Fleiri fréttir

Hrist upp í pólitíkinni

Ólafur Stephensen skrifar

Úrslit sveitarstjórnarkosninganna hrista rækilega upp í hinu pólitíska kerfi á Íslandi. Hefbundnu flokkarnir fjórir fá skell, sem á sér fá fordæmi. Þótt forystumenn flokkanna geti vísað til einhverra ljósra punkta, eru skilaboð kjósenda skýr og flokkarnir komast ekki hjá því að horfast í augu við það. Uppgjörið og siðbótin, sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kallaði á, hefur að mati margra kjósenda látið á sér standa. Kosningaúrslitin þrýsta á flokkana að gera hreint fyrir sínum dyrum.

Bylting pólitísku viðrinanna

Í útlöndum snúast svona flokkar sem koma brunandi af jaðrinum og hirða allt lausa- og óánægjufylgið oftast um hatur á innflytjendum en óánægjuflokkurinn hér er fullur af hlátri. Það er þó eitthvað. Það er eitthvað við Besta flokkinn sem erfitt er að koma orðum að, eitthvað „je ne sais quoi“.

Kosið um ábyrgð

Ólafur Stephensen skrifar

Landsmenn ganga í dag að kjörborðinu og velja sveitarstjórn í sínu sveitarfélagi. Það hvernig fólk ráðstafar atkvæði sínu hefur áhrif á nánasta umhverfi fólks, á borð við götur, útivistarsvæði og íþróttaaðstöðu og þá félagslegu þjónustu sem stendur fólki næst, til dæmis grunnskóla, leikskóla og þjónustu við aldraða. Það skiptir máli að fólk kjósi og líka hvernig atkvæðinu er varið.

Kjördagur óánægjunnar

Þorsteinn Pálsson skrifar

Þrennt einkennir einkum sveitarstjórnarkosningarnar í dag: Í fyrsta lagi eru þær ópólitískari og málefnasnauðari en endranær. Í öðru lagi hafa landsmálin ríkari áhrif en fyrr. Í þriðja lagi eru þær meira bundnar við fortíðina en gengur og gerist.

Samið eða dæmt?

Ólafur Stephensen skrifar

Það virðist ögn langsótt að halda því fram, eins og forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna gera, að áminningarbréf Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) til Íslands, um að íslenzkum stjórnvöldum beri að greiða Icesave-skuldbindingarnar, styrki samningsstöðu landsins. ESA telur Ísland brotlegt við EES-samninginn, greiði stjórnvöld ekki

Ólafur Stephensen: Hvað gera gömlu flokkarnir?

Ólafur Stephensen skrifar

Tvær skoðanakannanir, sem Fréttablaðið og Morgunblaðið hafa látið gera, sýna að Bezti flokkurinn gæti orðið stærsta stjórnmálaaflið í borgarstjórn Reykjavíkur eftir kosningarnar á laugardag. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins um síðustu helgi gæti flokkurinn náð hreinum meirihluta, en samkvæmt könnun Morgunblaðsins myndi hann ná sjö borgarfulltrúum af fimmtán.

Þorvaldur Gylfason: Rússar í góðum gír

Þorvaldur Gylfason skrifar

Þegar ég kveikti á sjónvarpinu seint um kvöld í vetur leið, þetta var í janúar, heyrði ég viðtal við dómsmálaráðherrann. Tvö verkefni ráðuneytisins eru öðrum brýnni, sagði hann. Annað er að treysta sjálfstæði dómstólanna, svo að fólkið í landinu geti borið traust til þeirra. Hitt er að berjast gegn spillingu.

Jónína Michaelsdóttir: Valdið er okkar

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Einu sinni þegar ég tók þátt í kosningu til stjórnar hjá fjölmennri hreyfingu, búin að merkja við þá sem ég treysti, en vantaði eitt nafn, fékk ég vægt valkvíðakast. Átti erfitt með að velja milli tveggja einstaklinga. Stúlka sem

Hvar á að skera?

