Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja minnka vægi dollars í alþjóðagaldeyriskerfinu Ráðamenn í ýmsum helstu nýmarkaðshagkerfum heims kalla nú eftir breytingum á alþjóðagjaldeyriskerfinu sem miða að því að minnka vægi Bandaríkjadollars sem helstu forðamyntar heims. 26.3.2009 12:23
Lögðu tæpa sex milljarða í íslensku bankana rétt fyrir hrun Í ljós er komið 7 af þeim 127 sveitar- og bæjarfélögum og opinberum stofnunum í Bretlandi sem áttu innistæður í íslensku bönkunum þar lögðu fé inn á reikninga sína eftir 30. september á síðasta ári. 26.3.2009 10:03
Uppstokkun hjá JJB Sports eftir eignasölu Íþróttavöruverslankeðjan JJB Sports hefur staðfest að búið sé að reka Chris Ronnie úr forstjórastóli keðjunnar. Jafnframt var tilkynnt að David Madeley fjármálastjóri keðjunnar myndi láta af störfum. 26.3.2009 09:32
Gengi Storebrand hrapar eftir viðræðuslit um samruna Gengi í norska tryggingarfélaginu Storebrand hrapaði um 15% í kauphöllinni í Osló í morgun eftir að félagið tilkynnti ásamt tryggingarfélaginu Gjensidige að viðræðum félaganna um samruna væri slitið í bili. 26.3.2009 09:11
Enn hækka hlutabréf í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun eftir að jákvæðar fréttir af efnahagsmálum bárust frá Bandaríkjunum, þar á meðal þær að björgunaraðgerðir Bandaríkjastjórnar væru hugsanlega farnar að bera árangur og ýta við efnahagslífinu. 26.3.2009 07:23
Goodwin á von á meiri hremmingum Hópur sem segist standa að baki árás á heimili fyrrverandi forstjóra Royal Bank of Scotland í Edinborg í nótt segir það bara byrjunina. Hann og aðrir stjórnendur breskra banka í kröggum hafi skammtað sér fé og lifi í munaði meðan venjulegt fólk þjáist og eigi því að fara í steininn. 25.3.2009 21:03
Wall Street á uppleið Helstu vísitölur á Wall Street hækkuðu í dag. Er ástæðan rakin til hækkunar verðs á fasteignum og öðrum vörum sem þykir benda til þess að nú sé að draga úr niðursveiflunni. Dow Jones hækkaði um 1,17%, S&P 500 hækkaði um 0,96% og Nasdaq hækkaði um 0,82%. 25.3.2009 20:35
Líkamsræktarstöðvar JJB Sports seldar David Whelan Gengið hefur verið frá sölu á líkamsræktarstöðvum JJB Sports til Dave Whelan sem er eigandi fótboltaliðsins Wigan Athletic. Sky News greindi frá þessu fyrir skömmu. 25.3.2009 14:01
Áformað að lækka stýrivexti í 1% í Noregi í vor Bankastjórn seðlabanka Noregs, Norges Bank, kom öllum að óvörum í morgun með því að segja að bankinn áformaði að lækka stýrivexti niður í 1% í vor. Þetta kom fram í umræðum um þá ákvörðun bankans að lækka vextina niður í 2% í dag eða um hálft prósentustig. 25.3.2009 13:55
AGS auðveldar og einfaldar lánaferli sitt Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur breytt lánareglum sínum. Nýjar reglur eiga að auðvelda lántöku og einfalda lánaferlið. 25.3.2009 12:13
Tölvupóstur um íslenskan banka kostaði Kent 500 milljónir Óopnaður tölvupóstur til sveitarstjórnarinnar í Kent í Bretlandi um slæma stöðu Heritable, dótturbanka Landsbankans, kostaði sveitarstjórnina 3 milljónir punda eða um 500 milljónir kr. 25.3.2009 10:59
Heimsmarkaðsverð á olíu aftur á niðurleið Heimsmarkaðsverð á olíu er aftur á niðurleið eftir nokkra hækkanahrinu undanfarna daga. Hæst komst verðið í rúmlega 54 dollara á tunnuna en í morgun var það komið í rétt rúmlega 53 dollara. 25.3.2009 09:28
Verður að draga úr væntingum um söluverðið á Actavis Björgólfur Thor Björgólfsson er neyddur til að draga úr væntingum sínum um söluverðið á Actavis. Upphaflega taldi Björgólfur að hann gæti gengið 7,5 milljarða evra, eða um 1.200 milljarða kr. fyrir félagið en samkvæmt frétt á Reuters eru 5 milljarðar evra raunhæfari tala í dag m.v. markaðsaðstæður. 25.3.2009 09:05
Nikkei lækkaði lítillega Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um tæplega 0,1 prósent í morgun og voru það einkum bréf hátæknifyrirtækja sem lækkuðu í verði. Bréf banka og orkufyrirtækja í Asíu hækkuðu hins vegar mörg hver. 25.3.2009 07:34
Goldman Sachs vill skila 1200 milljarða fjárveitingu frá ríkinu Forsvarsmenn Goldman Sachs sögðu í dag að þeir vonuðust til þess að 10 milljarða dala, eða tæplega 1200 milljarða króna, fjárveitingu frá ríkinu yrði skilað til baka svo fljótt sem auðið væri. Fjölmiðlar vestanhafs búast jafnvel við því að lánið verið endurgreitt í næsta mánuði. 24.3.2009 23:17
Hlutabréf lækkuðu á Wall Street Helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street lækkuðu í dag. Búist hafði verið við þessu enda varð mikil hækkun á mörkuðum i gær eftir að ríkisstjórnin hafði tilkynnt um aðgerðir til að hjálpa bönkunum. Dow Jones vísitalan lækkaði í dag um 1.49%, S&P 500 lækkaði um -2.02% og Nasdaq lækkaði um 2.44%. 24.3.2009 21:03
Aeroflot keppir við Icelandair um kaupin á CSA Rússneska flugfélagið Aeroflot ætlar sér að bjóða í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines (CSA) og mun þar keppa meðal annars við Travel Service sem er dótturfélag Icelandair í Tékklandi. 24.3.2009 15:48
Nýbúar halda fasteignamarkaði Kaupmannahafnar á floti Á vissum svæðum í Kaupmannahafnarborg eru það nýbúar sem standa á bakvið sjö af hverjum tíu fasteignakaupum. Að hluta til skýrist það af því að þeir lána hver öðrum fyrir kaupum á íbúðum eða húsum. 24.3.2009 14:33
Arabískir olíusjeikar á flótta frá Las Vegas Vellauðugir olíusjeikar frá Dubai eru nú að koma sér undan því að fjárfesta áfram í stærsta hóteli og spilavíti Las Vegas borgar. Las Vegas hefur orðið illilega fyrir barðinu á fjármálakreppunni og viðskiptin þar eru ekki nema svipur hjá sjón m.v. fyrri ár. 24.3.2009 13:17
Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr Hin mikla óvissa sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum undanfarna mánuði gerir það nú að verkum að Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr. Gullkaup Dana á fyrstu mánuðum þessa árs eru um 40% meiri en á sama tíma í fyrra. 24.3.2009 11:02
Grimsby hagnast á erfiðleikum Íslands Fisksalar í Grimsby brosa nú út að eyrum þar sem íslensk fiskiskip eru aftur byrjuð að sigla til þessarar sögufrægu hafnarborgar og selja þar afla sinn eftir 12 ára stopp. 24.3.2009 10:39
Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 54 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 54 dollara á tunnuna í gærkvöldi í kjölfarið á mikilli uppsveiflu á mörkuðunum á Wall Street. Hækkun gekk síðan aðeins til baka í morgun er verðið lá í kringum 53,80 dollara. 24.3.2009 10:10
