Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutabréf hækkuðu töluvert Hlutabréf hækkuðu töluvert í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,21% og er nú 3.037 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf Actavis sem hækkuðu um 2,2%. 13.7.2004 00:01
Vilja meiri áherslu á þjónustu Í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu er bent á að á undanförnum árum hefur fjölda fólks sem starfar í verslun og þjónustu fjölgað hratt. Samtímis hefur hlutfall þeirra sem vinna í frumframleiðslugreinum og iðnaði lækkað. 12.7.2004 00:01
Úrvalsvísitalan yfir 3000 stig Úrvalsvísitalan rauf 3.000 stiga múrinn rétt fyrir lokun markaða í dag. Vísitalan endaði í 3000,99 stigum og nam hækkun dagsins 0,4%. Að öðru leyti var dagurinn tíðindalítill á hlutabréfamarkaði samkvæmt greiningardeild Landsbankans. Viðskipti dagsins námu 423 milljónum króna. 12.7.2004 00:01
Útboð vegna eldsneytiskaupa Fyrir dyrum stendur fyrsta útboð Ríkiskaupa vegna kaupa á eldsneyti og olíum til handa Landhelgisgæslunni og Hafrannsóknastofnuninni samkvæmt rammasamningakerfi ríkisins. Þessi útgjaldaliður hefur reynst einna kostnaðarsamastur ríkisfyrirtækjanna enda olíu- og bensínverð há hér á landi. 12.7.2004 00:01
Verðhjöðnun en væntingar óbreyttar Vísitala neysluverðs lækkaði um hálft prósent í júlí. Útsölur voru snemma á ferð eins og í fyrra. Breytingar á húsnæðislánum vinna á móti hækkun markaðsverðs húsnæðis. Ánægjulegt segja sérfræðingar en breytir ekki mati á verðbólguþróun á næstunni. 12.7.2004 00:01
Greiningardeildir fara varlega Úrvalsvísitalan hefur hækkað um fjörtíu prósent frá áramótum og mikið líf er í hlutabréfamarkaðnum. Greiningardeildirnar eru þó varkárar og leggja áherslu á getu fyrirtækja til að skapa hagnað fremur en væntingar um framtíðina. 11.7.2004 00:01
Úrbóta vant á öllum sviðum Framkvæmd viðbótarlána er almennt sögð hafa gengið vel frá því lög um þau tóku gildi fyrir fimm árum, en þó er komið með tillögur til úrbóta á nánast öllum þáttum lánanna í áliti nefndar sem félagsmálaráðherra skipaði í febrúar 2003. Viðbótarlánin eru sögð hafa þjónað mörgum fjölskyldum og einstaklingum, en mikill og ör vöxtur hafi verið í þróun slíkra lánveitinga. 10.7.2004 00:01
Líflausasti dagurinn í tvö ár Gærdagurinn var líflausasti dagur á gjaldeyrismarkaði í tæp tvö ár eða síðan 28. ágúst 2002. Engin viðskipti voru gerð á millibankamarkaði með gjaldeyri ef frá eru talin ein viðskipti Seðlabankans um morguninn sem voru liður í reglulegum gjaldeyriskaupum bankans. Þetta kemur fram í „Morgunkorni“ Íslandsbanka. 8.7.2004 00:01
Afkoma lífeyrissjóðanna batnar Afkoma lífeyrissjóða breyttist mjög til hins betra í fyrra eftir þrjú erfið ár þar á undan og nálgaðist raunávöxtun þeirra metið frá árinu 1999. 8.7.2004 00:01
Lítil hætta á verðbólguhækkun Greiningardeild Landsbankans telur að miðað við núverandi stöðu efnahagsmála sé óveruleg hætta á að verðbólgan fari úr böndunum. Bent er á að Seðlabankinn hafi nú þegar aukið peningalegt aðhald og segir Landsbankinn mikilvægt að þeirri stefnu verði viðhaldið. 8.7.2004 00:01
Góð ávöxtun lífeyrissjóða Raunávöxtun lífeyrissjóðanna á Ísland var 11,3 prósent á árinu 2003 að því að fram kemur í frétt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. 8.7.2004 00:01
Ríkið gæti að stöðugleika Greiningardeild Landsbankans telur "að miðað við núverandi stöðu efnhagsmála sé hættan á að verðbólgan fari úr böndum óveruleg." Þetta kemur fram í sérriti Landsbankans um efnahagsmál. Greiningardeildin áréttar hins vegar hlutverk ríkisins við að halda stöðugleika. 8.7.2004 00:01
Lítil áhrif hlutafjárútboðs KB Hlutafjárútboð KB banka upp á fjörutíu milljarða króna hefur lítil áhrif á hugsanlega sölu Símans, að mati forstöðumanns greiningardeildar Landsbankans. Sérfræðingar segja að fjárfestingarfélög hér á landi eigi nóg lausafé. 8.7.2004 00:01
Fjárlagagerð á hefðbundnu róli Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir ekki ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af þróun verðbólgu og engar sérstakar viðbótaraðgerðir fyrirhugaðar á næstu fjárlögum vegna hennar. "Fjárlagagerð er á hefðbundnu róli og í ágætu horfi miðað við árstíma," sagði Geir. 7.7.2004 00:01
Actavis í FTSE Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans á þriðjudag segir frá því að væntanleg skráning íslenska lyfjafyrirtækisins Actavis (áður Pharmaco) hafi verið til umfjöllunar á vefsíðu breska dagblaðsins The Times. 7.7.2004 00:01
Sterk sýn lykill að vexti KB banki er orðið langstærsta fyrirtæki landsins. Markaðsverðmætið er tæplega 200 milljarðar - um fjórðungur af landsframleiðslu Íslands. Ljóst er að frumkvöðlaandinn innan gamla Kaupþings hefur fengið nýja vængi eftir sameininguna við Búnaðarbankann árið 2003. Stjórnunarsérfræðingur segir skýra framtíðarsýn lykil að vexti félagsins. </font /></b /> 7.7.2004 00:01
Hlutafé KB banka hækkað Hlutafé í KB banka verður hækkað um allt að 1,1 milljarð króna að nafnvirði með áskrift allt að 110 milljónum nýrra hluta. Þetta var tillaga stjórnar bankans sem samþykkt var á hluthafafundi Kaupþings Búnaðarbanka í gær. 6.7.2004 00:01
Sæplast gerir stóran samning Sæplast hefur gert einn stærsta sölusamning sinn til þessa við þýskt fiskvinnslufyrirtæki. Euro-Baltic Fischverarbeitungs á þýsku eyjunni Rügen í Eystrasalti, hefur gert samning um kaup á 3.000 kerum, sem verða framleidd í verksmiðju Sæplasts á Dalvík. 5.7.2004 00:01
Stýrivaxtahækkun skammgóður vermir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segist óttast áframhaldandi verðbólgu og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda til að draga úr spennu í hagkerfinu. 5.7.2004 00:01
Kári heimilar sölu í deCode Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur gefið verðbréfamiðlurum heimild til að selja allt að 12 prósentum af eignarhlut sínum í fyrirtækinu. Verðmæti viðskiptanna gætu numið 250 milljónum króna eða meira.<font size="2"></font> 3.7.2004 00:01
Vaxtahækkunin meiri en spáð var Vaxtahækkun Seðlabankans í gær var talsvert meiri en greiningardeildir bankanna bjuggust við. Aðrir vextir hafa snarhækkað í morgun í kjölfarið og krónan styrkst. Ingólfur Bender hjá Íslandsbanka reiknar með enn frekari vaxtahækkunum Seðlabankans. 2.7.2004 00:01
Björgólfur Thor í stjórn BTC Björgólfur Thor Björgólfsson var kjörinn í stjórn Bulgarian Telecommunication Corporation á aðalfundi félagsins síðastliðinn þriðjudag. Björgólfur Thor var ásamt alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Advent International stærsti fjárfestirinn í kaupum á 65% hlut í BTC. 1.7.2004 00:01
Kaupfélag ásælist sparisjóð Mikil ólga er í Skagafirði vegna þess að Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri hefur verið neyddur til að segja upp störfum. Þetta er talið vera þáttur í valdabaráttu sem átt hefur sér stað um Sparisjóð Hólahrepps þar sem Kaupfélag Skagfirðinga hefur leynt og ljóst stefnt að yfirráðum. </font /></b /> 30.6.2004 00:01
Þorlákur Karlsson til HR Þorlákur Karlsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann tekur við af Agnari Hanssyni, sem hefur verið forseti deildarinnar síðastliðin fimm ár. Þorlákur tekur við starfinu fyrsta ágúst, næstkomandi. 30.6.2004 00:01
Með næstbestu ávöxtun í Evrópu Icelandic Equity sjóðurinn hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Evrópu, með 18,6 prósenta ávöxtun á öðrum ársfjórðungi þessa árs, að því er fram kemur í viðskiptafréttum Bloomberg.com. Litið var til gengis allra sjóða í Evrópu á tímabilinu 31. mars til 22. júní. 30.6.2004 00:01
Rafveita Selfossveitna seld Hitaveita Suðurnesja hefur keypt rafveituhluta Selfossveitna fyrir 615 milljónir króna. Rúmar 400 milljónir verða greiddar með peningum en rúmar 200 milljónir verða greiddar með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Verðlag á veitusvæði Selfossveitna lækkar um 10% þegar salan hefur gengið í gegn eða frá og með 1. september. 30.6.2004 00:01
Væntingavísitalan lækkar enn Væntingavísitala landsmanna hefur ekki verið lægri síðan í desember 2003 samkvæmt mælingu Gallup í júnímánuði og birt var í dag. Gildi vísitölunnar mældist 104,7 og lækkar því um 5,2% á milli mánaða. 29.6.2004 00:01
Tveggja milljarða tap á ríkissjóði Heildartekjur ríkissjóðs námu tæpum 67 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt Hagstofu Íslands, sem birtir nú í fyrsta sinn samandregið talnaefni yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á rekstrargrunni innan ársins, en ekki eingöngu árstölur eins og verið hefur. 29.6.2004 00:01
Íslenska hagkerfið í 5. sæti Ísland er í fimmta sæti ríkja heimsins í samkeppnishæfni í viðskiptum samkvæmt athugun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Bandaríkin eru í efsta sæti, Singapore í öðru, Kanada í þriðja og Ástralía í fjórða sæti. Íslenska hagkerfið þykir þar með hið samkeppnishæfasta í Evrópu. 28.6.2004 00:01
Húsbréfum skipt í íbúðabréf Eigendur húsbréfa og húsnæðisbréfa geta skipt bréfum sínum í íbúðarbréf til 1. júlí. Það hentar þeim sem nýtt hafa bréfin í sparnaðarskyni. Hallur Magnússon, sviðstjóri þróunar- og almannatengsla hjá Íbúðarlánasjóði, segir að verið sé að bjóða skipti á ákveðnum skiptikjörum. Þau verði aðeins í boði í þetta eina sinn. 28.6.2004 00:01
„Gróðurhúsaáhrif“ á bensínverð Stjórnvöld ætla ekki að lækka nein gjöld eða skatttekjur af bensíni og olíu, til að milda neikvæð áhrif af miklum hækkunum á heimsmarkaði á íslenskt efnahagslíf, og réttlæta það með baráttu sinni gegn gróðurhúsaáhrifum. Þetta kemur fram í greinargerð á heimasíðu fjármálaráðuneytisins þar sem fjallað er um þjóðarbúskapinn. 24.6.2004 00:01
Neysluútgjöld heimilanna hækka Neysluútgjöld heimilanna hækkuðu um rúm 52% frá árinu 1995 til 2002. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 25%. Meðalneysluútgjöld heimilanna í landinu eru um 3,5 milljónir króna ár hvert, eða um 300 þúsund krónur á mánuði. 24.6.2004 00:01
Útgjöld heimilanna aukast um 50% Útgjöld heimilanna í landinu hafa aukist um meira en 50% frá árinu 1995 en vísitala neysluverðs hefur aðeins hækkað um 28%. Símakostnaður Íslendinga hefur þrefaldast á þessu tímabili. 24.6.2004 00:01
Íslensk hlutabréf í hæstu hæðum Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur tvöfaldast á tólf mánaða tímabili. Vísitalan nálgast nú óðfluga 3.000 stig og hefur hækkað mikið á þessu ári eftir metár í fyrra. Hækkunin frá áramótum er um 50 prósent. 23.6.2004 00:01
Aukin umsvif KB banka í Svíþjóð? Stjórnendur KB banka í Svíþjóð hafa hug á að auka umsvif sín í Svíþjóð og mun hluthafafundur bankans taka ákvörðun um það á fundi sínum í Reykjavík 5. júlí. 23.6.2004 00:01
Jafnvægi fasteigna og kaupmáttar Ekki er jafnrík ástæða til þess að hafa áhyggjur af hækkun húsnæðisverðs hér á landi og í mörgum nágrannaríkjanna. Þetta er niðurstaða Tryggva Þórs Herbertssonar og Axels Hall, hagfræðinga á Hagfræðistofnun. 22.6.2004 00:01
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. 21.6.2004 00:01
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. 21.6.2004 00:01
Sameining lífeyrissjóða Viðræðunefnd Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna hefur lokið 1. áfanga athugunar á hagkvæmni þess að sameina sjóðina í þeim tilgangi að styrkja tryggingafræðilega stöðu þeirra, efla eignastýringu, auka hagkvæmni í rekstri og þjónustu við sjóðfélaga. Að mati nefndarinnar hefur margt komið fram sem mælir með sameiningu og því lagði hún til að viðræðum verði fram haldið. 21.6.2004 00:01
Næsti áfangastaður London <em><strong>KB banki náði stórum áfanga með kaupum á dönskum banka. Áframhald verður á útrás og fjárfestingum bankans og viðskiptafélaga hans. London mun verða í kastljósi viðskiptalífsins næstu mánuði.</strong></em> Kaup KB banka á danska bankanum FIH fyrir 84 milljarða króna verða að teljast til stórtíðinda í íslensku viðskiptalífi. Með kaupunum gleypti KB banki vel rekinn banka sem er stærri en þeir sjálfir. 20.6.2004 00:01
Bakkavör að yfirtaka Geest Bakkavör hefur eignast yfir 20 prósenta hlut í breska matvörufyrirtækinu Geest. Þar með er Geest orðið hlutdeildarfélag Bakkavarar og kemur sem slíkt fram í reikningum félagsins. Bakkavör hefur einnig stækkað skuldabréfaflokk um 2,5 milljarða. 19.6.2004 00:01
Þýskur banki aðili að Kauphöllinni Stjórn Kauphallar Íslands hefur samþykkt aðild Deutsche Bank AG London að Kauphöllinni. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir þetta mikilsverðan áfanga fyrir íslenska markaðinn. 18.6.2004 00:01
Lækkun tekjuskatts án verðbólgu Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að ríkisstjórnin geti lækkað tekjuskatt eins og stjórnarsáttmálinn kveður á um, án þess að hleypa af stað verðbólgu, með því að beita niðurskurðarhnífnum. Hann telur þó óþarft að einblína á velferðarkerfið í því sambandi. 18.6.2004 00:01
KB banki á sænska úrvalslistann KB-banki hefur verið skráður á úrvalslista kauphallarinnar í Stokkhólmi, fyrstur íslenskra fyrirtæka. Er bankinn þar með kominn í hóp fjörtíu öflugustu fyrirtækjanna í sænsku kauphöllinni. Þetta er talið auka mjög möguleika bankans í tengslum við fyrirhugað tugmilljarða hlutafjárútboð. 17.6.2004 00:01
Financial Times fjallar um kaup KB Dagblaðið Financial Times fjallar í dag um kaup KB banka á danska bankanum FIH í gær. Í grein blaðsins segir að kaupin hafi komið á óvart í Skandinavíu og að búist hafi verið við að sænskur banki, til að mynda Nordea eða SEB, myndi kaupa FIH. Hermt er að enginn hafi heyrt talað um KB í þessu samhengi fyrr en í gær, þegar gengið var frá kaupunum. 15.6.2004 00:01