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Jafnrétti til náms er ein af grunnstoðum norræns velferðarsamfélags. Í því felst sannur jöfnuður í því að hverjum og einum eru gerð sömu tækifæri til þess að mennta sig. Hvernig fólk svo vinnur úr þeim tækifærum er annað mál. Að loknu grunn- og framhaldsskólanámi á fólk að standa frammi fyrir sömu tækifærum til þess að mennta sig til framtíðar.

Pétur Gunnarsson: Hin skýru skilaboð Reykvíkinga

Pétur Gunnarsson skrifar

Niðurstöður skoðanakönnunar, sem Fréttablaðið og Stöð 2 gerðu meðal Reykvíkinga í fyrrakvöld og sagt er frá í blaðinu í dag, verða lengi í minnum hafðar, hver sem úrslit kosninganna verða næsta laugardag.

Steinunn Stefánsdóttir: Enginn árangur

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Fyrir réttu ári var undirrituð viljayfirlýsing milli Samtaka atvinnulífsins, Félags kvenna í atvinnurekstri og Verslunarráðs Íslands þess efnis að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs. Markmiðið var að hlutur hvors kyns yrði ekki minni en 40 prósent í stjórnum fyrirtækja.

Pawel Bartoszek : Af hverju fimmtán?

Það er til formúla yfir hve margir þingmenn eigi að sitja á þingum ríkja. Besti fjöldinn er víst fenginn með því að taka þriðju rót af íbúatölu ríkisins og sé það gert í tilfelli Íslands kemur í ljós að hér ættu að vera 68 þingmenn, sem sagt, ansi nálægt raunverulega fjöldanum. Sé sömu formúlu beitt í tilfelli Reykjavíkur kemur á daginn að í ráðhúsinu ættu að sitja 49 borgarfulltrúar. Þeir eru hins vegar fimmtán og hefur fjöldi þeirra haldist nær óbreyttur í heila öld.

Guðmundur Andri Thorsson: Innleyst afsökun

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskiptafræði, þarf að takast á hendur nokkrar hagræðingar­aðgerðir á texta mínum frá því um daginn til að fá út þá útkomu sem hann telur sig þurfa á að halda, sem er afsökunarbeiðni sér til handa.

Óli Kr. Ármannsson: Velvild frá Lúx

Áfanga var náð í endurreisn íslensks efnahagslífs með samkomulagi því sem Már Guðmundsson seðlabankasjóri og Yves Mersch, seðlabankastjóri í Lúxemborg, undirrituðu snemma í gærmorgun. Fram til þessa hefur Seðlabankinn í Lúxemborg verið stærsti einstaki erlendi eigandi krónueigna. Samkomulagið léttir þrýstingi af gengi krónunnar og eykur likur á að hér verði hægt að lækka stýrivexti enn frekar og taka fleiri skref í þá átt að draga úr gjaldeyrishöftum.

Þorvaldur Gylfason: Að glíma við Hæstarétt

Þorvaldur Gylfason skrifar

Þrískipting valdsins í lýðræðisríkjum milli framkvæmdarvalds, löggjafarvalds og dómsvalds hvílir á þeirri grundvallarhugsjón, að engum valdþáttanna þriggja er ætlað að drottna yfir hinum tveim. Þeim er ætlað að vegast á. Þaðan er runnin hugmyndin um valdmörk og mótvægi (e. checks and balances), þar sem hver valdþáttur veitir öðrum gagnkvæmt aðhald og eftirlit. Ef einn valdþáttanna þriggja virðist ætla að vaxa hinum tveim yfir höfuð eða beygja sig undir hina tvo, þarf að bregðast við til að gæta þess jafnræðis, sem að er stefnt. Slíku jafnræði er ekki til að dreifa hér á landi eins og dæmin sanna. Hér hefur framkvæmdarvaldið beygt bæði löggjafarvaldið og dómsvaldið undir vilja sinn gegn anda stjórnarskrárinnar og ef til vill einnig gegn bókstaf hennar, svo sem færi mun gefast til að gaumgæfa við þá löngu tímabæru endurskoðun eða endursamningu stjórnarskrárinnar, sem nú stendur fyrir dyrum. Í 60. gr. stjórnarskrárinnar er vikið berum orðum að þrískiptingu valdsins, en þar segir: „Dómendur skera úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda." Hér er vikið með beinum hætti að eftirlitshlutverki Hæstaréttar gagnvart öðrum valdhöfum.

Steinunn Stefánsdóttir: Fækkun háskóla blasir við

Sú menntun sem ungu fólki stendur til boða í dag getur skipt sköpum um það hversu lífvænlegt samfélag verður hér eftir nokkra áratugi. Það er því lífsspursmál fyrir framtíð þjóðarinnar að byggja upp og viðhalda góðu menntakerfi. Niðurskurður til háskólastarfs hlýtur því að vekja ugg.

Björn Þór Sigbjörnsson: Grætt á jarðhita

Ofsafengin viðbrögð nokkurra stjórnmálamanna við kaupum Magma Energy á HS Orku komu ekki á óvart. En eins og gildir um svo margt sem sagt er á vettvangi stjórnmálanna virðast þau fyrst og fremst til heimabrúks. Þeim er ætlað að sefa tiltekna hópa. Engin ástæða er að ætla að menn meini það bókstaflega þegar þeir segja að ríkið eigi að reiða fram meira en þrjátíu milljarða króna til að eignast HS Orku. En sé það raunin væri gagnlegt að þeir tiltækju hvaðan peningarnir eiga að koma og hvaða opinberu verkefni eiga að sitja á hakanum í staðinn.

Sverrir Jakobsson: Nauðsyn niðurskurðar

Umræða um fjárlög næsta árs er nú þegar á villigötum. Alls staðar heyrir maður sama sönginn um nauðsyn niðurskurðar á sviðum sem varða þjóðina miklu, í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Talað er um allt að 40 milljarða króna niðurskurð sem augljóslega mun hafa geigvænleg áhrif mjög víða og getur jafnvel lamað starf víða á spítölum og í skólum.

Vekjum kosningabaráttuna

Nú eru innan við tvær vikur þar til kosið verður til sveitar-stjórna. Það hljómar raunar eins og það geti ekki verið satt miðað við það hversu lítið sveitarstjórnarmál eru til umræðu í samfélaginu.

Guðmundur Andri Thorsson: Jörð kallar Sigurð

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Hafi Jón Ásgeir verið tákngervingur víkinganna sem stunduðu skuldsettar yfirtökur og halda jafnvel enn að vandi sinn snúist bara um svolitla „endurfjármögnun“ þá var Sigurður Einarsson foringi sjálfra bankamannanna: hann var Kóngurinn af Kaupþing. Hann var hugsuðurinn, snillingurinn, „honum gat ekki skjátlast“.

Ólafur Stephensen: Opin og upplýst umræða

Ólafur Stephensen skrifar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gerði meðal annars grein fyrir stöðu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu í skýrslu sinni um utanríkismál á Alþingi í gær. Í máli ráðherrans kom fram að undirbúningur formlegra aðildarviðræðna gengi ágætlega og þær ættu að geta hafizt fljótlega eftir að leiðtogar ESB samþykkja umsókn Íslands.

Þorsteinn Pálsson: Pólitíska kreppan

Hvers vegna neituðu Bretar og Hollendingar að ræða við íslensk stjórnvöld nema stjórnarandstaðan væri með? Hvers vegna kallaði forseti ASÍ eftir þátttöku stjórnarandstöðunnar þegar aðilar vinnumarkaðarins vildu samtöl við ríkisstjórnina?

Ólafur Stephensen: Ekki tími yfirboða

Ólafur Stephensen skrifar

Einhvern veginn er kosningabaráttan fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, sem fram fara í lok mánaðarins, varla komin í gang. Önnur mál hafa skyggt á hana í almennri umræðu; rannsóknarskýrsla, handtökur og stefnur á hendur útrásarvíkingum, náttúruhamfarir. Engu að síður eru kosningarnar mikilvægt mál. Það er brýnt að kjósendur setji sig inn í málin í sínu sveitarfélagi og taki upplýsta ákvörðun um hvernig þeir hyggjast verja atkvæði sínu. Ef við teljum lýðræðið á annað borð mikilvægt hljótum við að vilja nota kosningaréttinn.

Þorvaldur Gylfason: Djúpar sprungur í dómskerfinu

Þorvaldur Gylfason skrifar

Fólkið í landinu vantreystir réttarkerfinu eins og vandaðar skoðanakannanir hafa sýnt um árabil. Innan við þriðji hver Íslendingur ber nú mikið traust til dómskerfisins. Þegar spurt var um traust manna til Alþingis fyrir hrun, var hlutfallið svipað, eða tæpur þriðjungur, en eftir hrun hrapaði traustið enn neðar. Nú segist áttundi hver maður bera mikið traust til Alþingis. Einn af átta.

Steinunn Stefánsdóttir: Útrás réttarríkis

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Atburðir síðustu daga sýna svo ekki verður um villst að full alvara býr að baki rannsóknum embættis sérstaks saksóknara á því hvort og þá hvernig brotin hafa verið lög í aðdraganda íslenska bankahrunsins.

Ólafur Stephensen: Krónan kostar

Ólafur Stephensen skrifar

Margir vilja losna við verðtrygginguna. Það er skiljanlegt, eftir að hún hefur valdið mörgum heimilum miklum búsifjum. Þeir sem voru til dæmis með húsnæðislán í íslenzkum, verðtryggðum krónum hafa horft upp á lánið sitt hækka um margar milljónir á sama tíma og þeir hafa greitt drjúgan hluta af mánaðarlaununum sínum í afborganir, vexti og verðbætur.

Ólafur Stephensen: Lítið lært?

Ólafur Stephensen skrifar

Pólitíkin sýnir á sér ýmsar sínar verstu hliðar í umræðum um almennt skynsamleg og gagnleg áform um sameiningu ráðuneyta og fækkun ráðherra, sem kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Samfylkingin vill keyra málið áfram og sameina ráðuneytin sem fyrst.

Guðmundur Andri Thorsson: Excelskáldin

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Svo ótal margt þarf að endurskoða núna - söguna, sjálfsmyndina, pólitíkina, orðræðuna, þjóðarhugmyndina, siðferðið?… En fyrst og fremst þarf þó að endurskoða endurskoðendurna.

Páll Baldvin Baldvinsson: Djók

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Enginn heyrðist hvellurinn þegar framboðsfresti til sveitarstjórnarkosninga lauk um helgina: auk fastra viðskiptavina kjósenda í sveitarstjórnum bættust nokkur ný framboð við, svona til að sundra atkvæðamagninu og styrkja hin stærri framboð sem fyrir eru á palli. Kannanir um áhuga almennings leiða í ljós að kjósendur eru fráhverfir sveitarstjórnarmálum um þessar mundir, Það eru einkum skemmtikraftaframboðin sem vekja athygli. Sérstakt, þegar sveitarfélagið er að verða meira og meira ráðandi um okkar daglegu önn. Þangað hefur ríkisvaldið flutt æ fleiri verkefni, flest kostnaðarsöm, undir því yfirskini „að færa verði þjónustuna nær fólkinu". Og þegar kreppir að er ríkisvaldið stikkfrí og þarf ekkert að hafa áhyggjur af niðurskurði í kostnaði, les þjónustu sveitarfélaga, enda á framkvæmdavaldið nóg með sitt úttútnaða kerfi eftir áratuga stjórn þeirra sem í upphafi ferils síns hrópuðu: báknið burt!

Ólafur Þ. Stephensen: Réttvísin hefur sinn gang

Handtaka tveggja af fyrrverandi forsvarsmönnum Kaupþings og úrskurður héraðsdóms um gæzluvarðhald yfir þeim markar nokkur tímamót í rannsókn sérstaks saksóknara á bankahruninu. Viðbrögð margra hafa verið ánægja með að saksóknarinn og hans lið sé að vinna vinnuna sína; loksins sjáist einhver merki um að lögum verði komið yfir þá sem báru ábyrgð á hruninu.

Þorsteinn Pálsson: Trúin á krónuna

Fjármálaráðherrann beindi athygli sinni að vanda Grikkja á dögunum. Af því tilefni lofsöng hann bæði guð og krónuna eins og hún væri hluti af sköpunarverkinu.

Ólafur Þ. Stephensen: Stolið úr vasa náungans

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Fréttablaðið sagði frá því í fyrradag að bótasvikamálum, sem Tryggingastofnun kemur upp um, hefði fjölgað þrefalt eftir að stofnunin tók upp hert eftirlit í fyrra. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri stofnunarinnar, tiltók dæmi af fimm barna fjölskyldu, þar sem faðirinn skráði sig til málamynda utan heimilis og fjölskyldan fékk fyrir vikið um 170 þúsund krónur í bætur á mánuði, sem hún átti ekki rétt á. Bætur fjölskyldunnar frá Tryggingastofnun námu samtals yfir 700 þúsund krónum, sem er meira en margir launþegar á vinnumarkaði hafa í fjölskyldutekjur.

Þorvaldur Gylfason: Pólska leiðin

Hinn 11. febrúar í ár lagði ég hér í blaðinu einu sinni sem oftar út af eftirminnilegum ummælum Bjarna Bendiktssonar síðar forsætisráðherra frá 1934 um svik samábyrgðarinnar. Ég lýsti í því viðfangi nýrri löggjöf um skerðingu sjálftekinna hlunninda í Póllandi. Lýsingin hljóðaði svo:

Ólafur Þ. Stephensen: Nú þarf aftur Landsyfirrétt

Í tæplega tvö ár hefur tillaga um stofnun millidómstóls verið til umræðu. Nefnd undir forystu Rögnu Árnadóttur, núverandi dómsmálaráðherra, lagði þetta til við þáverandi ráðherra í júní 2008. Nefndin lagði til að stofnaður yrði í Reykjavík dómstóll með að minnsta kosti sex dómurum, sem fengi það gamla heiti Landsyfirréttur, en það var millidómstóll Íslendinga í rúma öld, frá 1800 til 1919. Hæstiréttur var þá í Danmörku.

Ólafur Þ. Stephensen : Samstaða um siðbót?

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Stjórnmálaflokkarnir eru í kreppu eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út. Það sýna skoðanakannanir, sem birtar voru fyrir síðustu helgi. Í Þjóðarpúlsi Gallup, þar sem fylgi flokkanna á landsvísu var

Sverrir Jakobsson: Bastían bæjarfógeti

Allir sem séð hafa leikrit eftir Dario Fo vita líka að mikill broddur getur fólgist í pólitískum farsa. Vel heppnaður pólitískur listagjörningur opnar nýjar víddir í hugsuninni og vinnur gegn þrengingu á möguleikum stjórnmálanna. Dæmi um það eru víðar en við höldum og ekki úr vegi að nefna til dæmis rammpólitísk barnaleikrit Egners um Dýrin í Hálsaskógi og Kardimommubæinn.

Fasisminn í hlaðinu

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Hrunið hefur svipt fólk vinnunni. Það hefur lagt drápsklyfjar á fólk sem þarf nú að þræla myrkranna á milli til að gjalda bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum það sem þeirra er svo sannarlega ekki.

Fasisminn í hlaðinu

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Hrunið hefur svipt fólk vinnunni. Það hefur lagt drápsklyfjar á fólk sem þarf nú að þræla myrkranna á milli til að gjalda bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum það sem þeirra er svo sannarlega ekki. Það hefur eitrað andrúmsloftið í þjóðfélaginu og rústað sjálfsmynd þjóðarinnar. Það hefur gert nafn íslensku þjóðarinnar að samheiti víða um lönd yfir græðgi, grobb, últra-frjálshyggju og óheiðarlega viðskiptahætti.

Páll Baldvin Baldvinsson.: Árás á Alþingi

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Ákærur á hendur níu nafnkenndum einstaklingum sem tóku sannarlega þátt í andófi almennra borgara við alþingishúsið þegar ríkisstjórn landsins var sett af hafa kallað á viðbrögð fleiri sem þar voru.

Þorsteinn Pálsson: Stjórnlaganefnd?

Þorsteinn Pálsson skrifar

Njörður P. Njarðvík hefur verið einn skeleggasti og róttækasti talsmaður þess að ráðist verði í heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Hann hefur jafnframt verið talsmaður þess að stofna til stjórnlagaþings.

Sjá næstu 50 greinar