Fleiri fréttir Boraði niður á sprengju Borgarstarfsmaður í Aschaffenburg í Þýskalandi lét lífið þegar hann var að brjóta upp steinsteypu á hraðbrautinni milli Würzburg og Frankfurt. Stórvirk vinnuvél sem maðurinn var að vinna með sprakk þegar hún kom niður á sprengju úr Síðari heimsstyrjöldinni sem lá ósprungin undir steinsteypunni. Sprengjan sprakk þegar með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnuvélin gjöreyðilagðist. 23.10.2006 18:02 Skólarúta valt á Spáni 10 börn slösuðust, þar af 2 alvarlega, þegar skólarúta valt í Zaragoza-héraði á norðaustur Spáni í dag. 50 börn voru um borð í rútunni þegar slysið varð. Rútan valt á aðrein á akbraut nærri bænum Villamayor. 23.10.2006 17:45 18 manna áhöfn saknað 18 manna áhöfn rússnesks flutningaskips sökk undan norð-austur strönd Suður-Kóreu í dag. Verið var að flytja timbur frá Austur-Rússlandi til Kína. 23.10.2006 17:37 Óvíst um framsal Stjórnvöld í Namibíu hafa ekki fengið beiðni frá bandarískum stjórnvöldum um að framselja kvikmyndaleikarann Wesley Snipes sem er ákærður fyrir að hafa svikið jafnvirði rúmlega 800 milljóna íslenskra króna undan skatti. Snipes er nú staddur í Namibíu við tökur á næstu kvikmynd sinni. 23.10.2006 17:25 Rússneskir embættismenn neita að skrá stjórnarandstöðuflokk Rússneskir embættismenn sögðu í dag að þeir hefðu hafnað umsókn til þess að skrá stjórnarandstöðuflokk sem fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, Mikhail Kasyanov, er í forsvari fyrir. 23.10.2006 15:59 Kaupa 500 þúsund plastpoka vegna nýrra reglna Forsvarsmenn Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn hafa fest kaup á 500 þúsund plastpokum til þess að geta mætt nýjum reglum Evrópusambandsins eftir tvær vikur. 23.10.2006 15:51 Íran heldur kjarnorkutilraunum áfram Ráðamenn í Íran hafa sett í gang aðra úranínum-auðgunarsamstæðu þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna. 23.10.2006 15:35 Segir yfir 50 manns hafa verið handtekna í tengslum við spillingu í Kína Yfir fimmtíu manns úr kínversku viðskiptalífi og stjórnkerfi landsins hafa verið handteknir eftir að upp komst um spillingu í tengslum við félagslega sjóði í borginni Shanghai. 23.10.2006 15:18 Condoleezza Rice gagnrýnir súdönsk yfirvöld Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ákvörðun súdanskra yfirvalda um að reka sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna, Jan Pronk, úr landi hafi verið "ákaflega óheppileg". 23.10.2006 14:41 Lögregla skýtur á mótmælendur í Ungverjalandi Vitni segja að lögregla hafi skotið gúmmíkúlum á mótmælendur í Ungverjalandi til þess að reyna að dreifa úr hópi þeirra. 23.10.2006 14:38 Ísraelar skutu sjö til bana á Gaza Ísraelskar hersveitir skutu til bana sjö Palestínumenn í morgun, þar af þrjá bræður. Fjórtán aðrir særðust í árásinni, sem var gerð á fyrsta degi aðalhátíðar múslima, Eid al-Fitr. 23.10.2006 14:20 Yfirvöld í Íran banna umbótasinnað dagblað Yfirvöld í Íran hafa bannað umbótasinnað dagblað sem var aðeins viku gamalt. Bannið var á þeim grundvelli að blaðið væri einfaldlega nýtt nafn á öðru blaði sem hefði verið bannað í september síðastliðnum. 23.10.2006 14:02 Október blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher Októbermánuður er þegar orðinn blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher í Írak. Tíu hermenn létust um helgina og hafa því alls 85 bandarískir hermenn fallið í mánuðinum sem er níu mönnum meira en í apríl síðastliðnum. 23.10.2006 14:00 Reykingabann í Hong Kong Reykingabann á opinberum stöðum í Hong Kong mun taka gildi í Janúar á næsta ári. 23.10.2006 13:37 Sprenging í Þýskalandi hugsanlega af völdum gamallar sprengju Verkamaður lést og fimm slösuðust þegar sprenging varð við vegavinnu á hraðbraut í Bæjaralandi í suðurhluta Þýskalands í dag. Lögregla telur hugsanlegt að vegavinnuvél hafi verið ekið á sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni. 23.10.2006 13:29 Páfi að endurvekja gamlar hefðir innan kaþólsku kirkjunnar Benedikt Páfi er að velta fyrir sér að enduvekja svokallaða latneska messu í kaþólsku kirkjunni og hefur tillagan mætt andstöðu innan kirkjunnar. 23.10.2006 13:13 Átök á afmæli uppreisnarinnar í Ungverjalandi Til átaka kom í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í morgun þar sem þess var minnst að hálf öld er liðin frá uppreisninni í landinu. Nokkur fjöldi fólks hafði komið sér fyrir á torginu fyrir framan þinghúsið í borginni til að lýsa andstöðu sinni við Ferenc Gyurcsani forsætirsáðherra en þar inni fór fram athöfn í tilefni tímamótanna. 23.10.2006 12:45 Hægri-öfga flokkur gengur í ríkisstjórn Ísraels Leiðtogi hægri-öfga flokksins Yisrael Beitenu sagði í dag að flokkurinn myndi ganga í ríkisstjórn Ehuds Olmert á morgun. 23.10.2006 12:39 Bretar ætla að halda ótrauðir áfram í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fullvissaði Íraka í morgun um að Bretar ætli að halda ótrauðir áfram starfi sínu í Írak. 23.10.2006 12:15 Talibanar ætla að ráðast gegn Evrópubúum Foringi í liði talibana, Mullah Muhammad Amin, sagði í morgun að talibanar stefndu á árás á Bretland og Evrópu. Í einkaviðtali við Sky fréttastofuna sagði Amin að samtökin ættu gnægð vopna og að óbreyttum borgurum á Vesturlöndum yrði ekki hlíft enda hefðu þeir komið Bush og Blair til valda með atkvæðum sínum. 23.10.2006 12:05 Ísrael krefst aðgerða vegna stefnu Írana Forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert, skoraði í dag á alþjóðasamfélagið að refsa forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, fyrir að að hafa krafist eyðileggingar Ísraels 23.10.2006 11:29 Útgöngubanni komið á í Amara Yfirvöld í Írak hafa komið á útgöngubanni í bænum Amara í suðurhluta landsins vegna átaka milli andófsmanna úr röðum sjíta og lögreglu undanfarna daga. 23.10.2006 11:23 Dómur kveðinnn upp yfir Skilling vegna Enron-máls Dómur verður kveðinn upp í Houston í Bandaríkjunum í dag yfir Jeffrey Skilling, fyrrverandi framkvæmdastjóra orkurisans Enron, sem varð gjaldþrota fyrir fimm árum. 23.10.2006 11:14 Rússneskur hermaður seldur sem þræll Lögfræðingur í Rússlandi skýrði frá því í dag að hún væri með skjólstæðing sem hefði verið seldur sem þræll úr hernum. Hermaðurinn hafði verið seldur ásamt skurðgröfu á um 1.300 dollara, sem samsvarar um nítíu þúsund íslenskum krónum 23.10.2006 10:28 Önnur umferð nauðsynleg í Búlgaríu Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu og frambjóðandi sósíalista, vann fyrri umferð forsetakosninga í Búlgaríu með miklum yfirburðum. Hins vegar var þátttaka í kosningunum svo lítil að nauðsynlegt er að kjósa að nýju í annarri umferð milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu. 22.10.2006 20:58 Paul stefnir á ferðamannastaði í Mexíkó Hitabeltisstormurinn Paul stefnir nú að Baja California skaganum við Kyrrahafsströnd Mexíkós. Búist er við að veðurhamurinn fari yfir skagann nálægt Los Cabos, sem er vinsæll ferðamannastaður. Veðurfræðingar í Bandaríkjunum segja að vart hafi verið við storminn yfir Kyrrahafi á laugardag og að hann muni ná miklum styrk á þriðjudag. 22.10.2006 19:05 Segjast komnir á spor morðingjanna Vararíkissaksóknari Rússlands segir að þeir séu komnir á sporið af morðingjum blaðakonunnar Önnu Politkovskaju. 22.10.2006 18:38 Fulltrúi Sþ rekinn frá Súdan Stjórnvöld í Súdan hafa rekið sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi, vegna ummæla sem hann setti á blogg-síðu sína. Honum er gert að fara úr landi innan 72 klukkustunda. 22.10.2006 17:02 Spánarkonungur sagður hafa skotið drukkið bjarndýr Juan Carlos, konungur Spánar, hefur verið sakaður um að hafa skotið mannelskt drukkið bjarndýr til bana, þegar hann var í veiðiferð í Rússlandi, í sumar. 22.10.2006 16:07 Hersveitum Fatah skipað í viðbragsstöðu vegna morðs 22.10.2006 15:17 Norðmenn selja Bandaríkjunum orrustuþotur 22.10.2006 13:26 Nýrnasjúkdómur herjar á norskan lax Norðmenn eru að hefja umfangsmiklar rannsóknir á laxveiðiám sínum eftir að sýktir laxar fundust í þrem ám þar í landi. 22.10.2006 12:28 Fjármál Carls Bildt til rannsóknar Carld Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, þarf nú væntanlega að sæta rannsókn vegna hlutabréfa sem hann á í fyrirtæki sem heitir Vostok Nafta. 22.10.2006 11:35 Bush tapar í þingkosningunum -samkvæmt skoðanakönnun 22.10.2006 11:15 Leita að nýju að líkamsleifum Leit er hafin að nýju að líkamsleifum fólks sem fórst í hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir rúmlega fimm árum, eftir að mannabein fundust í holræsum við svæðið þar sem turnarnir stóðu. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, meðal annars fótleggi og handleggi að því talið er. 21.10.2006 19:30 Öldruð kynbomba giftir sig Ítalska þokkagyðjan og leikkonan Gina Lollobrigida gekk í dag að eiga spánverjann Javier Rigau y Rafols. Brúðkaupið fór fram New York en parið kynntist fyrst í Monte Carlo fyrir 22 árum. Leikkonan sem er orðin 79 ára gömul er af mörgum talin ein fallegasta kona í heima. Eiginmaður hennar er töluvert yngri eða þrjátíu og fjórum árum. 21.10.2006 15:45 Borgaryfirvöld í New York fyrirskipa nýja leit að líkamsleifum Leit er hafin að nýju að líkamsleifum sumra þeirra sem fórust í hryðjuverkaárisinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir fimm árum, að tilstuðlan borgaryfirvalda. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, fótleggi og handleggi að því talið er. Holræsið varð fyrir skemmdum þegar turnarnir féllu og fyrst nú átti að hreinsa út úr því. 21.10.2006 12:45 Rice í Moskvu til að ræða málefni Norður-Kóreu Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ekkert liggja fyrir um að Norður-Kóreumenn ætli sér að hætta við tilraunir með kjarnorkuvopn. Hún kom til Moskvu í morgun, meðal annars til að ræða málefni Norður-Kóreu. 