realsins.

Græn framtíð í færeyskum farsímum

„Það er gaman að sjá íslenskt hugvit fara út fyrir landsteinana og farsíma öðlast framhaldslíf,“ segir Bjartmar Alexandersson, framkvæmdastjóri Grænnar framtíðar.

Toys R Us á hlutabréfamarkað

Eigendur bandarísku leikfangakeðjunnar Toys R Us hyggjast skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkað. Vonir standa til að með því safnist 800 milljónir dollara. Ef fram fer sem horfir verður þetta ein stærsta skráning á verslunarfyrirtæki á hlutabréfamarkað á síðustu árum, samkvæmt frétt BBC.

Evrumarkaðir öskra á gleðipillur

Óvissa um framtíð bankanna, ríkisskuldakreppan, BP, atvinnuleysið o.sv.fr. Útlitið er kolsvart á mörkuðunum í evrulöndunum.

Kostnaður BP í Mexíkóflóa kominn yfir milljarð dollara

Kostnaður breska olíufélagsins BP vegna olíulekans í Mexíkóflóa er nú kominn yfir einn milljarð dollara eða um 130 milljarð kr. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Búast má við að kostnaðurinn verði mun hærri en nemur þessari upphæð þegar upp er staðið.

Hótel í Danmörku grátt leikin af öskunni í apríl

Hótel í Danmörku voru grátt leikin af öskunni frá gosinu í Eyjafjallajökli. Ný könnun sýnir að velta þeirra minnkaði um 20% í aprílmánuði og er það rakið beint til öskunnar og þeirra truflana sem hún olli á flugsamgöngum.

Sjá næstu 50 fréttir