Skoðun

Al­netið er dautt! Lengi tóri lýð­ræðið!

Geir Sigurður Jónsson skrifar

Sakleysistíma internetsins er formlega lokið. Sú þægilega hugmynd að samfélagsmiðlar séu stafrænt íbúaþing og að stafrænar upplýsingar séu almennt réttar (sannar) er úrelt.

Hættumat utanríkisþjónustu Evrópusambandsins frá 2026 lýsir erlendum afskiptum af kosningum með herferðum sem grafa undan leiðtogum, nýta ágreining innan samfélaga og draga úr trausti á kosningum. Það er ekki víst að átt hafi verið við niðurstöður tiltekinna kosninga á Íslandi, en það er varasamt að láta lýðræðisumræðuna ganga á sjálfstýringu.

Ætti að loka Meta-miðlum fyrir kosningar?

Ætti Ísland að loka fyrir alþjóðlega samfélagsmiðla síðustu þrjá mánuðina fyrir kosningar? Skrítin hugmynd, en hversu bilað er að láta amerísk og kínversk stórfyrirtæki hafa óheftan aðgang að því að stjórna kosningaumræðunni á samfélagsmiðlunum “okkar”?

Auðvitað flokkast lokun undir takmörkun á tjáningarfrelsinu og krefst því ítarlegrar skoðunar og umræðu, en við gætum mögulega séð eftir því að byrja ekki slíka umræðu í tíma.

Það er auðvelt að bjóða upp á trúverðugan íslenskan eða evrópskan valkost, þar sem notendur eru sannarlega auðkenndir og falsreikningar fáséðir. Þó lokun verði mögulega ekki niðurstaðan þá verðum við í það minnsta að draga reiknirit samfélagsmiðlana úr felum. Notendur eiga að geta skilið hvers vegna ákveðið efni birtist og hver er á bakvið birtinguna.

Loka alnetinu og opna IS/EU-netið?

Ef við tökum þessa hugmyndafræði aðeins lengra, þá mætti spyrja sig hvort Kínverjar hafi haft rétt fyrir sér þegar þeir lokuðu alþjóðlega internetinu og bjuggu til kínverskt internet. Voru þeir ekki bara aðeins framsýnni en við hin? Alnetið verður alltaf til en munum við sem borgarar og rekstraraðilar innviða ekki að búa okkur til “innra internet” (svipað og RB netið) þar sem umferðin er örugg fyrir utanaðkomandi áhrifum og traffík verður að sanna sig til að fá aðgang. Verðum við ekki farinn að hugsa um gamla góða internetið eins og villta lagalausa vestrið eftir nokkur ár?

Gagnsæi og raunverulegt persónulýðræði

Kannski þurfa öll lýðræðisríki að horfast í augu við hversu mikið vald felst í stafrænum innviðum. Ísland verður að byggja ramma sem sæmir frjálsu samfélagi. Við verðum að tryggja óbrengluð skoðanaskipti milli raunverulegs fólks í stafrænum heimi. Fyrir næstu kosningar gætum við þurft að ræða og endurskoða eftir þörfum, leikreglur þjóðfélagsumræðunnar. Við verðum að tryggja gæði þeirra upplýsinga sem móta þær skoðanir sem skila sér í kjörkassa lýðræðisins.

Höfundur er tölvunarfræðingur og gervigreindarráðgjafi.




Skoðun

Sjá meira


×