Fleiri fréttir Forsætisráðherrar vilja auka samstarfið 18.10.2006 17:09
500 konur í kynlífsþrælkun á Kanaríeyjum 17.10.2006 12:55 Segja refsiaðgerðir jafngilda stríðsyfirlýsingu Norður-Kóreumenn segja að refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkutilrauna þeirra jafngildi stríðsyfirlýsingu. Vísbendingar eru um að önnur tilraunasprenging sé í bígerð. 17.10.2006 12:01 Breskar sveitir hverfa frá bæ í Helmand-héraði Breskar hersveitir hafa dregið sig út úr bænum Musa Qala í Helmand-héraði í Afganistan þar sem hörð átök við uppreisnarmenn talibana hafa staðið yfir undanfarna mánuði. 17.10.2006 11:38 Kvarta til siðanefndar vegna myndbirtingar Nyhedsavisen Ungliðahreyfing Danska þjóðarflokksins hefur ákveðið að kvarta til siðanefndar danska blaðamannafélagsins vegna þess að Nyhedsavisen birti á dögunum myndir af fundi hreyfingarinnar þar sem félagar teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. 17.10.2006 11:15 Nauðlenti á leið til Íslands Þota frá norska flugfélaginu Braathens, sem var á leið frá Osló til Keflavíkur, nauðlenti í gær í Stafangri eftir að sprunga kom í framrúðu vélarinnar. 108 farþegar voru um borð í vélinni sem var af gerðinni Boeing 737. 17.10.2006 11:01 Hryðjuverkaárás æfð í Osló 17.10.2006 10:33 30 ríki gætu þróað kjarnorkuvopn Allt að 30 ríki gætu þróað kjarnorkuvopn ef ekkert verður að gert. Þetta er mat fulltrúa Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. 9 ríki heims ráða yfir kjarnorkuvopnum nú svo vitað sé. 16.10.2006 22:30 Ólíklegt að Venesúela fái sæti í Öryggisráði SÞ Litlar líkur eru taldar á því að Venesúela fái sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til næstu 2 ára eftir að Gvatemala hafði betur í sjöundu leynilegu atkvæðagreiðslunni um sæti í ráðinu í dag. Ríkin tvö berjast um sæti sem ríki Rómönsku-Ameríku á rétt á. Annað ríkið þarf að fá 2/3 atkvæða á Allsherjarþingi samtakanna til að hreppa hnossið. 16.10.2006 21:21 Hvarf á flugi yfir Eystrasalti Þyrlur frá Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi eru nú við leit af lítilli flugvél sem hvarf á flugi yfir Eystrasalti. Flugmaður og tveir aðrir voru um borð á leið frá Berlín í Þýskalandi til Svíþjóðar. 16.10.2006 21:01 Abramovich í klemmu Rússneski auðkýfingurinn, Roman Abramovich, gæti þurft að láta eiginkonu sína Irinu fá helming eigna sinna í skilnaðarmáli sem sagt er vera í uppsiglingu. 16.10.2006 19:15 Hremmingar sænsku stjórnarinnar halda áfram Cecilia Stego Chilo, menntamálaráðherra Svíþjóðar, sagði af sér embætti í dag eftir að uppvíst varð að hún hefði svikist undan því að greiða sjónvarpsafnotagjöld árum saman. Aðeins tveir dagar eru liðnir frá því að viðskiptaráðherra landsins sagði af sér af svipuðum ástæðum. 16.10.2006 19:00 Katsav sakaður um nauðganir Ísraelska lögreglan telur að nægilegar vísbendingar séu fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir, kynferðislega áreitni, umboðssvik og símahleranir. 16.10.2006 18:45 Hundrað sjóliðar dóu í sprengjutilræði Um hundrað sjóliðar úr srí-lankska hernum biðu bana í bílsprengjuárás Tamíl-tígra í morgun. Óttast er að tilræðið spilli verulega fyrir friðarviðræðum ríkisstjórnarinnar og tígranna sem fram eiga að fara í lok mánaðarins. 16.10.2006 18:30 Önnur tilraun með kjarnorkusprengju ekkert annað en ögrun Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist vona að Norður-Kóreumenn sprengi ekki aðra kjarnorkusprengju í tilraunaskyni. Það myndi aðeins vera hægt að túlka sem ögrun og yrði enn frekar til að einangra þjóðina. 16.10.2006 18:23 Grunaðir um morðið á Kozlov Saksóknari í Rússlandi hefur greint frá því að tilteknir ónafngreindir menn séu grunaðir um morðið á einum æðsta stjórnanda Seðlabankans rússneska. Rússenskir fjölmiðlar segja þrjá Úkraínumenn í haldi lögreglu vegna málsins. Talið er að morðið tengist hertum aðgerðum hans gegn peningaþvætti í landinu. 16.10.2006 17:58 Tekinn af allur vafi Loftsýni sem sérfræðingar bandarísku leyniþjónustunnar, tóku í síðustu viku staðfesta það að Norður-kóreumenn hafi sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni fyrir viku. Í yfirlýsingur segir að rannsóknir bendi til þess að kraftur sprengingarinnar hafi verið innan við 1 kílótonn sem er innan við tíu sinnum kraftminni sprengja en sú sem varpað var á Hiroshima árið 1945. 16.10.2006 17:46 Siniora hafnar boði Olmerts um friðarviðræður Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, hafnaði í dag boði Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, um friðarviðræður milli landanna. Siniora sagði að Líbanon væri síðasta landið sem myndi gera einhvers konar samkomulag við Ísraelsríki. 16.10.2006 17:30 Seldi garð nágrannans 16.10.2006 16:21 Mannskæð bílsprengjuárás í Bagdad Tuttugu létust og 17 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu samtímis í norðurhluta Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við sólsetur í Írak skömmu fyrir Iftar, en það er þegar múslímar rjúfa föstu sína sem stendur yfir frá sólarupprisu til sólseturs dag hvern í helga mánuðinum Ramadan. 16.10.2006 15:46 ICES vill veiðibann á þorsk í Norðursjó 16.10.2006 15:45 Fjölskyldur neyða stúlkur til sjálfsmorða 16.10.2006 14:49 Heimilt að raða börnum eftir tungumálakunnáttu 16.10.2006 14:25 Sjá næstu 50 fréttir
Norðmenn senda ekki fleiri hermenn til Afganistans Norðmenn munu ekki senda sérsveitir til Afganistans eins og Atlantshafsbandalagið hafði farið fram á við þá. Þetta tilkynnti Jona Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, á blaðamannafundi í norska Stórþinginu í dag. 18.10.2006 15:40
Hvalveiðiþjóðir fagna Hvalveiðiþjóðir, með Norðmenn og Japani í broddi fylkingar, fagna hvalveiðiákvörðun Íslendinga. Norðmenn stunduðu áður einir þjóða atvinnuveiðar á hval en Japanir hafa stundað vísindaveiðar. Karsten Klepsvik, fulltrúi Norðamanna í Alþjóðahvalveiðiráðinu segir í samtali við AFP fréttastofuna í dag, að fullgildar ástæður séu til að leyfa veiðarnar og ákvörðun Íslendinga hjálpi til að gera þær að eðlilegum hlut. Japönsk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig formlega um málið en Hideaki Okada, fulltrúi í japanska sjávarútvegsráðuneytinu, segir að Japanir styðji það sjónarmið að sjálfbærar veiðar á einstökum hvalategundum séu mögulegar. 18.10.2006 15:05
Frjáls félagasamtök þurfa að hætta starfsemi Tugir frjálsra félagssamtaka í Rússlandi, þar á meðal Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch), þurfa að hætta starfsemi sinni þar sem þau hafa ekki skráð sig hjá stjórnvöldum samkvæmt nýjum lögum. 18.10.2006 14:00
Útilokar að herinn verði kvaddur heim frá Írak á næstunni Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði það yrðu stórkostleg mistök að kalla breska hermenn heim frá Írak á næstunni og slíkt kæmi ekki til greina. Þetta kom í fyrirspurnartíma á breska þinginu í morgun. 18.10.2006 13:22
Nýsjálendingar segja ákvörðun Íslendinga aumkunarverða Tortryggni og undrun eru leiðarstef í umfjöllun erlendra fjölmiðla um ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar að heimila atvinnuhvalveiðar. Einna hörðust hafa viðbrögðin verið í Nýja-Sjálandi en þarlend stjórnvöld segja ákvörðunina aumkunarverða. 18.10.2006 13:15
Svisslendingar panta bóluefni gegn fuglaflensu Sviss varð í dag fyrsta landið til að panta birgðir af tilraunabólefni gegn fuglaflensu sem lyfjarisinn GlaxoSmithKline hefur þróað. Fram kemur á fréttavef Reuters að svissnesk heilbrigðisyfirvöld hafi pantað átta milljónir skammta af bóluefninu, fyrir alla þjóðina, til að reyna að koma í veg fyrir að fuglaflensa geti orðið að faraldri í landinu. 18.10.2006 11:43
Drápu son sinn með því að loka hann inni í ferðatösku Dómstóll í Hong Kong dæmdi í dag karl og konu í annars vegar eins og hálfs árs og hins vegar tveggja ára fangelsi fyrir að hafa drepið tíu ára gamlan son sinn með því að loka hann inni í ferðatösku í tvo tíma. 18.10.2006 11:11
West Ham ræðir við tvo hópa um kaup Terry Brown, stjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, hyggst á næstu dögum ræða við tvo hópa um hugsanleg kaup á félaginu, en annar þeirra er íslenskur hópur sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fer fyrir. 18.10.2006 10:59
Töluverðar skemmdir í jarðskjálfta Kostnaður vegna skemmdir sem urðu þegar jarðskjálfti skók Hawaii á sunnudaginn nemur jafnvirði tæpra þriggja milljarða íslenskra króna. Skjálftinn mældist 6,7 á Richter og er sá öflugasti sem riðið hefur yfir eyjaklasann á Kyrrahafi í tvo áratugi. Óttast er að talan eigi eftir að hækka en starfsmenn Rauða krossins, björgunarsveita á Hawaii og hópur verkfræðinga skoðar nú eyjarnar til að meta skemmdir á vegum, brúm, skólum og öðrum byggingum. Enginn dó í skjálftanum og enginn slasaðist alvarlega. 17.10.2006 23:45
Enn óvíst hverjir taka sæti Argentínu í Öryggisráði SÞ Atkvæðagreiðslum um arfta Argentínumanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hefur verið frestað um sólahring svo hægt verði að ræða næstu skref. Gvatemala og Venesúela berjast um sætið en hvorugu ríki hefur tekist að fá 2/3 atkvæða á Allsherjarþinginu sem þarf til að hreppa hnossið. Í dag og í gær er búið að greiða atkvæði 21 sinni og hefur Gvatemala haft vinningin, en betur má ef duga skal. 17.10.2006 23:00
8 týndu lífi í sprengingu í Mexíkó Að minnsta kosti 8 týndu lífi þegar sprenging var um borð í olíuflutningaskipi í eigu olíufélags frá Mexíkó. Verið var að dæla af skipinu við höfn í Veracruz þegar sprengingin varð. 17.10.2006 22:45
Bush styður aðild Króatíu að ESB og NATO Bush Bandaríkjaforseti ætlar að hvetja til þess á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í næsta mánuði að Króatía verði tekin inn í bandalagið. Auk þess ætlar hann að ítreka stuðning bandarískra stjórnvalda við aðild landsins að Evrópusambandinu. 17.10.2006 22:21
Dómi yfir Kenneth Lay hrundið Dómstóll í Bandaríkjunum hratt í dag fjársvikadómi yfir Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóra olíurisans Enron, á þeim forsendum að hann gæti ekki áfrýjað honum. Lay lést í júlí síðastliðnum, tveimur mánuðum eftir að hann var sakfelldur fyrir fjársvik og samsæri í tengslum við gjaldþrot fyrirtækisins árið 2001. 17.10.2006 21:57
Aðstoð Írana og Sýrlendinga æskileg Ofbeldisátökum í Írak myndi linna innan fárra mánaða ef Íranar og Sýrlendingar tækju þátt í því að reyna að tryggja stöðugleika í landinu. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks í viðtali við Breska ríkisútvarpið, BBC, í dag. Hann sagði að slíkt yrði upphafið á endalokum hryðjuverka í heiminum. 17.10.2006 21:43
Þjóðaratkvæði um vafamál Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segir að svo geti farið að hann boði til þjóðaratkvæðagreiðslna um ákvarðanir sem hann taki í tengslum við framtíð heimastjórnar Palestínumanna sem skipuð er Hamas-liðum. Ef stjórnarskrá taki ekki á tilteknum máli ætli hann að leita álits almennings. 17.10.2006 19:53
Þjóðarflokkurinn kærir Nyhedsavisen Ungliðahreyfing Danska þjóðarflokksins hefur kært dagblaðið Nyhedsavisen til fjölmiðlasiðanefndar vegna myndbirtingar þess af lokaðri samkomu hreyfingarinnar. 17.10.2006 19:01
Óttast frekari tilraunasprengingar Norður-Kóreumenn líta á refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna, vegna kjarnorkutilrauna þeirra, sem stríðsyfirlýsingu. Óttast er að þeir hyggi á frekari tilraunasprengingar. 17.10.2006 18:59
Gvatemala hefur áfram forskot á Venesúela Gvatemala hefur áfram forskot á Venesúela í atkvæðagreiðslu um sæti til 2 ára í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Atkvæði voru greidd milli ríkjanna 10 sinnum á Allsherjarþingi SÞ í gær en þá var atkvæðagreiðslu frestað til morguns. Aftur var tekið til óspilltra málanna í dag og heldur Gvatemala áfram forskoti sínu en nær þó ekki 2/3 atkvæða sem þarf til að hreppa hnossið. 17.10.2006 17:33
Bandaríkjaforseti staðfestir frumvarp um yfirheyrsluaðferðir George Bush, Bandaríkjaforseti, staðfesti í dag lagafrumvarp þar sem skilgreint er hvað leyfist við yfirheyrslur á grunuðum hryðjuverkamönnum. Frumvarpið skilgreinir einnig hvernig rétta skal yfir þeim. Markmiðið með lagasetningunni er að tryggja það að mannréttindi fanganna séu virt en samt er að finna ákvæði í þeim sem takmarka rétt þeirra til að kæra varðhald þeirra og jafnvel fá því hnekkt. 17.10.2006 17:09
Þýskir hermenn sakaðir um ofbeldi gagnvart fanga í Afganistan Þýsk yfirvöld rannsaka nú hvort Tyrki með dvalarleyfi í Þýskalandi hafi sætt ofbeldi af hálfu þýskra hermanna í Afganistan áður en hann var sendur í fangabúðirnar við Guantanamo-flóa. 17.10.2006 15:21
Gæti þurft að láta helming eigna sinna af hendi við skilnað Rússneski auðkýfingurinn, Roman Abramovich, gæti þurft að láta eiginkonu sína Irinu fá helming eigna sinna í skilnaðarmáli sem sagt er vera í uppsiglingu. 17.10.2006 13:15
Yfir hundrað sagðir slasaðir eftir lestarslys í Róm Einn er nú sagður látinn og 110 slasaðir, þar af fimm mjög alvarlega, eftir árekstur tveggja neðanjarðarlesta í jarðlestakerfi Rómar í morgun. Áreksturinn varð við lestarstöð í miðborg Rómar og var torg fyrir ofan stöðina girt af í kjölfar þess. 17.10.2006 13:00
Segja refsiaðgerðir jafngilda stríðsyfirlýsingu Norður-Kóreumenn segja að refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkutilrauna þeirra jafngildi stríðsyfirlýsingu. Vísbendingar eru um að önnur tilraunasprenging sé í bígerð. 17.10.2006 12:01
Breskar sveitir hverfa frá bæ í Helmand-héraði Breskar hersveitir hafa dregið sig út úr bænum Musa Qala í Helmand-héraði í Afganistan þar sem hörð átök við uppreisnarmenn talibana hafa staðið yfir undanfarna mánuði. 17.10.2006 11:38
Kvarta til siðanefndar vegna myndbirtingar Nyhedsavisen Ungliðahreyfing Danska þjóðarflokksins hefur ákveðið að kvarta til siðanefndar danska blaðamannafélagsins vegna þess að Nyhedsavisen birti á dögunum myndir af fundi hreyfingarinnar þar sem félagar teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. 17.10.2006 11:15
Nauðlenti á leið til Íslands Þota frá norska flugfélaginu Braathens, sem var á leið frá Osló til Keflavíkur, nauðlenti í gær í Stafangri eftir að sprunga kom í framrúðu vélarinnar. 108 farþegar voru um borð í vélinni sem var af gerðinni Boeing 737. 17.10.2006 11:01
30 ríki gætu þróað kjarnorkuvopn Allt að 30 ríki gætu þróað kjarnorkuvopn ef ekkert verður að gert. Þetta er mat fulltrúa Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. 9 ríki heims ráða yfir kjarnorkuvopnum nú svo vitað sé. 16.10.2006 22:30
Ólíklegt að Venesúela fái sæti í Öryggisráði SÞ Litlar líkur eru taldar á því að Venesúela fái sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til næstu 2 ára eftir að Gvatemala hafði betur í sjöundu leynilegu atkvæðagreiðslunni um sæti í ráðinu í dag. Ríkin tvö berjast um sæti sem ríki Rómönsku-Ameríku á rétt á. Annað ríkið þarf að fá 2/3 atkvæða á Allsherjarþingi samtakanna til að hreppa hnossið. 16.10.2006 21:21
Hvarf á flugi yfir Eystrasalti Þyrlur frá Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi eru nú við leit af lítilli flugvél sem hvarf á flugi yfir Eystrasalti. Flugmaður og tveir aðrir voru um borð á leið frá Berlín í Þýskalandi til Svíþjóðar. 16.10.2006 21:01
Abramovich í klemmu Rússneski auðkýfingurinn, Roman Abramovich, gæti þurft að láta eiginkonu sína Irinu fá helming eigna sinna í skilnaðarmáli sem sagt er vera í uppsiglingu. 16.10.2006 19:15
Hremmingar sænsku stjórnarinnar halda áfram Cecilia Stego Chilo, menntamálaráðherra Svíþjóðar, sagði af sér embætti í dag eftir að uppvíst varð að hún hefði svikist undan því að greiða sjónvarpsafnotagjöld árum saman. Aðeins tveir dagar eru liðnir frá því að viðskiptaráðherra landsins sagði af sér af svipuðum ástæðum. 16.10.2006 19:00
Katsav sakaður um nauðganir Ísraelska lögreglan telur að nægilegar vísbendingar séu fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir, kynferðislega áreitni, umboðssvik og símahleranir. 16.10.2006 18:45
Hundrað sjóliðar dóu í sprengjutilræði Um hundrað sjóliðar úr srí-lankska hernum biðu bana í bílsprengjuárás Tamíl-tígra í morgun. Óttast er að tilræðið spilli verulega fyrir friðarviðræðum ríkisstjórnarinnar og tígranna sem fram eiga að fara í lok mánaðarins. 16.10.2006 18:30
Önnur tilraun með kjarnorkusprengju ekkert annað en ögrun Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist vona að Norður-Kóreumenn sprengi ekki aðra kjarnorkusprengju í tilraunaskyni. Það myndi aðeins vera hægt að túlka sem ögrun og yrði enn frekar til að einangra þjóðina. 16.10.2006 18:23
Grunaðir um morðið á Kozlov Saksóknari í Rússlandi hefur greint frá því að tilteknir ónafngreindir menn séu grunaðir um morðið á einum æðsta stjórnanda Seðlabankans rússneska. Rússenskir fjölmiðlar segja þrjá Úkraínumenn í haldi lögreglu vegna málsins. Talið er að morðið tengist hertum aðgerðum hans gegn peningaþvætti í landinu. 16.10.2006 17:58
Tekinn af allur vafi Loftsýni sem sérfræðingar bandarísku leyniþjónustunnar, tóku í síðustu viku staðfesta það að Norður-kóreumenn hafi sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni fyrir viku. Í yfirlýsingur segir að rannsóknir bendi til þess að kraftur sprengingarinnar hafi verið innan við 1 kílótonn sem er innan við tíu sinnum kraftminni sprengja en sú sem varpað var á Hiroshima árið 1945. 16.10.2006 17:46
Siniora hafnar boði Olmerts um friðarviðræður Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, hafnaði í dag boði Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, um friðarviðræður milli landanna. Siniora sagði að Líbanon væri síðasta landið sem myndi gera einhvers konar samkomulag við Ísraelsríki. 16.10.2006 17:30
Mannskæð bílsprengjuárás í Bagdad Tuttugu létust og 17 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu samtímis í norðurhluta Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við sólsetur í Írak skömmu fyrir Iftar, en það er þegar múslímar rjúfa föstu sína sem stendur yfir frá sólarupprisu til sólseturs dag hvern í helga mánuðinum Ramadan. 16.10.2006 15:46