Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar 28. október 2026 07:32 Borgarstjórn Reykjavíkur tók þá ákvörðun í lok ágúst að leggja niður hverfisbundnar frístundamiðstöðvar og segja upp starfsmönnum þeirra. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum sem þeir flokkar sem nú skipa borgarstjórn lofuðu í seinustu kosningum. Með þessari aðgerð hefur forstöðufólk félagsmiðstöðva í Reykjavík misst sína næstu yfirmenn og sérhæfðan stuðning. Að mati fagfólks á sviði félagsmiðstöðva mun þetta hafa alvarleg áhrif á getu til að takast á við vanda barna og eru áhyggjur uppi um að ungmenni sem þurfi á hjálpinni að halda fái hana ekki. Hvaðan koma þessar áhyggjur? Forstöðufólk félagsmiðstöðva reiddi sig ekki aðeins á stjórnendur hverfisbundinna frísitundamiðstöðva fyrir ráðgjöf í starfi eða til að fá samþykki fyrir verkefnum. Þessir stjórnendur tóku til dæmis á sig skriffinnsku sem nú mun lenda á herðum forstöðufólks félagsmiðstöðva. Þar með verður minni tími til að sinna faglegu starfi. Fjármálastjórar hverfisstöðvanna héldu ekki bara utan um fjármál hverrar frístundarmiðstöðvar heldur aðstoðuðu við að finna lausnir fyrir forstöðufólk, fyrir þann pening sem þau höfðu úr að moða. Svigrúmið sem hverfismiðstöðvarnar sköpuðu fyrir forstöðufólk félagsmiðstöðva til að vinna faglegt starf á gólfinu er farið. Forstöðufólk er oft eina fagmenntaða starfsfólk félagsmiðstöðvanna, þeirra þekking og reynsla er gríðarlega mikilvæg á gólfinu. Sem hluti af óformlegu menntaumhverfi eru félagsmiðstöðvar mikilvægur þáttur í félagsmótun ungmenna. Frá 5. bekk vinnum við með samskipti og framkomu í gegnum leik og samtöl og byggjum upp traust milli starfsfólks og barnanna. Með tímanum birtast nýjar áskoranir, sama hverjar þær eru þá viljum við að börn og unglingar geti leitað til ábyrgan fullorðins aðila og fengið ráðgjöf eða bara haft einhvern til að ræða þær við. Starfsfólk félagsmiðstöðva felst ekki síst í því að virkja þau í félagslegri þátttöku og vekjum með þeim tilfinninguna um að þau tilheyri sínu nærumhverfi og að þau geti leitað til annara þegar reynir á. Félagsmiðstöðvar eru oft einu staðirnir sem ná að mynda tengsl við ungmenni sem standa höllum fæti, eru í skólaforðun eða eiga erfitt með að finna sig félagslega. Í þessu starfi skiptir fagleg leiðsögn forstöðufólks gríðarlega miklu máli. Þar með er ekki sagt að starfsfólk (tómstundaleiðbeinendur og tómstundaráðgjafar) sé ekki í stakk búið að mæta þessum ungmennum og aðstoða eftir bestu getu. Þegar forstöðufólk er bundnara við stjórnunarstörf en þau hafa verið veikist bakland og minnkar óhjákvæmilega stuðningur við það í erfiðum aðstæðum og þar með þjónusta við ungmenni. Ég hef miklar áhyggjur af því að þetta verða afleiðingar ákvörðunar borgaryfirvalda. Ég hef starfað í félagsmiðstöðvum í þrjú ár, bæði úti á landi og í Reykjavík. Það er sama hvar ég hef verið þá hafa alstaðar verið öflugir og styðjandi stjórnendur. Þeir þekktu vel unglingahópinn sem kom í félagsmiðstöðvarnar og kunnu að draga fram styrkleika hvers starfsmanns starfinu til framdráttar. Það er óviðunandi að gerðar séu stórfeldar skipulagsbreytingar á starfsvettvangi án samráðs við fagfólk. Ítrekað niðurbrot frístundastarfs Því miður er þetta ekki fyrsta skiptið sem ég upplifi þessi vinnubrögð af hálfu sveitastjórnar. Fyrir rúmu ári voru gerðar stórfelldar breytingar á skipulagi félagsmiðstöðvanna á Akureyri, mínum gamla vinnustað. Þær breytingar voru líka gerðar án alls samráðs við fagfólk. Ég flutti til Reykjavíkur því þar var búið að eiga sér stað gríðarleg uppbygging í félagsmiðstöðvastarfi og mér bauðst að leggja mitt að mörkum í spennandi tilraunaverkefni í einni félagsmiðstöð. Ég kom í þeirri von að þurfa ekki að horfa aftur upp á niðurrifið og vanvirðinguna gagnvart starfi okkar sem hafði átt sér stað fyrir norðan af hálfu bæjarstjórnar. Þessi vinnubrögð eru nú að endurtaka sig hér í höfuðborginni þannig að sú von sem ég hafði með flutningum mínum til Reykjavíkur hefur dvínað. Mínar áhyggjur liggja fyrst og fremst í þjónustuskerðingu við ungmennin okkar. Á sama tíma og áskoranir ungmenna verða flóknari má ekki draga úr þjónustu við þau. Þessi ákvörðun Reykjavíkurborgar er illa ígrunduð og grefur undan því faglega starfi sem hefur átt sér stað og veikir stöðu barna á höfuðborgarsvæðinu. Það stendur til að fyrsta ungmennastefna Íslands verði sett og er sú vinna hafin hjá stýrihópi mennta- og barnamálaráðuneytisins. Með henni á að marka samræmda stefnu í málefnum ungmenna í fyrsta sinn. Samkvæmt áformaskjali stefnunnar á að leggja hana fyrir Alþingi í haust. Það verður því að teljast afar óábyrgt að fara í meiriháttar skipulagsbreytingar sem gætu beinlínis stangast á við fyrirhugaða stefnu svona stutt áður en hún fer inn á þing. Ég velti því fyrir mér: Hver er langtímasýn sveitarfélaganna í málefnum félagsmiðstöðva og hvernig höldum við áfram að mæta þeim áskorunum sem börn standa frami fyrir í nútíma samfélagi? Höfundur er starfsmaður í félagsmiðstöð og formaður Ungra vinstri grænna. Heimildir og frekari umræður Breytt stjórnskipulag velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs: https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/Tillaga_%C3%B3tr%C3%BAna%C3%B0armerkt_me%C3%B0%20kynningu.pdf Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður: https://www.akureyri.net/is/umraedan/forvarna-og-fristundadeild-akureyrar-logd-nidur Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það?: https://www.visir.is/g/20262927362d/fristundamidstodvar-lagdar-nidur-a-hverjum-bitnar-thad- Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi: https://www.visir.is/g/20262927695d/geri-litid-ur-fyrirmyndarstarfi Telur niðurskurðinn geta leitt til kostnaðar annars staðar í kerfinu: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-26-telur-nidurskurdinn-geta-leitt-til-kostnadar-annars-stadar-i-kerfinu-484905 Ungmennastefna Íslands 2026 2033 - Áformaskjal um fyrirhugaða stefnu: https://samradapi.island.is/api/Documents/edb84dd4-d008-f111-9bd5-005056bcce7e Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarstjórn Börn og uppeldi Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun