Fleiri fréttir

Mikil auking á markaðsvirði félaga

Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur aukist um 58,3 milljarða króna fyrstu fjóra daga ágústmánaðar. Þetta kemur fram í <em>Hálffimmfréttum</em> KB banka í dag. Samtals hefur því markaðsvirði félaganna aukist um 436 milljarða króna á árinu. Samanlagt markaðsvirði félaganna í Kauphöllinni stóð í um 1.520 milljörðum króna í lok dagsins.

Lánshæfismat ríkissjóðs óbreytt

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að mat þess á lánshæfi ríkssjóðs sé óbreytt. Lánshæfieinkunn ríkissjóðs gagnvart erlendum skuldum er því enn AA- og AAA gagnvart skuldum í innlendri mynt.

Orlof sé fyrir almenna starfsmenn

Framkvæmdastjóri KEA hefur sagt starfi sínu lausu. Hann bað um að fá að fara í fæðingarorlof en stjórn KEA var því mótfallin. Stjórnarformaður KEA telur að lög um fæðingarorlof hafi fyrst og fremst verið sett til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna.

I-Holding yfirtekur ILLUM vöruhúsið í Kaupmannahöfn

Hópur íslenskra fjárfesta, I-Holding ehf., hefur gengið frá kaupum á 80% hlut í ILLUM vöruhúsinu í Danmörku ásamt fasteignininni sem hýsir reksturinn af Merrill Lynch International Global Principal Investment.

Dagsbrún móðurfélag 365 miðla

Og fjarskipti hf. ráðgera að nýtt skipulag samstæðunnar muni taka gildi 1. október nk. Hið nýja nafn samstæðunnar mun verða Dagsbrún hf. Fjarskiptarekstri félagsins verður komið fyrir í dótturfélaginu Og fjarskipti (Og Vodafone) sem heyra mun undir móðurfélagið ásamt 365 prentmiðlum ehf. og 365 ljósvakamiðlar ehf.

Danir hljóma gramir

Baugur, Straumur og fyrirtæki í eigu Birgis Þórs Bieltvedts hafa keypt stórverslunina Illum við Strikið í Kaupmannahöfn en sami hópur keypti nýverið Magasin du Nord þar í borg. Dönsk blöð greina frá þessum viðskiptum með ítarlegum hætti í morgun og er ekki laust við að úr textanum megi lesa að Dönum þyki berin súr.

Þjónustugjöld ekki felld niður

Ekki er líklegt að þjónustugjöld bankanna verði felld niður í bráð eins og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lagði til í gær. Bankarnir skiluðu allir methagnaði á fyrri hluta ársins, samtals um 54 milljörðum króna.

855 milljóna tap deCode

Tap deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, nam 855 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs og var óbreytt frá sama tímabili í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins nam tap félagsins tæpum tveimur milljörðum króna en stjórnendur fyrirtækisins segja aukin útgjöld vegna lyfjaþróunarverkefna ástæðuna fyrir tapinu.

Skoða uppskipti Burðaráss

Bæði Fjármálaeftirlitið og yfirtökunefnd munu skoða uppskipti Burðaráss á milli Landsbankans og Straums fjárfestingabanka.

Friðrik keypti 52% í Tölvumyndum

Friðrik Jóhannsson, fráfarandi forstjóri Burðaráss, hefur keypt 52 prósenta hlut í Tölvumyndum, 41 prósent af Burðarási og 11 prósent af dótturfélagi Straums. Burðarási verður skipt milli Straums og Landsbankans. Friðrik vildi ekki staðfesta þessar upplýsingar þegar Stöð 2 sagði fréttina í gær en staðfestir þær hins vegar í dag.

Forstöðumaður KB hyggst kæra

Ingvar Vilhjálmsson, forstöðumaður KB banka, hyggst kæra álagningu skatta hvað sig varðar en samkvæmt opinberum álagningarskrám er hann ígildi fimmtíu og sjö bankagjaldkera. Gjaldkerarnir hafa að meðaltali 170 þúsund krónur á mánuði en forstöðumaðurinn rúmar 9,3 milljónir, ef trúa má álagningarskránum.

