Innlent

Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur

Freyja Þórisdóttir skrifar
Myndirnar voru birtar á hópnum Hrekkjavaka á Akureyri.
Myndirnar voru birtar á hópnum Hrekkjavaka á Akureyri. Facebook

Lögreglan á Norðurlandi eystra var með mál til skoðunar þar sem aðskotahlutir voru taldir hafa fundist í súkkulaðistykkjum sem gefin voru börnum í gær í tilefni hrekkjavökunnar. Embættið bað fólk um að hafa varann á vegna þessa en við nánari athugun lögreglu kom í ljós að um var að ræða hrekk í Facebook-hópi. 

Í færslu á samfélagsmiðlinum var fullyrt að málmhlutir hafi fundist í Þristi og Milky Way-súkkulaðistykkjum. Svo reyndist ekki vera, að sögn lögreglunnar á Akureyri.

Fréttin var uppfærð eftir að lögregla greindi frá því að um hrekk hafi verið að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×