Leik lokið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ó­lík staða eftir öruggan Valssigur

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Pablo Bertone skoraði 22 stig fyrir Valsmenn í kvöld.
Pablo Bertone skoraði 22 stig fyrir Valsmenn í kvöld. Vísir/Anton

Valsmenn eru með fullt hús í Bónusdeild karla í körfubolta eftir þriðja sigur sinn í röð. Valur vann átta stiga sigur á Njarðvík, 93-85, og heimamenn í Njarðvík hafa því tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins.

Pablo Bertone skoraði 22 stig fyrir Val og Dwayne Lautier-Ogunleye var með 18 stig og 7 stoðsendingar á móti sínum gömlu félögum. Makye Richard var með 21 stig og 10 stoðsendingar fyrir Njarðvík og Aleksa Ilic skoraði 20 stig.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira