Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 28. október 2026 11:16 Innan við tveimur vikum eftir brottvísun var einn úr hópnum handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps. vísir/vilhelm Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn úr hópnum var stuttu síðar handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps.
Hópurinn var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í fyrra og segir Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, að um hafi verið að ræða fjóra sænska ríkisborgara sem komu til Íslands með flugi frá þremur mismunandi löndum. Lögregla hafi komist á snoðir um að fólkið, sem er talið tengjast skipulögðum glæpasamtökum í Svíþjóð, hafi verið væntanlegt til landsins og í kjölfarið hafi verið sett af stað vinna hjá lögreglu og tollgæslu auk þess sem frekari upplýsinga var aflað erlendis frá. Eftir greiningarvinnu hafi verið ákveðið að stöðva einstaklingana í Keflavík við komu þeirra til landsins og brottvísa þeim með vísan til allsherjarreglu. Grunur leikur á um að aðilar á Íslandi hafi ráðið hópinn til þess að fremja ofbeldisbrot hér á landi og greitt fyrir þjónustuna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta ekki eina tilvikið þar sem grunur leikur á um að greitt sé fyrir þjónustu erlendra skipulagðra glæpasamtaka í brotastarfsemi á Íslandi en slíkt hefur færst í aukana í öðrum Evrópuríkjum á síðustu árum. Þaulskipulögð árás Þann 10. júní í fyrra, eða innan við tveimur vikum eftir að fólkinu var vísað úr landi, var ungur karlmaður úr hópnum handtekinn eftir skotárás og tilraun til manndráps í Järfälla, úthverfi Stokkhólms. Í frétt sænska ríkisútvarpsins segir að málið hafi tengst gengjaátökum. Maðurinn var í nóvember dæmdur í sextán ára fangelsi og var árásin sögð hafa verið þaulskipulögð. Tvær ungar konur voru einnig dæmdar fyrir hlut sinn í málinu en þær voru ákærðar fyrir að hafa lokkað fórnarlambið á tiltekinn stað þar sem til stóð að taka viðkomandi af lífi. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, gegndi formennsku í stýrihópnum sem vann nýja löggæsluáætlun. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði hópinn í febrúar síðastliðnum.Vilhelm Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um umfang skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi. Þar segir að innlendum og erlendum brotahópum, sem einkennist af alþjóðlegum tengslum, hafi fjölgað hér á landi. Vísbendingar séu um að þeir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast víða annars staðar í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að beita ofbeldi og hagnýta viðkvæma hópa, þar á meðal börn. Í áætluninni segir að leggja þurfi aukna áherslu á áhættugreiningar á landamærum og farþegagreiningar ásamt því að efla samstarf löggæsluyfirvalda við önnur ríki og stofnanir. Þar beri sérstaklega að nefna Landamærastofnun Evrópu (Frontex), Europol, Eurojust svo og innlendar stofnanir á borð við Útlendingastofnun og tollgæslu.
Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Segir stjórnina láta hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira