Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Siggeir Ævarsson skrifar 22. október 2026 18:32 Höttur og ÍR eru jöfn með tvö stig hvort. Pawel/Vísir Nýliðar Hattar eru komnir með tvo sigra í sarpinn eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Bónus-deild karla en liðið vann í kvöld sanngjarnan sigur á ÍR fyrir austan. Heimamenn fóru af stað af krafti og voru að hitta vel fyrir utan. Þeir leiddu með tíu stigum strax í fyrsta leikhluta en gestirnir svöruðu vel fyrir sig. Staðan eftir 1. leikhluta 28-25 eftir að Höttur hafði komist í 22-12. Leikurinn var svo nokkurn veginn í járnum fram að hálfleik þar sem liðin skiptust á körfum og því að hafa forystuna. ÍR-ingar virtust ætla að leiða í hálfleik eftir þrist frá Hákoni Erni en Marquis Jackson svaraði með flautuþristi og staðan 55-54 í hálfleik. Hattarmenn hófu seinni hálfleikinn líkt og þann fyrri, á að ná upp tíu stiga forskoti. Í þetta skiptið náðu ÍR-ingar aldrei að svara af fullum krafti og smám saman stækkaði bilið á milli liðanna og varð að lokum of stórt til að brúa en Höttur náði upp 20 stiga forskoti þegar best lét. Lokamínútur leiksins urðu því hálfgert formsatriði að klára, þar sem gestirnir klóruðu aðeins í bakkann en gerðu aldrei alvöru atlögu að því að jafna leikinn á ný. Atvik leiksins Þegar forskotið fór í 20 stig af eins og það væri allur vindur úr gestunum. Sá baráttuandi sem þeir höfðu náð að berja í brjóst sér hvarf eins og dögg fyrir sólu og úrslit leiksins ráðin. Stjörnur og skúrkar Marquis Jackson átti mjög góðan leik í liði Hattar með 24 stig og ellefu stoðsendingar. Nokkrar þeirra rötuðu á Svein Búa Birgisson sem endaði með 22 stig. Heilt yfir hittu Hattarmenn á ansi góðan skotleik en liðið skaut 57 prósent úr þristum. Hjá ÍR voru Montez Mathis og Hákon Örn Hjálmarsson í sérflokki með 23 og 25 stig og Hákon bætti við sex stoðsendingum. Þá átti Tómas Orri Hjálmarsson mjög góða innkomu af bekknum. 16 stig og 75% skotnýting en ÍR-ingar voru aðeins með fjóra leikmenn á bekknum í kvöld og hefðu eflaust þegið fleiri fætur til að dreifa álaginu. Stemming og umgjörð Það var virkilega góð stemming á Egilsstöðum í kvöld. Læti í húsinu og áhorfendur létu vel í sér heyra. Körfubolti Bónus-deild karla Höttur ÍR