Kröfur í þrotabú Glitnir Privatökonomi nema 700 milljónum Kröfur í þrotabú fyrrum fjármálaþjónustu Glitnis í Noregi, Glitnir Privatökonomi, nema nú yfir 40 milljónum norskra kr. eða yfir 700 milljónum kr. 24.3.2009 09:56
Facebook fyrir 20.000 sterkefnuð svín Stofnandi vefsíðunnar Affluence.org lýsir henni sjálfur sem ...“Facebook fyrir sterkefnuð svín“. Um er að ræða vefsíðu þar sem meðlimir verða að eiga a.m.k. 60 milljónir kr. í handraðanum eða vera með árslaun sem nema hátt í 40 milljónum kr. 24.3.2009 09:32
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun með aukinni trú fjárfesta á að nýjustu áætlanir Timothy Geitners, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gangi upp. 24.3.2009 08:10
Hæstu bónusarnir verða greiddir til baka Andrew Cuomo, saksóknari í New York fylki, segir að þeir fimmtán starfsmenn sem fengu hæstu bónusana frá bandaríska trygginga- og fjárfestingafélaginu AIG hafi samþykkt að skila þeim til baka. Um er að ræða 30 milljónir bandaríkjadala af þeim 165 sem félagið greiddi fyrr í þessum mánuði. 23.3.2009 23:16
Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports komin í uppnám Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports er komin í uppnám þar sem milljarðamæringurinn Mike Ashley, eigandi Newcastle United, reynir nú hvað hann getur til að koma í veg fyrir söluna til Dave Whelan sem er eigandi Wigan Athletic keppinauta Newcastle, Wigan Athletic. 23.3.2009 16:04
Innanbúðarmaður næsti bankastjóri FIH bankans Búið er að ganga frá ráðningu á nýjum bankastjóra FIH Bankans í Danmörku, en hann er í eigu Seðlabanka Íslands. Nýi bankastjórinn er Henrik Sjøgreen, 44 ára gamall innanbúðarmaður í bankanum. 23.3.2009 10:28
Sænskt félag kaupir banka af Moderna Finans Sænska félagið Scribona Nordic hefur fest kaup á Banque Invik SA af Moderna Finans sem var í eigu Milestone. Banque Invik er einn stærsti einkabanki í Lúxemborg. Það er skilanefnd Glitnis sem selt hefur bankann. 23.3.2009 09:31
Gengið frá ráðningu Singer á 35 starfsmönnum Teathers Um helgina var gengið frá ráðningu Singer Capital Markets á 35 starfsmönnum frá verðbréfamiðlunni Teathers. Við þetta tvöfaldast mannafli Singer. 23.3.2009 08:53
Hlutabréf hækka á Asíumörkuðum Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun eftir því sem trú fjárfesta jókst, á að ríkisstjórnum álfunnar takist að koma lánastarfsemi banka í eðlilegt horf með hjálparaðgerðum sínum. Í Tókýó hækkuðu bréf Mitsubishi-bankans um tæplega fimm prósent og bréf ýmissa iðnfyrirtækja í Kína hækkuðu einnig, til dæmis hækkuðu bréf Angang-stálframleiðandans þar um 3,6 prósent. 23.3.2009 07:35
Bermúda og Norðurlönd undirrita samning gegn skattsvikum Undirritaður verður samningur milli Norðurlanda og Bermúda í apríl um upplýsingaskipti vegna skattsvika og auk þess gerðir röð af viðskiptasamningum. Samningarnir um upplýsingaskipti eru liður í herferð aðilanna um að stöðva skattsvik. 20.3.2009 14:47
Þrír Íslendingar segja sig úr stjórn Aurum Holdings Þrír Íslendingar, Þau Kristín Jóhannesdóttir, Pálmi Haraldsson og Pétur Már Halldórsson hafa sagt sig úr stjórn Aurum Holdings í Bretlandi. Fjórði maðurinn, sem var í stjórninni á vegum Baugs, Andras Szirtes, er einnig horfinn á brott. 20.3.2009 13:04
