Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Bjarki Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2026 08:13 Kristín Helga Schiöth er fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar. Samfylkingin/Vísir/Viktor Freyr Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar er hugsi yfir því hve miklir peningar hins opinbera fara í uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga bæjarins. Hún stingur upp á því að félögin deili keppnisvelli, líkt og þekkist í töluvert stærri deildum en efstu og næstefstu deild á Íslandi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar vinnur nú að fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir þetta kjörtímabil. Tillögu meirihluta ráðsins hefur verið vísað til bæjarráðs til fyrstu umræðu. „Ég játa að þegar ég fékk loks tölurnar til yfirlestrar fannst mér svolítið erfitt að skilja samhengi þeirra. Kannski vegna þess að ég held hvorki með KA né Þór,“ segir Kristín Helga Sciöth, fulltrúi Samfylkingarinnar í ráðinu, í grein í Vikublaðinu. Í tillögunni er áætlað að þriðjungur framkvæmdafjár í A-hluta reksturs bæjarins, eða fjórir milljarðar króna, fari til Þórs og KA, sem eru stærstu íþróttafélög bæjarins. Í mars var undirritað samkomulag milli Þórs og bæjarins um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á svæði félagsins og KA hefur síðustu ár unnið að uppbyggingu nýrrar stúku og félagsheimilis. Kristín nefnir til samanburðar að 1,3 prósent fari til menningarmála og 0,34 prósent séu eyrnamerkt bruna- og almannavörnum. „Nú tel ég víst að einhverjir ranghvolfi augunum yfir þessum snemm-miðaldra antisportista sem skilur ekki mikilvægi íþróttamannvirkja. En skortur minn á keppnisskapi á áhorfendapöllum þýðir ekki að ég sé með öllu áhugalaus um íþróttastarf. Ég á til að mynda börn sem stunda íþróttir af kappi og veit mætavel hversu mikilvægt öflugt íþróttastarf og aðgengi að því er samfélaginu, ekki síst börnum og ungu fólki. Ég ber mikla virðingu fyrir hugsjónum þeirra sem standa að íþróttastarfi og öllu því öfluga sjálfboðaliða- og grasrótarstarfi sem fer fram í bænum,“ segir Kristín. Eitt megi ekki alltaf trompa allt annað Hins vegar haldi hún með öllu íþrótta-, menningar- og tómstundalífi á Akureyri. „Mest af öllu held ég með sanngjarnri ráðstöfun úr sameiginlegum sjóðum og samnýtingu innviða þegar það á við. Ég átta mig á því að það er ekki hægt að gera allt fyrir alla í einu. En þegar við setjum gríðarstór uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga í forgang ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil, ýtum við óhjákvæmilega öðrum verkefnum aftar í röðina – eða hreinlega út af borðinu,“ segir Kristín. Má ekki deila velli? Hún nefnir að í Mílanó á Ítalíu deili erkifjendurnir AC Milan og Inter Milan heimavelli og hafi gert í áratugi. Við það má bæta að Þór og KA hafa lengi verið með samstarf bæði í kvennafótbolta og -handbolta. „Tvö sjálfstæð knattspyrnufélög með ríka sögu sem deila keppnisvelli án þess að það dragi úr sérstöðu þeirra eða sjálfsmynd. Ég játa að ég á erfitt með að skilja að slík samnýting geti ekki gengið í 20.000 manna samfélagi á Íslandi,“ segir Kristín. Þór/KA hélt sér í Bestu deildinni með góðum lokasprett.
Akureyri Íþróttir barna Samfylkingin Sveitarstjórnarmál Fótbolti Handbolti Körfubolti Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Fleiri fréttir Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Sjá meira