Amide kaupir þrjú samheitalyf

Actavis Group tilkynnti í dag að dótturfélag þess, Amide Pharmaceuticals Inc., hafi keypt þrjú samheitalyf af Sandoz, dótturfyrirtæki lyfjafyrirtækisins Novartis AG’s. Búist er við að árlegar sölutekjur af lyfjunum nemi um 4-5 milljónum Bandaríkjadala.

Aðeins 3 konur á meðal 100 efstu

Í hópi eitt hundrað forstjóra íslenskra fyrirtækja, sem hafa yfir eina milljón króna í laun á mánuði, eru aðeins þrjár konur. Konur eru lægra metnar til launa og það hefur ekkert breyst, segir hagfræðingur ASÍ.

Geta aukið útlán um billjón

Íslenskir bankar geta aukið útlán um allt að þúsund milljarða eða eina billjón króna. Seðlabankinn býst við áframhaldandi stöðugleika þrátt fyrir sterkari lánastöðu bankanna.

Baugur kaupir matvælafyrirtæki

Baugur Group og Talden Holding hafa keypt matvælafyrirtækið Woodward Foodservice af Giant Bidco sem yfirtók Big Food Group fyrr á þessu ári. Kaupin eru gerð í samvinnu við stjórnendur Woodward. Lloyds TSB bankinn fjármagnar kaupin.

Eigið fé verður 100 milljarðar

Að lokinni sameiningu Burðaráss við Landsbankann annars vegar og Straum Fjárfestingarbanka hins vegar verður eigið fé Landsbankans tæplega 100 milljarðar króna og eigið fé fjárfestingabankans sem hljóta mun nafnið Straumur – Burðarás Fjárfestingabanki hf. verður rúmlega 100 milljarðar króna.

Friðrik Jóhannsson fjárfestir

Friðrik Jóhannsson, fráfarandi forstjóri Burðaráss, hefur keypt fimmtíu og tveggja prósenta hlut í Tölvumyndum. Sjálfur vildi Friðrik ekki staðfesta þessar upplýsingar, sem fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimildum. Þetta kemur í kjölfar sameiningar Landsbankans, Burðaráss og Straums.

Skipta Burðarási á milli sín

Eignum Burðaráss verður skipt á milli Landsbanka Íslands og Straums fjárfestingarbanka . Unnið var að útfærslu á skiptingunni um helgina og var tillaga um þetta efni lögð fyrir stjórnir félaganna í gærkvöld. Burðarás verður því ekki rekinn áfram í óbreyttri mynd heldur yfirtekur Straumur félagið.

Síminn seldur á tæpa 67 milljarða

Þrjú tilboð bárust í símann - öll frá innlendum fjárfestum. Forsætisráðherra segir söluna styrkja stöðu ríkissjóðs. Hægt verði að ráðast í verkefni á sviði velferðar- og samgöngumála.

Kaupa breska verslanakeðju

Baugur og Kaupþing banki hafa keypt bresku tískuverslanakeðjuna Jane Norman fyrir 117 milljónir punda, eða rúmlega þrettán milljarða íslenskra króna. Fyrirtækið rekur þrjátíu og níu verslanir og fimmtíu og sex sérleyfisverslanir í Bretlandi og á Írlandi.

Frosti skattakóngur Íslands

Skattakóngur Íslands er Frosti Bergsson í Reykjavík sem greiðir 123 milljónir króna í opinber gjöld. Greinilegt er að það er mikill munur á tekjum eftir landshlutum.

Methalli á vöruskiptum landsmanna

Methalli var á vöruskiptum landsmanna í júní og nam hallinn 10,2 milljörðum. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam halli á vöruskiptum landsmanna 34,3 milljörðum samanborið við halla upp á 13,2 milljarða á sama tíma í fyrra.

Eimskip kaupir í Færeyjum

Eimskip hefur keypt flutningafyrirtækið Heri Thomsen í Færeyjum, en fyrirtækið rekur rúmlega þrjátíu flutningabíla og þrjú flutningaskip. Tvö þeirra eru stórflutningaskip. Félagið á einnig nýja tvö þúsund fermetra vöruskemmu í Runavík.

Hagnaður KB banka 24,7 milljarðar

Hagnaður KB banka eftir skatta nam 24,7 milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs sem er 280 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Ef aðeins er litið til annars ársfjórðungs, er aukningin enn meiri eða 292 prósent.

Tilboð opnuð í dag

Tilboð í Símann verða opnuð klukkan eitt í dag og ef til vill aftur síðar í dag, ef einhver tilboðsgjafi hækkar boð sitt. Það geta þeir gert ef þeir eru innan við fimm prósent undir boði næsta bjóðanda.

Össur fjárfestir í Bandaríkjunum

Össur hf. hefur keypt bandaríska fyrirtækið Royce Medical Holding fyrir fjórtán milljarða króna. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á stuðningstækja á borð við hálskraga og spelkur.

Gríðarlegur hagnaður bankanna

Hagnaður KB banka eftir skatta nam tuttugu og fjórum komma sjö milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs, sem er 280 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Bankinn er nú kominn í hóp tvö hundruð stærstu banka heims.

Actavis fjárfestir í Bandaríkjunum

Lyfjafyrirtækið Actavis hefur keypt bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide Pharmaceuticals fyrir rösklega 3,2 milljaðra króna. Í tilkynningu frá Actavis segir að með kaupunum verði Actavis kleift að markaðssetja lyf sín á bandaríska markaðnum og til samans verða fyrirtækin með um 500 lyf á markaðnum. Amide stefnir að því að setja tíu ný lyf á markaðinn innan tíðar.

Hagnaður TM undir væntingum

Í greinargerð frá KB banka kemur fram að hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar á öðrum ársfjórðungi nam 1.449 m.kr. og var því nokkuð undir væntingum Greiningardeildar um tveggja milljarða kr. hagnað.

Sáttir við verðið

Rúmir sextíu og sex milljarðar fást fyrir Landssímann. Skipti ehf. sem er að mestu í eigu bræðranna í Bakkavör og KB banka átti hæsta tilboðið. Tilboðin voru opnuð á Nordica hóteli í dag. Skrifað verður undir samninga í næstu viku að óbreyttu. Alls uppfylltu tólf hópar með samtals þrjátíu og fimm fjárfestum skilyrði nefndarinnar um að mega bjóða í Símann. Þrír hópar buðu.

KB banki stærri en Ísland

KB banki er orðinn stærri en Ísland. Eignir bankans eru nú meiri en framtaldar eignir allra heimila í landinu. Hagnaður bankans nam tæpum 25 milljörðum króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins, sem er meira en samanlagður hagnaður hinna bankanna.

Hagnast um þrjá milljarða á viku

Hagnaður fjármálafyrirtækjanna fimm voru tæpir 80 milljarðar á fyrstu sex mánuðum ársins og hefur hagnaður fyrirtækjanna aldrei verið meira. Á sama tíma í fyrra högnuðust fjármálafyrirtækin um samtals 11 milljarða króna. KB banki hagnast mest eða um tæpa 25 milljarða króna. Burðarás kemur næstur með 24,5 milljarða króna hagnað.

Besti fjórðungur í sögu Íslandsbanka

Íslandsbanki hagnaðist um 7.519 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi eftir skatta og er þetta methagnaður í sögu bankans að sögn Bjarna Ármannsonar, forstjóra. Til samanburðar nam hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi í fyrra 2.469 milljónum króna. Hagnaður Íslandsbanka fyrstu sex mánuði ársins nemur nú 10.557 milljónum króna eftir skatta og er arðsemi eigin fjár 37%.

