Fleiri fréttir

Redknapp fékk óblíðar móttökur

Harry Redknapp var gerður að heiðursborgara Hampshire í dag fyrir að stýra Portsmouth til bikarmeistaratitils á síðustu leiktíð. Hann fékk þó óblíðar móttökur frá stuðningsmönnum félagsins þegar hann tók við viðurkenningunni í dag.

Fylkismenn leita réttar síns vegna Ian Jeffs

Stjórnarmenn í knattspyrnudeild Fylkis eru að skoða rétt sinn vegna Ian Jeffs sem gekk í raðir Vals í gær. Ríkisútvarpið greinir frá því að forráðamenn Árbæjarliðsins telji að Jeffs hafi verið samningsbundinn Fylki og Valsmenn því ekki haft rétt á að semja við leikmanninn.

Chicago-Milwaukee beint á NBA TV í kvöld

Keppnistímabilið í NBA deildinni hefst í kvöld með þremur leikjum. Leikur Chicago Bulls og Milwaukee Bucks verður sýndur beint á NBA TV rásinni á Digital Ísland klukkan 00:30.

Massa byrjaði sem matarsendill

Brasilíumaðurinn Felipe Massa er að keppa að sínum fyrsta meistaratitli í Formúlu 1 á heimavelli um helgina. En fyrstu kynni hans af íþróttinni voru sem matarsendill fyrir keppnisliðin þegar þau heimsóttu Interlagos brautina.

Tekst Redknapp hið ómögulega?

Annað kvöld tekst Harry Redknapp á við verkefni sem fimm forverar hans í stjórastól Tottenham náðu aldrei að leysa - að vinna Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Carrick að braggast

Michael Carrick gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Manchester United síðan í september þegar liðið mætir fyrrum félögum hans í West Ham annað kvöld.

Ferguson: Menn hæðast að Sepp Blatter

Sepp Blatter, forseti FIFA, á það á hættu að missa trúverðugleika sinn sem valdamesti maður í knattspyrnuheiminum. Þetta segir Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United í viðtali við tímaritið GQ.

Michel ráðinn til Shakhtar Donetsk

Fyrrum knattspyrnudómarinn Lubos Michel frá Slóvakíu hefur gengið frá samningi við úkraínska knattspyrnufélagsið Shakhtar Donetsk þar sem hann mun hafa umsjón með þátttöku félagsins í Evrópukeppnum.

Wenger hefur trú á Adams

Arsene Wenger segist hafa trú á því að Tony Adams eigi eftir að spjara sig sem knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni. Adams var ráðinn stjóri Portsmouth í dag og tekur við af Harry Redknapp.

Velkominn til helvítis

Tony Adams, nýráðinn stjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, segir að það hefði verið óðs manns æði að hafna tilboði um að taka við liðinu af Harry Redknapp.

Bráðkvaddur á Leikvangi ljóssins

Alan Thompson, sextugur stuðningsmaður Sunderland, fékk hjartaáfall og lést á heimavelli liðsins rétt fyrir grannaslaginn gegn Newcastle um síðustu helgi.

Mourinho rak Adriano af æfingu

Jose Mourinho þjálfari Inter setur leikmönnum sínum strangar reglur og í morgun rak hann framherjann Adriano af æfingu fyrir að koma of seint.

Nær Kinnear í fyrsta sigurinn í kvöld?

Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Newcastle tekur á móti West Brom og leitast þar við að ná fyrsta sigrinum undir stjórn Joe Kinnear.

Hamilton: Geri ekki mistök aftur í lokamótinu

Bretinn Lewis Hamilton er hvergi banginn fyrir lokamótið í Formúlu 1 sem verður í Brasilíu um næstu helgi. Hann hefur áhyggjur af því að sagan frá síðasta ári endurtaki sig.

Tony Adams tekur við Portsmouth

Tony Adams hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Portsmouth og verður það tilkynnt á blaðamannafundi síðar í dag. Þetta fullyrða bæði BBC og Sky í morgun.

Björn Daníel til Viking á reynslu

Miðjumaðurinn efnilegi Björn Daníel Sverrisson er á leið til Noregs þar sem hann verður til reynslu hjá úrvalsdeildarliði Viking næstu daga.

Beckham leigir í rauða hverfinu í Mílanó

Breska blaðið Sun segir að David Beckham sé þegar búinn að finna sér íbúð á leigu í Mílanó þar sem hann ætlar að búa þegar hann fer á lánssamningi til AC Milan í janúar.

Frakkar bjarga íslenskum handboltamönnum í kreppunni

Franska handknattleikssambandið bauð karlalandsliði Íslands, nítján ára og yngri, á sinn kostnað til Frakklands til þáttöku á stóru æfingamóti eftir að HSÍ hafði hætt við að senda liðið vegna óvissu í efnahagsmálum.

Dóra framlengdi við Malmö

Landsliðskonan Dóra Stefánsdóttir hefur framlengt samning sinn við sænska úrvalsdeildarfélagið Malmö um tvö ár. Dóra er nú á fullu í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir landsleikinn mikilvæga gegn Írum á Laugardalsvelli á fimmtudaginn.

Árangurinn kom Ronaldo á óvart

Cristiano Ronaldo hefur viðurkennt að hann hafi ekki átt von á því að verða einn af bestu leikmönnum heims svo ungur að aldri.

Fjalar framlengdi hjá Fylki

Markvörðurinn Fjalar Þorgeirsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Fylki. Fjalar hefur leikið þrjú tímabil með Árbæjarliðinu en hann var orðaður við önnur lið eftir það síðasta.

Robinho hefur breytt City

Varnarmaðurinn Micah Richards segir að Brasilíumaðurinn Robinho hafi breytt Manchester City. Robinho skoraði þrennu þegar City vann Stoke 3-0 á sunnudag.

Kristinn á ekki möguleika á HM

Fyrir helgina tilkynnti dómaranefnd FIFA hvaða 38 dómarar eiga möguleika á að dæma á Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku 2010. Kristinn Jakobsson er ekki á þessum lista.

Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1

Ferrari liðið sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis í dag þar sem segir að vegna yfirlýsingar FIA, alþjóðabílasambandsins í dag muni Ferrari endurskoða þátttöku sína í Formúlu 1.

Ian Jeffs genginn í raðir Vals

Knattspyrnumaðurinn Ian Jeffs hefur gengið til liðs við Val frá Fylki. Jeffs er 26 ára og hefur einnig leikið með ÍBV hér á landi.

Nauðsynlegur sigur Sundsvall

Þriðja síðasta umferðin í sænsku úrvalsdeildinni hófst í kvöld með tveimur leikjum. Íslendingaliðið Sundsvall sem er í harðri fallbaráttu vann nauðsynlegan sigur á botnliði Norrköping 2-1.

„Ólafur á aðeins eftir að skrifa undir"

Jesper Nielsen, forstjóri í Kasi Group í Danmörku, sagði í viðtali við sporten.dk að samningaviðræður Albertslund/Glostrup við Ólaf Stefánsson væru langt komnar og aðeins ætti Ólafur eftir að undirrita samninginn.

Helgin á Englandi - Myndir

Liverpool trjónir á toppi úrvalsdeildarinnar eftir góðan sigur á Chelsea í gær. Tottenham byrjaði vel undir stjórn Harry Redknapp og Hull heldur áfram á sigurbraut.

Örn Ingi Bjarkason í FH

Örn Ingi Bjarkason, handknattleiksmaðurinn ungi, er á leið í topplið FH í N1-deild karla. Frá þessu greindi vefsíða DV.

Maldini ætlar ekki út í þjálfun

Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, segist ekki ætla að leggja þjálfarastarfið fyrir sig þegar hann leggur skóna á hilluna næsta vor.

Ljungberg sagður á leið í MLS

Sænski miðjumaðurinn Freddie Ljungberg er nú sagður við það að ganga í raðir Seattle Sounders í bandarísku knattspyrnudeildinni MLS.

Adams í viðræðum við Portsmouth

Tony Adams er í viðræðum við forráðamenn Portsmouth um að gerast knattspyrnustjóri félagsins eftir brottför Harry Redknapp eftir því sem fram kemur á BBC. Adams hefur verið aðstoðarmaður Redknapp í tvö ár en gerði garðinn frægan sem leikmaður Arsenal á árum áður.

Hitað upp fyrir NBA-deildina

Deildakeppnin í NBA körfuboltanum fer á fullt aðfaranótt 29. október. Vísir fer ofan saumana á öllum liðum deildarinnar og hitar upp fyrir átökin.

Ronaldo leikmaður ársins hjá FifPro

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins 2008 hjá FifPro, sem eru regnhlífarsamtök atvinnuknattspyrnumanna.

Lokamótið auðveldara fyrir Massa en Hamilton

Brasilíumaðurinn Felipe Massa telur að það verði auðveldara fyrir hann en Lewis Hamilton að ná settu marki um næstu helgi. Massa verður að sækja en Hamilton að verja sjö stiga forskot.

Zaki settur í fjölmiðlabann

Steve Bruce, stjóri Wigan í ensku úrvalsdeildinni, hefur brugðið á það ráð að setja framherjann Amr Zaki í fjölmiðlabann.

Eggjum kastað í Rómverja

Hörðustu stuðningsmenn Roma á Ítalíu hafa fengið sig fullsadda af lélegu gengi liðsins í upphafi leiktíðar ef marka má fréttir frá Róm í morgun.

Ólafur Örn leikmaður ársins hjá Brann

Ólafur Örn Bjarnason var í gær kjörinn leikmaður ársins hjá norska úrvalsdeildarliðinu Brann. Ólafur var í byrjunarliði liðsins þegar það gerði 1-1 jafntefli við Tromsö í lokaleik sínum á heimavelli.

Sjá næstu 50 fréttir