Fleiri fréttir

Bakkavör Group hækkar hlutafé

Hlutafé Bakkavarar Group hefur verið aukið um 23.979.203 hluti í samræmi við 3. gr. samþykkta félagsins, til að efna skuldbindingar félagsins samkvæmt breytanlegum skuldabréfum í eigu Kaupþings banka hf.

Fitch segir lánshæfishorfur Straums stöðugar

Matsfyrirtækið Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. Matsfyrirtækið gaf bankanum langtímaeinkunnina BBB-, skammtímaeinkunn F3, óháða einkunn C/D og stuðningseinkunnina 3. Horfur lánshæfiseinkunnanna eru stöðugar, að mati Fitch.

Eigum ekki að bera okkur saman við Nýsjálendinga

Landbúnaður á Nýja-Sjálandi og Íslandi er svo ólíkur að ekki er hægt að bera löndin saman. Þar var ríkisstuðningur afnuminn fyrir um aldarfjórðungi. Valdimar Einarsson, sérfræðingur frá Nýja-Sjálandi, gagnrýnir framseljanlegan ríkisstuðning.

Ekki minni halli í tólf mánuði

Halli á vöruskiptum við útlönd hefur ekki mælst minni en nú síðastliðna tólf mánuði. Sjö milljarða halli var á vöruskiptum í október miðað við 6,4 milljarða í október 2005 á föstu gengi. Nýjar tölur sem Hagstofan birti í gær sýna að í október voru fluttar út vörur fyrir 20 milljarða króna og inn fyrir 27 milljarða.

Eigendur Magasin kaupa í tískuhúsi

M-Invest, félag í eigu Baugs og Birgis Þórs Bieltvedt, hefur eignast helmingshlut í Day Birger et Mikkelsen, einu frægasta tískuhúsi Danmerkur.

Krónan kom mikið við sögu

Hagnaður HB Granda var rúmur 1,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og jókst um 160 prósent frá sama tímabili í fyrra. Uppgjörið er gott að mati Greiningar Glitnis.

Fons nærri yfirtöku

Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, á orðið 29,2 prósent í norrænu ferðaskrifstofukeðjunni Ticket og stendur því nærri þrjátíu prósenta yfirtökumörkum sem gilda fyrir skráð félög á sænska markaðnum.

Peningaskápurinn ...

Ekki er víst að fullur einhugur sé í ríkisstjórn um fyrirhugaðar tollalækkanir og afnám innflutningshafta í mars næstkomandi ef marka má orð Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra þegar hann kvaddi sér hljóðs á morgunverðarfundi Bændasamtakanna um framtíð íslensks landbúnaðar í gær. „Við skulum halda þessari umræðu áfram.

Bogi hættir hjá Icelandic Group

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group hf., hefur ákveðið að láta af störfum. Starfslok hans verða um miðjan desember.Bogi hefur gegnt starfinu frá því í júní 2004.

Erfitt að stjórna verðbólgu í litlum hagkerfum

Það er erfiðara er að hafa stjórn á verðbólgu í litlum hagkerfum líkt og á Íslandi en í stórum hagkerfum. Þetta segir í nýrri vinnuskjali sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag.

HB Grandi tapaði 1 milljarði króna

Útgerðarfélagið HB Grandi tapaði rúmum einum milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður félagsins á þriðja fjórðunig ársins nam hins vegar rúmum 1,5 milljörðum króna samanborið við 585 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra.

Fitch staðfestir lánshæfi LÍ

Lánshæfimatsfyrirtækið Fitch hefur í kjölfar árvissrar skoðunar staðfest óbreyttar lánshæfimatseinkunnir Landsbankans.

Finna fyrir erlendum áhuga á Icelandair

Útboði á hlutafé í eignarhaldsfélagi Icelandair lýkur á mánudag. Starfsmönnum, almenningi og fagfjárfestum býðst að kaupa fyrir tæpa fimm milljarða króna.

Exista undir útboðsgengi

Gengi hlutabréfa í Existu hefur verið að lækka að undanförnu. Nú er svo komið að gengið er komið undir 21,5 sem var útboðsgengi við sölu á hlutafé í eigu Kaupþings. Hluturinn stóð í 21 krónu í gær. Helsta sýnilega ástæðan fyrir þessari lækkun er lækkandi virði eignarhlutar Existu í Kaupþingi.

Minni vöxtur í jólaverslun í ár

Gert er ráð fyrir minni vexti í smásöluverslun um jólin en í fyrra og árið á undan. Rannsóknasetur verslunarinnar við háskólann á Bifröst segir um metár að ræða bæði árin á undan en líkur séu á að metið verði ekki slegið nú um jólin. Vöxturinn er sambærilegur og í Svíþjóð.

Framkvæmdastjórinn er hættur að fara heim klukkan fjögur

Á nokkrum mánuðum hafa stjórnendur Fons umbylt rekstri sænsku ferðaskrifstofukeðjunnar Ticket og skilaði félagið nýverið mesta hagnaði í sextán ára sögu þess. Stjórnendur félagsins ætla sér að búa til stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Skandinavíu með

Hannes Smárason kaupir í Sparisjóði Hafnarfjarðar

Fjárfestingarfélagið Prímus, sem er í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, er komið í hóp stofnfjáreigenda í SPH. Hann mun hafa keypt stofnfjárhlutina af SPV sem seldi bréfin vegna fyrirhugaðs samruna við SPH. Við sameiningu sparisjóðanna hefði SPV orðið að færa bréfin á nafnvirði sem hefði rýrt eignarhlutinn allverulega, enda mjög hátt yfirverð á stofnfjárhlutum í SPH.

Átján þúsund í hagnaðarlausa geiranum

Vísbendingar eru um að hér nemi velta svonefnds félagshagkerfis um 47 prósentum af landsframleiðslu. Frá þessu er greint í nýju riti, Félagshagkerfið á Íslandi, eftir dr. Ívar Jónsson, prófessor við Háskólann á Bifröst.

Rafræn skráning innherja

Rafræn skránin og umsýsla innherjalista fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands tekur gildi næstkomandi mánudag.

Minnkandi væntingar

Brúnin hefur þyngst á neytendum undanfarnar vikur ef marka má væntingavísitölu Gallup fyrir nóvember. Væntingavísitala Gallup mælist nú 118,6 stig og lækkar úr 136,2 stigum frá því í október. Um 44 prósent neytenda telja efnahagsástandið gott en 17 prósent þeirra telja það hins vegar slæmt.

Gaman að teika

Þessi pistill er ekki við hæfi barna og gjalda ber varhug við þeim glæfrum sem í honum er lýst. Ég ætla að gera játningu.

Hafa lokið þéttingu nets

Vodafone hefur lokið við að fjölga GSM-sendum og þétta kerfi sitt víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðina segir fyrirtækið til komna vegna síaukinnar notkunar í símkerfi fyrirtækisins.

Styrmir í stjórn SPH/SPV

Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingarbanka, tekur sæti í nýrri stjórn sameinaðs sparisjóðs SPV og SPH samþykki stofnfjáreigendur samrunatillögur stjórna sparisjóðanna. Önnur framboð, sem hafa borist, eru frá Jóni Þorsteini Jónssyni, núverandi stjórnarformanni SPV, Agli Ágústssyni, framkvæmdastjóra Íslensk-Ameríska, Magnúsi Ármann og Matthíasi Páli Imsland.

Íslendingarnir hleyptu miklu lífi í félagið

Lennart Käll tók við forstjórastarfinu hjá Ticket fyrir þremur og hálfu ári, en hann starfaði áður á fjármálamarkaði. Breytingar þær sem urðu á eignarhaldi og stjórnun félagsins með innkomu Fons styrktu fyrirtækið og hleyptu miklu lífi inn í æðstu stjórn fyrirtæksins.

HugurAx kaupir Mekkanis

HugurAx hefur keypt Mekkanis hugbúnaðarstofu. Eigendur fyrirtækjanna skrifuðu undir samning þess efnis fyrir stuttu og verða félögin sameinuð í framhaldinu.

Verður allt að vopni

Fjárfestum í Icelandair verður margt að vopni þessa dagana. Frá því að gengið var frá kaupum á félaginu hafa ýmsir liðir þróast í hagstæða átt.

Sakaðir um samráð

Framleiðendur appelsínusafa í Brasilíu eiga yfir höfði sér ákæru frá appelsínuræktendum, sem segja að þeir hafi átt með sér samráð um verð á appelsínusafa.

Engan leka takk fyrir

Viðskiptatímaritið Economist er frægt fyrir að leggja mikið upp úr því að hafa skemmtilegar fyrirsagnir á greinum sínum. Blaðinu er dreift um heim allan og hefur því efni á að leyfa sér að halda úti sérstöku teymi fyrirsagnasmiða sem sagan segir að geri lítið annað en að upphugsa eitthvað skemmtilegt.

Verð á fiski úr methæðum

Tæp 2.100 tonn af fiski seldust á mörkuðum landsins í síðustu viku, sem er rúmlega tvöfalt meira magn en vikuna á undan. Meðalverðið var 170,46 krónur á kíló sem er 8 prósenta lækkun á milli vikna. Verðið er engu að síður hátt enda stóð fiskverð í hámarki í síðustu viku.

Forstjóri Dressmann klæðist bara Batistini

„Gengurðu sjálfur í Batistini?“ var fyrsta spurningin sem hrökk af vörum blaðakonu þegar hún hitti forstjóra Dressmann. Vörumerkið verður enda að eilífu greypt í huga hennar, eins og annarra sem hafa séð Dressmann-auglýsingarnar, þar sem ofursvalir miðaldra súkkulaðimenn ganga öruggir um í Batistini-jakkafötum. „Aldrei í öðru,“ segir hann og flettir jakkanum frá því til sönnunar.

Fitch stafestir lánshæfiseinkunnir Landsbankans

Lánshæfimatsfyrirtækið Fitch staðfesti í kjölfar árlegrar skoðunar í dag óbreyttar lánshæfimatseinkunir Landsbankans. Lánshæfimatseinkun fyrir langtímaskuldbindingar er A, skammtímaeinkun er F1, Stuðningur 2 og fjárhagslegur styrkur er B/C. Horfur lánshæfimatsins eru stöðugar, samkvæmt Fitch.

Dregur úr væntingum neytenda

Dregið hefur úr tiltrú neytenda síðustu vikurnar ef marka má Væntingavísitölu Gallup fyrir nóvember sem birt var í morgun. Almennt eru neytendur mjög jákvæðir gagnvart efnahagslífinu, en þó eru þeir aðeins fleiri um þessar mundir sem telja að ástandið muni versna en hinir sem telja að það muni batna.

HugurAx kaupir Mekkanis hugbúnaðarstofu

Eigendur Mekkanis hugbúnaðarstofu og HugurAx undirrituðu nýverið samning um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Mekkanis. Í framhaldi af þessu verða félögin tvö sameinuð.

Hlutafjárútboð Icelandair hafið

Almennt hlutafjárútboð í Icelandair Group Holding hófst í gær. Alls eru í boði 4.995 milljónir króna að markaðsverði á genginu 27 krónur á hlut.

Teymi semur við Kaupþing

Upplýsingatækni- og fjarskiptafyrirtækið Teymi hefur samið við Kaupþing banka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands í síðustu viku, en starfsemi þess var áður hluti af Dagsbrún.

Bati á fasteignamarkaði

Greiningardeild Landsbankans segir auknar vísbendingar komið fram á síðustu vikum um að fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir samdrátt lengst af á þessu ári. Vísbendingarnar eru þó fremur veikar.

Hlutafjárútboð í Icelandair hefst í dag

Almennt hlutafjárútboð í Icelandair Group Holding hf. hefst í dag. Í boði til almennings eru hlutabréf í félaginu fyrir einn milljarð króna að markaðsvirði á genginu 27 krónur á hlut.

Peningaskápurinn ...

Stærstu hluthafarnir í HB Granda týna tölunni hver á fætur öðrum. Nú hafa Vátryggingafélag Íslands, Lífís og Samvinnulífeyrissjóðurinn horfið á braut eftir að félögin seldu hlutabréf sín í þessu stærsta útgerðarfélagi landsins, ef mælt er í kvóta.

Tryggvi Þór Herbertsson ráðinn bankastjóri

Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn bankastjóri nýs fjárfestingabanka sem taka mun til starfa í byrjun næsta árs. Að bankanum standa meðal annars Sjóvá fjárfestingar, fasteignafélagið AVP og Ráðgjöf og efnahagsspá.

Peningaskápurinn...

„Þeir börðust við okkur um þorskinn og nú eru þeir að taka yfir verslunargöturnar, tónlistarvinsældarlistana, sjónvarpsskjáina og jafnvel fótboltafélögin okkar." Þannig hefst löng og ítarleg grein sem birtist í vefútgáfu The Independent í gær þar sem rakið er hvernig Íslendingar hafa skotið upp kollinum á ýmsum sviðum bresks þjóðlífs á undanförnum árum.

Sparisjóðabankanum breytt í Icebank

Sparisjóðabanki Íslands hefur fengið nýtt nafn og mun eftirleiðis heita Icebank. Stefnt er að því að fá nýja hluthafa að bankanum og skrá hlutbréf hans í Kauphöll Íslands.

Straumur-Burðarás gefur út skuldabréf

Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur gefið út 200 milljóna evra skuldabréf á alþjóðlegum lánamarkaði. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að lánveitingin muni styrkja þátttöku bankans á alþjóðlegum sambankalánamarkaði og sé mikilvægur áfangi í að auka enn frekar hlutdeild vaxtaberandi eigna og vaxtatekna bankans.

Glitnir spáir 7 prósenta verðbólgu

Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,1 prósent á milli nóvember og desember. Gangi spáin eftir lækkar verðbólga úr 7,3 prósentum í 7,0 prósent í desember.

Sjá næstu 50 fréttir