Lokasprettur í sölu Símans

Komið er að lokasprettinum í sölu Símans. Að viðstöddum bjóðendum og fjölmiðlum ætlar einkavæðinganefnd að opna umslög með tilboðsfjárhæðum bjóðenda á fimmtudaginn. Eftir að tilboð hafa verið opnuð verður öllum þeim sem eru innan við fimm prósent frá hæstbjóðenda gefinn kostur á að hækka tilboð sín.

Tekur lán upp á 47 milljarða

Actavis hefur lokið lánasamningi vegna sambankaláns að upphæð 600 milljónir evra eða um 47 milljarða króna og er lánið til fimm ára. Lánið var tekið í tengslum við fjármögnun Actavis á kaupum á bandaríska lyfjafyrirtækinu Amide Pharmaceutical.

Hærri vextir á sumarhúsalánum

Vextir á lánum til kaupa á sumarhúsum eru hærri en á lánum til annarra fasteignaviðskipta. Útibússtjóri Landsbankans segir óeðlilegt að slík lán njóti sömu kjara og lán til íbúðarkaupa.

Methagnaður Burðaráss

Burðarás stefnir að frekari erlendum fjárfestingum í framtíðinni segir forstjóri félagsins. Burðarás hagnaðist um 20 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Ekkert félag í Íslensku kauphöllinni hefur nokkurn tíma hagnast jafnmikið á svo stuttum tíma.

Fasteignaverð að hækka eða lækka?

Fasteignaeigendur fá misvísandi upplýsingar um hvort verð eigna þeirra fari lækkandi. Bankarnir spá lækkun en fasteignasalar segja það af og frá.

Úrvalsvísitalan í sögulegu hámarki

Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og endaði í tvö þúsund tvö hundruð og fjórtán stigum, sem er hæsta gildi í sögu vísitölunnar. Talsverð viðskipti voru í Kauphöllinni í gær þannig að þessi hækkun verður ekki rakin til þess að gengi í einhverju einu fyrirtæki hafi rokið upp og valdið hækkuninni.

Aflaverðmæti eykst

Aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum hefur aukist um 1 milljarð króna eða 4,1% frá síðasta ári en á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2005 nam aflaverðmætið 25,9 milljörðum króna samanborið við 24,9 milljarða á sama tímabili 2004.

Borgin selur hlut í Vélamiðstöð

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að ganga til viðræðna við Íslenska gámafélagið um kaup á hluta Reykjavíkurborgar í Vélamiðstöðinni ehf. Fundað verður næstu daga og takist samningar er stefnt er að því að ljúka viðræðum um mánaðarmótin.

Hækkun á ábyrgð Íbúðalánasjóðs

Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði í þættinum Ísland í dag, á Stöð tvö í gærkvöldi, að hann teldi að Íbúðalánasjóður ætti að stöðva lánveitingar til bankanna á meðan á úttekt Ríkisendurskoðunar stæði. Það væri hins vegar ekki í hans valdi að taka þá ákvörðun. 

Skylda að sinna landbúnaði

Þeir sem bjóða í Lánasjóð landbúnaðarins verða að lofa að sinna landbúnaðinum sérstaklega. Einkavæðingarnefnd annast söluna á eignum sjóðsins og yfirtöku helstu skulda hans.

Persónugerð debetkort

Félögum í XY-klúbbi Íslandsbanka, sem eru á aldrinum 12 til 15 ára, stendur til boða að fá persónugerð debetkort hjá Íslandsbanka. Í því felst að þeir geta hannað kortin sjálfir með myndum úr eigin safni eða úr myndabanka. Til stendur að bjóða öðrum viðskiptavinum bankans upp á þennan möguleika fljótlega.

Methagnaður hjá Burðarási

Hagnaður Burðaráss var 24,5 milljarðar á fyrstu sex mánuðum ársins en félagið hagnaðist um tæpa 20 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Aldrei fyrr hefur félag í Kauphöllinni hagnast um jafn mikið á þremur mánuðum.

Sjá næstu 50 fréttir