21.10.2006 12:15 Putin segir stjórnvöld í Georgíu tefla á tvær hættur Putin Rússlandsforseti sagði leiðtogum Evrópusambandsins í gærkvöldi að stjórnvöld í Georgíu væru að tefla á tvær hættur með því að reyna að ná aftur stjórn héraða þar sem uppreisnarmenn ráða ríkjum. Hann sagði að stjórnvöld í Tibilisi stefndu að blóðsúthellingum með uppbyggingu herafla við héruðin Abkasíu og Suður-Ossetíu. 21.10.2006 11:00 Óttast um framgang friðarviðræðna Átök héldu áfram milli stjórnarhersins á Sri Lanka og tamíltígra í nótt. Talsmaður sjóhersins segir að herinn hafi sökkt sjö varðskipum tamíltígra, sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla á eyjunni, sem er við suðurodda Indlandsskagans. 21.10.2006 10:30 Hættir viðræðum við Farc-skæruliða Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, hefur hætt viðræðum um fangaskipti við Farc-skæruliða. Uribe kennir skæruliðunum um sprengjuárás í höfuðborginni, Bogota, í gær. Rúmlega 20 særðust í árásinni. Uribe segir nú ekki hægt að gera annað en að senda herinn til að bjarga gíslum úr klóm skæruliðanna. Um það bil 3.000 gíslar eru í haldi skæruliðanna, þar á meðal um það bil 60 stjórnmálamenn og útlendingar. 20.10.2006 23:50 34 ára aldursmunur Ítalska kvikmyndaleikkonan Gina Lollobrigida, sem eitt sinn var sögð fallegasta kona í heimi, ætlar að ganga að eiga mann sem er 34 árum yngri en hún. Lollobrigida, sem er 79 ára, segir í viðtali við spænska glanstímaritið Hola að hún ætli að ganga að eiga spænska kaupsýslumanninn Javier Rigau, sem er 45 ára. Hún kynntist honum í samkvæmi í Monte Carlo árið 1984 og hafa þau hittst á laun síðan þá, eða í 22 ár. 20.10.2006 23:39 Mannfallstölur fást ekki lengur frá íraska heilbrigðisráðuneytinu Íraska heilbrigðisráðuneytið mun ekki lengur veita Sameinuðu þjóðunum upplýsingar um mannfall meðal almennra borgara í Írak. Þar með fá samtökin ekki lengur mikilvægar upplýsingar sem gera þeim mögulegt að leggja mat á hversu alvarleg áhrif átök í landinu hafi á almenna borgara. Upplýsingar um mannfall munu framvegis koma frá skrifstofu forstætisráðherra Íraks og telja fulltrúar SÞ það bjóða þeirri hættu heim að upplýsingagjöf um mannfall verði of lituð af hagsmunum ráðamanna í landinu og því mjög pólitísk. 20.10.2006 21:53 NBC sýnir ekki krossfestingu Madonnu Upptaka af sviðsettri krossfesting poppsöngkonunnar Madonnu á frá nýjustu tónleikaferð hennar verður ekki meðal þess sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC helypir í loftið þegar hún sjónvarpar upptöku af tónleikum hennar í næsta mánuði. Athæfi söngkonunnar hefur vakið mikla reiði meðal kristinna trúarhópa í Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltrúar þeirra hafa fordæmt Madonnu sagt hana and-kristna og fremja helgispjöll og guðlast. Því neitar söngkonan og segir þetta gert á þeim hluta tónleikanna þegar hún kalla á fjárframlög til góðagerðarsamtaka sem hjálpa alnæmissjúkum í Afríku. 20.10.2006 21:27 Jarðskjálfti skók norð vestur hluta Tyrklands Jarðskjálfti sem mældist 5,2 á Richter skók norð-vesturhluta Tyrklands í dag. Íbúar í Istanbúl fundu fyrir skjálftanum. Upptök hans voru í Balikesir-héraði sem er hinumegin við Marmarahafið frá Istanbúl. Ekki hafa borist fregnir af því að nokkur hafi týnt lífi eða hve margir hafi slast og ekki er vitað hvort miklar skemmdir hafi orðið. 20.10.2006 20:45 Sjá næstu 50 fréttir