Íslensk hjón í Noregi framleiða harðfiskflögur Íslensku hjónin Kristín Hafsteinsdóttir og Kristjón Bergmundsson á Sommaröy í Noregi hafa þróað og framleitt stökkar og örþunnar harðfiskflögur sem hvorki molna né lykta. 20.3.2009 12:37
Evrópski seðlabankinn byggir upp risavaxinn varasjóð Evrópski seðlabankinn (ECB) er nú að byggja upp risavaxinn varasjóð sem hægt verður að greiða úr milljarða evra á innan 24 klukkustunda ef þörf er á. 20.3.2009 11:24
Starfsmenn Wal-Mart fá 228 milljarða í bónusgreiðslur Vöruhúsakeðjan Wal-Mart í Bandaríkjunum hefur ákveðið að greiða 2 milljarða dollara eða 228 milljarða kr. í bónusgreiðslur sem skiptast jafnt milli allra starfsmanna keðjunnar. 20.3.2009 10:54
Sænsk greifynja vill milljarða frá manni sínum í skilnaðarmáli Sænska greifynjan Marie Douglas-David hefur krafið eiginmann sinn um milljarð sænskra kr. eða um 14 milljarða kr. í skilnaðarmáli þeirra til þess að geta haldið lífsstíl sínum óbreyttum að hjónabandinu loknu. 20.3.2009 10:11
Tekur fimm ár að gera upp starfsemi Straums í Danmörku Oscar Crohn forstjóri Straums í Danmörku telur að það taki um fimm ár að gera starfsemi bankans upp þar í landi og ganga frá öllum lausum endum. 20.3.2009 09:20
Singer tekur við tæplega 40 starfsmönnum Teathers Reiknað er með að samruni Singer Capital Markets og verðbréfamiðlunarinnar Teathers verði tilkynntur síðar í dag. Singer mun taka við 35 til 40 starfsmönnum Teathers við samrunann eða um helmingi starfsmanna. 20.3.2009 09:09
Bréf lækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun eftir mestu samfelldu hækkun síðan í ágúst 2007. Bankar og hátæknifyrirtæki lækkuðu mest og má sem dæmi nefna að kínverska fjarskiptafyrirtækið China Mobile lækkaði um rúmlega fjögur prósent. Eitthvað var þó um að bréf hækkuðu í verði, til dæmis bréf námufyrirtækisins Billington en þau hækkuðu um þrjú prósent. 20.3.2009 07:26
Kaupþing yfirtekur hlut Stanfords í Mulberry Kaupþing banki í Lúxemborg, dótturfyrirtæki Kaupþings á Íslandi, hefur tekið yfir 25,4% hlut Kevin Stanford í töskufyrirtækinu Mulberry. 19.3.2009 18:02
Ál og aðrir málmar í uppsveiflu á mörkuðum Ál og aðrir málmar hafa verið í töluverðri uppsveiflu á mörkuðum í dag. 19.3.2009 15:12
Nakin skortsala ein ástæðan fyrir gjaldþroti Lehman Brothers Hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir stærsta bankagjaldþrot sögunnar ef að miðlurum á Wall Strret hefði verið bannað að nota umdeildasta vopnið í búri sínu, nakta skortsölu. 19.3.2009 13:02
Teathers bjargað af fyrrum félagi Kaupþings í London Nýr eigandi að verðbréfamiðluninni Teathers verður að öllum líkindum Singer Capital Markets, félag sem var fyrrum í eigu Kaupþings, það er Singer & Friedlander bankans í London. Reiknað er með tilkynningu um málið í dag eða á morgun. 19.3.2009 10:57
Norska krónan gjaldeyrisskjól í stað dollarans og frankans Töluverð umræða er nú um það að norska krónan muni í náinni framtíð taka við af dollaranum, svissneska frankanum og japanska jeninu sem helsta gjaldeyrisskjól heimsins. 19.3.2009 10:32
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent