Fleiri
Rauði herinn endurreistur á næstu árum 16.11.2006 16:29 Norðmenn vilja meira erlent vinnuafl til að halda niðri launum Norðmenn íhuga að opna landamæri sín fyrir verkafólki frá Rúmeníu og Búlgaríu, til þess að koma í veg fyrir launahækkanir, sem þeir kæra sig ekki um. 16.11.2006 15:55 Indverskir kommúnistar styðja Saddam Um eitthundrað þúsund indverskir kommúnistar söfnuðust saman í Kalkútta, á Indlandi, í dag, til þess að mótmæla dauðdóminum yfir Saddam Hussein. 16.11.2006 15:21 Síróp á vegi gegn hálku Norðmenn eru að byrja að sprauta sírópi á vegi sína, til þess að koma í veg fyrir hálku. Sírópið er blandað megnesíum klóríði og verndar vegina allt niður í sextíu og fimm gráðu frost. 16.11.2006 14:09 Simpson sagður viðurkenna morðin, í nýrri bók O.J. Simpson hefur skrifað bók þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði farið að því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar, EF hann hefði gert það. Titill bókarinnar er "Ef ég gerði það, svona gerðist það." Útgefandi bókarinnar segir að hún líti á hana sem játningu. 16.11.2006 13:44 Umhverfismál ofarlega á baugi í Bandaríkjunum Þrír demókratar í bandarísku öldungadeildinni sem koma til með að verða yfir nefndum um umhverfismál í Bandaríkjunum segjast óánægðir með framlag George W. Bush, bandaríkjaforseta, í umhverfismálum. Þeir segjast ætla að setja á hann pressu um að koma með lög sem takmarka losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið. 15.11.2006 23:48 Ísraelsk kona lætur lífið í eldflaugaárás Palenstínskir vígamenn skutu eldflaugum frá Gaza svæðinu í dag og urðu ísraelskri konu að bana og særðu tvo í ísraelska landamærabænum Sderot. Ísraelsk yfirvöld segjast ætla að gera allt sem í valdi sínu stendur til þess að ná þeim sem eru ábyrgir. 15.11.2006 23:45 Mannréttindaráð SÞ fordæmir mannréttindabrot Ísraela á Gaza Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðana fordæmdi í dag mikil og skipulögð mannréttindabrot Ísraels á Gaza svæðinu og sendi þangað sendinefnd til þess að rannsaka lát 19 óbreyttra palenstínskra borgara í Beit Hanoun í síðustu viku. 15.11.2006 22:27 Bandaríski herinn hugsanlega farinn frá Írak innan árs Bandaríski yfirhershöfðinginn í Írak, John Abizaid, sagði í dag að það gæti tekið skemmri tíma en áður var haldið að þjálfa upp íraska herinn. Áður hafði verið talað um að minnsta kosti eitt ár í viðbót en hann telur að verkefninu gæti verið lokið á undir einu ári. 15.11.2006 21:53 Ísraelsk herþyrla gerir árásir á Gaza Ísraelsk herþyrla skaut rétt í þessu tveimur loftskeytum á hús í palenstínska hluta Gaza svæðisins, samkvæmt frásögnum sjónarvotta. Íbúar sögðu að einhverjir hefðu slasast og hugsanlega látið lífið í árásinni á Shathi flóttamannabúðirnar en það fékk ekki staðfest. Talsmaður ísraelska hersins hafði ekkert um málið að segja að svo stöddu. 15.11.2006 21:37 Sjá næstu 50 fréttir
Breskum manni sleppt úr fangelsi í Pakistan Breskum ríkisborgara sem hafði verið dæmdur til dauða fyrir morð sem hann segist ekki hafa framið var sleppt úr fangelsi í Pakistan í dag eftir 18 ára fangelsisdvöl þar í landi. 17.11.2006 22:57
Pólverjar og Evrópusambandið í viðræðum Finnski forsætisráðherran sagði í dag að ekki hefði náðst samkomulag við Pólverja en þeir hóta nú að koma í veg fyrir nýjan samstarfssamning Rússlands og Evrópusambandsins vegna banns sem Rússar hafa sett á innflutning á pólsku kjöti. 17.11.2006 22:31
Bandaríkin hvetja til refsiaðgerða gegn Íran Bandaríkin hvöttu í kvöld Sameinuðu þjóðirnar til þess að hraða því að refsiaðgerðir verði settar á gegn Íran. Á sama tíma reyndu þau að sannfæra Rússa og Kínverja um að refsiaðgerðirnar myndu ekki verða of miklar. 17.11.2006 21:16
Elskan...hvar er fjarstýringin ? Hvaða gagn er að sjónvarpi ef það er engin fjarstýring ? Franskur innbrotsþjófur var þeirrar skoðunar að þá væri sjónvarpið gagnslaust. Það varð honum að falli. 17.11.2006 21:02
Mafían á Ítalíu fælir fjárfesta Mafían á suðurhluta Ítalíu fælir frá fjárfesta í miklu magni. Þetta kom fram í ræðu sem Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, hélt í dag. Hann sagði enn fremur að engin framþróun gæti orðið í landinu þegar mafían væri til staðar. 17.11.2006 20:53
David Blaine reynir við nýtt töfrabragð Töframaðurinn David Blaine ætlar sér að losa sig úr snúð sem hringsnýst um sjálfan sig allan tímann. Snúðurinn verður í um 10 metra hæð og fær Blaine 3 sólarhringa til þess að losa sig. Hefur verslunin Target í New York lofað því að gefa 100 fjölskyldum sem að hjálpræðisherinn þar velur 30.000 króna gjafakort til þess að versla fyrir jólin. 17.11.2006 19:54
Búrka bannað í Hollandi Hollenska ríkisstjórnin ákvað í dag að banna alklæðnað múslimakvenna, hið svonefnda Búrka, á almannafæri. Klæðnaðurinn hylur ekki aðeins allan líkama þeirra heldur einni andlit þeirra og skilur aðeins eftir göt fyrir augun. 17.11.2006 19:36
Írak að sundrast Fyrrverandi forsætisráðherra Íraks óttast það að heimaland hans sé við það að sundrast. Ástandið segir hann þó verða verra ef ákveðið verði að skipta landinu milli trúar- og þjóðarbrota. Hann segir ótal mistök hafa verið gerð í Írak frá því ráðist var inn í landið fyrir um þremur og hálfu ári. 17.11.2006 19:00
Gates í embætti fyrir áramót Leiðtogar repúblikana í bandaríska þinginu hittu í dag Robert Gates, væntanlegan eftirmann Donald Rumfeld, en búist er við því að George W. Bush reyni að koma tilnefningu hans í gegnum öldungadeildina áður en demókratar taka við í henni þann fyrsta janúar næstkomandi. 17.11.2006 18:18
Umhverfisráðstefnu SÞ lýkur Umhverfisráðherrar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Næróbí í Kenía ákváðu í dag, lokadegi ráðstefnunnar, að endurskoða Kyoto sáttmálann árið 2008. Vonir standa til að sáttmálinn verði þá gerður viðameiri og að fleiri lönd verði aðilar að honum. 17.11.2006 17:45
KB Banki svarar ásökunum Ekstra Bladet Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings Banka, kom fram á fréttamannafundi í höfuðstöðvum þeirra í Kaupmannahöfn í dag. Þar sagði hann að þeir hefðu sent Ekstra Bladet bréf þar sem rangfærslur blaðins eru leiðréttar en blaðið hefur undanfarið verið að birta greinar sem segja KB Banka vera tengdan við hina ýmsu glæpastarfsemi. 17.11.2006 17:24
Tom Cruise setur Ítalíu á annan endann Ítalir hafa ekki upplifað annað eins síðan bandamenn frelsuðu Róm úr höndum Þjóðverja, í síðari heimsstyrjöldinni. Tom Cruise ætlar að gifta sig á Ítalíu, á morgun, og það er allt orðið vitlaust. 17.11.2006 16:27
Íranar tilbúnir að ræða við Ítali um Miðausturlönd Talsmaður forseta Ítalíu hefur skýrt frá því að ráðherranum hafi borist bréf frá forseta Írans, þar sem hann segist vera fús til viðræðna við Ítali um ástandið í Miðausturlöndum. 17.11.2006 14:36
Kóksvelgur fær bætur Rússnesk kona hefur fengið 8000 krónur í skaðabætur frá Coca Cola fyrirtækinu vegna brjóstsviða og svefnleysis, sem rakið var til þess að hún svolgraði í sig þrjá lítra á dag, af drykknum. 17.11.2006 14:20
Vilja rannsókn á dauða palestínumanna Ísraelsk mannréttindasamtök hafa krafist tafarlausrar rannsóknar á dauða tveggja Palestínumanna, sem voru skotnir í áhlaupi hersins á Vesturbakkanum, fyrr í þessum mánuði. 17.11.2006 13:56
Bretar banna auglýsingar á fitandi mat Bresk yfirvöld hafa bannað allar auglýsingar, á óhollum matvælum, í sjónvarpsþáttum sem höfða til barna upp að sextán ára aldri, hvort sem er að nóttu eða degi og á hvaða sjónvarpsrás sem er. 17.11.2006 13:45
Thai Airways íhugar að hætta við kaup á risaþotu Wallop Bhukkanasut, einn af æðstu stjórnendum taílenska ríkisflugfélagsins Thai Airways, segir tafir á afhendingu A380 risaþotum flugfélagsins hafa orðið til þess að flugfélagið verði að endurskoða langtímaáætlanir sínar. Svo getur farið að flugfélagið falli frá kaupum á risaþotunum. 17.11.2006 13:27
Evrópskar friðarumleitanir í Ísrael Frakkar, Spánverjar og Ítalir samþykktu í dag áætlun til þess að reyna að leysa deilurnar við botn Miðjarðarhafsins. í áætlununni er kveðið á um algjört vopnahlé og gefið í skyn að löndin þrjú gætu send eftirlitsmenn til Ísraels. Óvíst er þó hvernig þetta evrópska frumkvæði passar inn í aðrar friðarumleitanir. 16.11.2006 23:45
Royal frambjóðandi sósíalista Talsmaður Sósíalistaflokksins í Frakklandi staðfesti við fréttamenn nú rétt áðan að frambjóðandinn Segolene Royal verði forsetaefni flokksins. Sagði hann að hún hefði þegar hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en lokaúrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal verður fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún sigrar í forsetakosningunum í apríl á næsta ári. 16.11.2006 23:08
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktar um Úganda Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun þar sem skorað er á uppreisnarher drottins í Úganda að sleppa úr haldi öllum þeim börnum og konum sem þeir hafa rænt á síðustu tveimur áratugum. 16.11.2006 22:51
Æfingaflugtak gekk vel Væntanlegir geimfarar fóru um borð í geimskutluna Discovery í dag til þess að undirbúa sig fyrir geimskotið sem verður í næsta mánuði. Æfingin gekk eins og í sögu og var henni haldið áfram þangað til aðeins fjórar sekúndur voru í flugtak. 16.11.2006 22:14
Sósíalistar í Frakklandi hafa valið forsetaefni sitt Samkvæmt fyrstu tölum úr prófkjöri sósíalista í Frakklandi er talið að frambjóðandinn Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum. Þetta kom fram hjá franska sjónvarpinu LCI í kvöld. Líklegt þykir að hún hafi hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en úrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal myndi verða fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún ber sigur úr býtum í komandi forsetakosningum. 16.11.2006 21:50
Hvalveiðar í Kanada Lið veiðimanna í Kanada mun fara í leiðangur til þess að drepa um 80 Mjaldurhvali. Mjaldurhvalir eru litlir, um þrír til fimm metrar á lengd og hvítir á hörund. Hvalirnir sem á að veiða eru allir fastir í vatni sem á eftir að frysta eftir nokkrar vikur. 16.11.2006 21:38
Sameiginlegt friðargæslulið að veruleika Kofi Annan sagði í kvöld að ráðamenn í Súdan hefðu samþykkt þá hugmynd hans um að sameinað lið friðargæsluliða frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu myndi verða við friðargæslu í Darfur-héraði. 16.11.2006 21:09
Æðsti klerkur súnnía í Írak brotlegur Íraska ríkisstjórnin hefur gefið út handtökuskipun á æðsta klerki súnnía í landinu þar sem talið er að hann sé að ýta undir hryðjuverkastarfsemi í Írak. Handtökuskipunin gæti hins vegar ýtt undir ofbeldi milli trúarhópa í Írak, súnní og shíta múslima. 16.11.2006 20:41
Blair leggur til ný hryðjuverkalög Bretar munu leggja til nýja löggjöf í hryðjuverkamálum fyrir lok ársins. Búist er við því að hún muni fela í sér lög um að breska lögreglan geti haldið grunuðum í lengri tíma án þess að gefa út ákæru á hendur þeim. 16.11.2006 20:17
Bush í Víetnam George W. Bush varð í dag annar forseti Bandaríkjanna til þess að heimsækja Víetnam eftir að Víetnamstríðinu lauk. Vonast var til þess að Bush myndi þar semja um fríverslunarsamning við Víetnama en ekkert varð úr því þar sem repúblikanar misstu yfirráð í báðum deildum þingsins þann 7. nóvember síðastliðinn. 16.11.2006 19:56
Ofbeldið í Darfur heldur enn áfram Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, opnaði í Eþíópíu í dag alþjóðlega ráðstefnu um hvernig hægt er að leysa ástandið í Darfur-héraði í Súdan. Þar mun hann meðal annars mæla fyrir því að búið til verði sameinað friðargæslulið frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu. 16.11.2006 19:34
Bandaríkin í samvinnu við Indland Bandaríska þingið byrjaði í dag að ræða frumvarp sem fjallar um sölu á kjarnorkuvirkum efnum og framleiðslutækjum til Indlands. Frumvarpið hefur verið á hakanum ansi lengi en gagnrýnendur þess eru hræddir að með því að aðstoða Indverja við að koma sér upp kjarnorkutækni muni kjarnorkuvopnakapphlaup verða raunin í Suð-Austur Asíu allri og þá sérstaklega á milli Indlands og Pakistan. 16.11.2006 19:22
Simpson segir hvernig hann hefði myrt Ruðningskappinn O. J. Simpson hefur síðustu tólf árin þráfaldlega neitað því að hafa myrt eiginkonu sína og elskhuga hennar með hrottalegum hætti árið 1994. Simpson hefur þó velt því fyrir sér hvernig hann hefði myrt þau og ritað um það bók sem kemur út nú fyrir jólin. Ættingjar fórnarlambanna fordæma útgáfu bókarinnar. 16.11.2006 19:00
Hörð átök í Austur-Kongó Til harðra átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í höfuðborg Austur-Kongó í dag. Kjörstjórn landsins lýsti því yfir í morgun að Joseph Kabila, sitjandi forseti, hefði sigrað í kosningum í síðasta mánuði. Andstæðingur hans neitar að viðurkenna ósigur sinn og segir brögð hafa verið í tafli. 16.11.2006 18:45
Kaþólskir prestar skulu vera ógiftir Vatíkanið staðfesti í dag að prestar kaþólsku kirkjunnar ættu að vera einhleypir á fundi sem Benedikt páfi hélt til þess að ræða óskir giftra presta sem vilja stíga í pontu á ný. Fundurinn var haldinn vegna þess að nú hefur afrískur erkibiskup stofnað nýja hreyfingu sem að leyfir þeim kaþólsku prestum sem hafa horfið úr starfi til þess að gifta sig að snúa aftur í pontu. 16.11.2006 18:14
Milton Friedman látinn Milton Friedman, helsti frummælandi hins frjálsa markaðar og handhafi Nóbelsverðlauna í hagfræði árið 1976, er látinn. Talsmaður fjölskyldunnar skýrði frá þessu nú rétt í þessu. 16.11.2006 17:45
Franskir sósíalistar velja sér forsetaefni Franski sósíalistaflokkurinn hélt prófkjör í dag fyrir forsetakosningarnar sem að fara þar fram á næsta ári. Talið er líklegt að konan Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum en fyrstu tölur verða birtar á morgun. 16.11.2006 17:18
2000 ára gömul fisksósa Spænskir vísindamenn eru vongóðir um að geta sett saman uppskrift að fisksósu sem auðugir Rómverjar héldu mikið uppá fyrir 2000 árum. 16.11.2006 16:47
Norðmenn vilja meira erlent vinnuafl til að halda niðri launum Norðmenn íhuga að opna landamæri sín fyrir verkafólki frá Rúmeníu og Búlgaríu, til þess að koma í veg fyrir launahækkanir, sem þeir kæra sig ekki um. 16.11.2006 15:55
Indverskir kommúnistar styðja Saddam Um eitthundrað þúsund indverskir kommúnistar söfnuðust saman í Kalkútta, á Indlandi, í dag, til þess að mótmæla dauðdóminum yfir Saddam Hussein. 16.11.2006 15:21
Síróp á vegi gegn hálku Norðmenn eru að byrja að sprauta sírópi á vegi sína, til þess að koma í veg fyrir hálku. Sírópið er blandað megnesíum klóríði og verndar vegina allt niður í sextíu og fimm gráðu frost. 16.11.2006 14:09
Simpson sagður viðurkenna morðin, í nýrri bók O.J. Simpson hefur skrifað bók þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði farið að því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar, EF hann hefði gert það. Titill bókarinnar er "Ef ég gerði það, svona gerðist það." Útgefandi bókarinnar segir að hún líti á hana sem játningu. 16.11.2006 13:44
Umhverfismál ofarlega á baugi í Bandaríkjunum Þrír demókratar í bandarísku öldungadeildinni sem koma til með að verða yfir nefndum um umhverfismál í Bandaríkjunum segjast óánægðir með framlag George W. Bush, bandaríkjaforseta, í umhverfismálum. Þeir segjast ætla að setja á hann pressu um að koma með lög sem takmarka losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið. 15.11.2006 23:48
Ísraelsk kona lætur lífið í eldflaugaárás Palenstínskir vígamenn skutu eldflaugum frá Gaza svæðinu í dag og urðu ísraelskri konu að bana og særðu tvo í ísraelska landamærabænum Sderot. Ísraelsk yfirvöld segjast ætla að gera allt sem í valdi sínu stendur til þess að ná þeim sem eru ábyrgir. 15.11.2006 23:45
Mannréttindaráð SÞ fordæmir mannréttindabrot Ísraela á Gaza Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðana fordæmdi í dag mikil og skipulögð mannréttindabrot Ísraels á Gaza svæðinu og sendi þangað sendinefnd til þess að rannsaka lát 19 óbreyttra palenstínskra borgara í Beit Hanoun í síðustu viku. 15.11.2006 22:27
Bandaríski herinn hugsanlega farinn frá Írak innan árs Bandaríski yfirhershöfðinginn í Írak, John Abizaid, sagði í dag að það gæti tekið skemmri tíma en áður var haldið að þjálfa upp íraska herinn. Áður hafði verið talað um að minnsta kosti eitt ár í viðbót en hann telur að verkefninu gæti verið lokið á undir einu ári. 15.11.2006 21:53
Ísraelsk herþyrla gerir árásir á Gaza Ísraelsk herþyrla skaut rétt í þessu tveimur loftskeytum á hús í palenstínska hluta Gaza svæðisins, samkvæmt frásögnum sjónarvotta. Íbúar sögðu að einhverjir hefðu slasast og hugsanlega látið lífið í árásinni á Shathi flóttamannabúðirnar en það fékk ekki staðfest. Talsmaður ísraelska hersins hafði ekkert um málið að segja að svo stöddu. 15.11.2006 21:37