Boraði niður á sprengju Borgarstarfsmaður í Aschaffenburg í Þýskalandi lét lífið þegar hann var að brjóta upp steinsteypu á hraðbrautinni milli Würzburg og Frankfurt. Stórvirk vinnuvél sem maðurinn var að vinna með sprakk þegar hún kom niður á sprengju úr Síðari heimsstyrjöldinni sem lá ósprungin undir steinsteypunni. Sprengjan sprakk þegar með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnuvélin gjöreyðilagðist. 23.10.2006 18:02
Skólarúta valt á Spáni 10 börn slösuðust, þar af 2 alvarlega, þegar skólarúta valt í Zaragoza-héraði á norðaustur Spáni í dag. 50 börn voru um borð í rútunni þegar slysið varð. Rútan valt á aðrein á akbraut nærri bænum Villamayor. 23.10.2006 17:45
18 manna áhöfn saknað 18 manna áhöfn rússnesks flutningaskips sökk undan norð-austur strönd Suður-Kóreu í dag. Verið var að flytja timbur frá Austur-Rússlandi til Kína. 23.10.2006 17:37
Óvíst um framsal Stjórnvöld í Namibíu hafa ekki fengið beiðni frá bandarískum stjórnvöldum um að framselja kvikmyndaleikarann Wesley Snipes sem er ákærður fyrir að hafa svikið jafnvirði rúmlega 800 milljóna íslenskra króna undan skatti. Snipes er nú staddur í Namibíu við tökur á næstu kvikmynd sinni. 23.10.2006 17:25
Rússneskir embættismenn neita að skrá stjórnarandstöðuflokk Rússneskir embættismenn sögðu í dag að þeir hefðu hafnað umsókn til þess að skrá stjórnarandstöðuflokk sem fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, Mikhail Kasyanov, er í forsvari fyrir. 23.10.2006 15:59
Kaupa 500 þúsund plastpoka vegna nýrra reglna Forsvarsmenn Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn hafa fest kaup á 500 þúsund plastpokum til þess að geta mætt nýjum reglum Evrópusambandsins eftir tvær vikur. 23.10.2006 15:51
Íran heldur kjarnorkutilraunum áfram Ráðamenn í Íran hafa sett í gang aðra úranínum-auðgunarsamstæðu þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna. 23.10.2006 15:35
Segir yfir 50 manns hafa verið handtekna í tengslum við spillingu í Kína Yfir fimmtíu manns úr kínversku viðskiptalífi og stjórnkerfi landsins hafa verið handteknir eftir að upp komst um spillingu í tengslum við félagslega sjóði í borginni Shanghai. 23.10.2006 15:18
Condoleezza Rice gagnrýnir súdönsk yfirvöld Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ákvörðun súdanskra yfirvalda um að reka sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna, Jan Pronk, úr landi hafi verið "ákaflega óheppileg". 23.10.2006 14:41
Lögregla skýtur á mótmælendur í Ungverjalandi Vitni segja að lögregla hafi skotið gúmmíkúlum á mótmælendur í Ungverjalandi til þess að reyna að dreifa úr hópi þeirra. 23.10.2006 14:38
Ísraelar skutu sjö til bana á Gaza Ísraelskar hersveitir skutu til bana sjö Palestínumenn í morgun, þar af þrjá bræður. Fjórtán aðrir særðust í árásinni, sem var gerð á fyrsta degi aðalhátíðar múslima, Eid al-Fitr. 23.10.2006 14:20
Yfirvöld í Íran banna umbótasinnað dagblað Yfirvöld í Íran hafa bannað umbótasinnað dagblað sem var aðeins viku gamalt. Bannið var á þeim grundvelli að blaðið væri einfaldlega nýtt nafn á öðru blaði sem hefði verið bannað í september síðastliðnum. 23.10.2006 14:02
Október blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher Októbermánuður er þegar orðinn blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher í Írak. Tíu hermenn létust um helgina og hafa því alls 85 bandarískir hermenn fallið í mánuðinum sem er níu mönnum meira en í apríl síðastliðnum. 23.10.2006 14:00
Reykingabann í Hong Kong Reykingabann á opinberum stöðum í Hong Kong mun taka gildi í Janúar á næsta ári. 23.10.2006 13:37
Sprenging í Þýskalandi hugsanlega af völdum gamallar sprengju Verkamaður lést og fimm slösuðust þegar sprenging varð við vegavinnu á hraðbraut í Bæjaralandi í suðurhluta Þýskalands í dag. Lögregla telur hugsanlegt að vegavinnuvél hafi verið ekið á sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni. 23.10.2006 13:29
Páfi að endurvekja gamlar hefðir innan kaþólsku kirkjunnar Benedikt Páfi er að velta fyrir sér að enduvekja svokallaða latneska messu í kaþólsku kirkjunni og hefur tillagan mætt andstöðu innan kirkjunnar. 23.10.2006 13:13
Átök á afmæli uppreisnarinnar í Ungverjalandi Til átaka kom í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í morgun þar sem þess var minnst að hálf öld er liðin frá uppreisninni í landinu. Nokkur fjöldi fólks hafði komið sér fyrir á torginu fyrir framan þinghúsið í borginni til að lýsa andstöðu sinni við Ferenc Gyurcsani forsætirsáðherra en þar inni fór fram athöfn í tilefni tímamótanna. 23.10.2006 12:45
Hægri-öfga flokkur gengur í ríkisstjórn Ísraels Leiðtogi hægri-öfga flokksins Yisrael Beitenu sagði í dag að flokkurinn myndi ganga í ríkisstjórn Ehuds Olmert á morgun. 23.10.2006 12:39
Bretar ætla að halda ótrauðir áfram í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fullvissaði Íraka í morgun um að Bretar ætli að halda ótrauðir áfram starfi sínu í Írak. 23.10.2006 12:15
Talibanar ætla að ráðast gegn Evrópubúum Foringi í liði talibana, Mullah Muhammad Amin, sagði í morgun að talibanar stefndu á árás á Bretland og Evrópu. Í einkaviðtali við Sky fréttastofuna sagði Amin að samtökin ættu gnægð vopna og að óbreyttum borgurum á Vesturlöndum yrði ekki hlíft enda hefðu þeir komið Bush og Blair til valda með atkvæðum sínum. 23.10.2006 12:05
Ísrael krefst aðgerða vegna stefnu Írana Forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert, skoraði í dag á alþjóðasamfélagið að refsa forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, fyrir að að hafa krafist eyðileggingar Ísraels 23.10.2006 11:29
Útgöngubanni komið á í Amara Yfirvöld í Írak hafa komið á útgöngubanni í bænum Amara í suðurhluta landsins vegna átaka milli andófsmanna úr röðum sjíta og lögreglu undanfarna daga. 23.10.2006 11:23
Dómur kveðinnn upp yfir Skilling vegna Enron-máls Dómur verður kveðinn upp í Houston í Bandaríkjunum í dag yfir Jeffrey Skilling, fyrrverandi framkvæmdastjóra orkurisans Enron, sem varð gjaldþrota fyrir fimm árum. 23.10.2006 11:14
Rússneskur hermaður seldur sem þræll Lögfræðingur í Rússlandi skýrði frá því í dag að hún væri með skjólstæðing sem hefði verið seldur sem þræll úr hernum. Hermaðurinn hafði verið seldur ásamt skurðgröfu á um 1.300 dollara, sem samsvarar um nítíu þúsund íslenskum krónum 23.10.2006 10:28
Önnur umferð nauðsynleg í Búlgaríu Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu og frambjóðandi sósíalista, vann fyrri umferð forsetakosninga í Búlgaríu með miklum yfirburðum. Hins vegar var þátttaka í kosningunum svo lítil að nauðsynlegt er að kjósa að nýju í annarri umferð milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu. 22.10.2006 20:58
Paul stefnir á ferðamannastaði í Mexíkó Hitabeltisstormurinn Paul stefnir nú að Baja California skaganum við Kyrrahafsströnd Mexíkós. Búist er við að veðurhamurinn fari yfir skagann nálægt Los Cabos, sem er vinsæll ferðamannastaður. Veðurfræðingar í Bandaríkjunum segja að vart hafi verið við storminn yfir Kyrrahafi á laugardag og að hann muni ná miklum styrk á þriðjudag. 22.10.2006 19:05
Segjast komnir á spor morðingjanna Vararíkissaksóknari Rússlands segir að þeir séu komnir á sporið af morðingjum blaðakonunnar Önnu Politkovskaju. 22.10.2006 18:38
Fulltrúi Sþ rekinn frá Súdan Stjórnvöld í Súdan hafa rekið sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi, vegna ummæla sem hann setti á blogg-síðu sína. Honum er gert að fara úr landi innan 72 klukkustunda. 22.10.2006 17:02
Spánarkonungur sagður hafa skotið drukkið bjarndýr Juan Carlos, konungur Spánar, hefur verið sakaður um að hafa skotið mannelskt drukkið bjarndýr til bana, þegar hann var í veiðiferð í Rússlandi, í sumar. 22.10.2006 16:07
Nýrnasjúkdómur herjar á norskan lax Norðmenn eru að hefja umfangsmiklar rannsóknir á laxveiðiám sínum eftir að sýktir laxar fundust í þrem ám þar í landi. 22.10.2006 12:28
Fjármál Carls Bildt til rannsóknar Carld Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, þarf nú væntanlega að sæta rannsókn vegna hlutabréfa sem hann á í fyrirtæki sem heitir Vostok Nafta. 22.10.2006 11:35
Leita að nýju að líkamsleifum Leit er hafin að nýju að líkamsleifum fólks sem fórst í hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir rúmlega fimm árum, eftir að mannabein fundust í holræsum við svæðið þar sem turnarnir stóðu. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, meðal annars fótleggi og handleggi að því talið er. 21.10.2006 19:30
Öldruð kynbomba giftir sig Ítalska þokkagyðjan og leikkonan Gina Lollobrigida gekk í dag að eiga spánverjann Javier Rigau y Rafols. Brúðkaupið fór fram New York en parið kynntist fyrst í Monte Carlo fyrir 22 árum. Leikkonan sem er orðin 79 ára gömul er af mörgum talin ein fallegasta kona í heima. Eiginmaður hennar er töluvert yngri eða þrjátíu og fjórum árum. 21.10.2006 15:45
Borgaryfirvöld í New York fyrirskipa nýja leit að líkamsleifum Leit er hafin að nýju að líkamsleifum sumra þeirra sem fórust í hryðjuverkaárisinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir fimm árum, að tilstuðlan borgaryfirvalda. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, fótleggi og handleggi að því talið er. Holræsið varð fyrir skemmdum þegar turnarnir féllu og fyrst nú átti að hreinsa út úr því. 21.10.2006 12:45
Rice í Moskvu til að ræða málefni Norður-Kóreu Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ekkert liggja fyrir um að Norður-Kóreumenn ætli sér að hætta við tilraunir með kjarnorkuvopn. Hún kom til Moskvu í morgun, meðal annars til að ræða málefni Norður-Kóreu. 21.10.2006 12:15
Putin segir stjórnvöld í Georgíu tefla á tvær hættur Putin Rússlandsforseti sagði leiðtogum Evrópusambandsins í gærkvöldi að stjórnvöld í Georgíu væru að tefla á tvær hættur með því að reyna að ná aftur stjórn héraða þar sem uppreisnarmenn ráða ríkjum. Hann sagði að stjórnvöld í Tibilisi stefndu að blóðsúthellingum með uppbyggingu herafla við héruðin Abkasíu og Suður-Ossetíu. 21.10.2006 11:00
Óttast um framgang friðarviðræðna Átök héldu áfram milli stjórnarhersins á Sri Lanka og tamíltígra í nótt. Talsmaður sjóhersins segir að herinn hafi sökkt sjö varðskipum tamíltígra, sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla á eyjunni, sem er við suðurodda Indlandsskagans. 21.10.2006 10:30
Hættir viðræðum við Farc-skæruliða Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, hefur hætt viðræðum um fangaskipti við Farc-skæruliða. Uribe kennir skæruliðunum um sprengjuárás í höfuðborginni, Bogota, í gær. Rúmlega 20 særðust í árásinni. Uribe segir nú ekki hægt að gera annað en að senda herinn til að bjarga gíslum úr klóm skæruliðanna. Um það bil 3.000 gíslar eru í haldi skæruliðanna, þar á meðal um það bil 60 stjórnmálamenn og útlendingar. 20.10.2006 23:50
34 ára aldursmunur Ítalska kvikmyndaleikkonan Gina Lollobrigida, sem eitt sinn var sögð fallegasta kona í heimi, ætlar að ganga að eiga mann sem er 34 árum yngri en hún. Lollobrigida, sem er 79 ára, segir í viðtali við spænska glanstímaritið Hola að hún ætli að ganga að eiga spænska kaupsýslumanninn Javier Rigau, sem er 45 ára. Hún kynntist honum í samkvæmi í Monte Carlo árið 1984 og hafa þau hittst á laun síðan þá, eða í 22 ár. 20.10.2006 23:39
Mannfallstölur fást ekki lengur frá íraska heilbrigðisráðuneytinu Íraska heilbrigðisráðuneytið mun ekki lengur veita Sameinuðu þjóðunum upplýsingar um mannfall meðal almennra borgara í Írak. Þar með fá samtökin ekki lengur mikilvægar upplýsingar sem gera þeim mögulegt að leggja mat á hversu alvarleg áhrif átök í landinu hafi á almenna borgara. Upplýsingar um mannfall munu framvegis koma frá skrifstofu forstætisráðherra Íraks og telja fulltrúar SÞ það bjóða þeirri hættu heim að upplýsingagjöf um mannfall verði of lituð af hagsmunum ráðamanna í landinu og því mjög pólitísk. 20.10.2006 21:53
NBC sýnir ekki krossfestingu Madonnu Upptaka af sviðsettri krossfesting poppsöngkonunnar Madonnu á frá nýjustu tónleikaferð hennar verður ekki meðal þess sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC helypir í loftið þegar hún sjónvarpar upptöku af tónleikum hennar í næsta mánuði. Athæfi söngkonunnar hefur vakið mikla reiði meðal kristinna trúarhópa í Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltrúar þeirra hafa fordæmt Madonnu sagt hana and-kristna og fremja helgispjöll og guðlast. Því neitar söngkonan og segir þetta gert á þeim hluta tónleikanna þegar hún kalla á fjárframlög til góðagerðarsamtaka sem hjálpa alnæmissjúkum í Afríku. 20.10.2006 21:27
Jarðskjálfti skók norð vestur hluta Tyrklands Jarðskjálfti sem mældist 5,2 á Richter skók norð-vesturhluta Tyrklands í dag. Íbúar í Istanbúl fundu fyrir skjálftanum. Upptök hans voru í Balikesir-héraði sem er hinumegin við Marmarahafið frá Istanbúl. Ekki hafa borist fregnir af því að nokkur hafi týnt lífi eða hve margir hafi slast og ekki er vitað hvort miklar skemmdir hafi orðið. 20.10.2006 20:45