Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 22. október 2026 21:02 Pablo Bertone skoraði 22 stig fyrir Valsmenn í kvöld. Vísir/Anton Valsmenn eru með fullt hús í Bónusdeild karla í körfubolta eftir þriðja sigur sinn í röð. Valur vann átta stiga sigur á Njarðvík, 93-85, og heimamenn í Njarðvík hafa því tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Pablo Bertone skoraði 22 stig fyrir Val og Dwayne Lautier-Ogunleye var með 18 stig og 7 stoðsendingar á móti sínum gömlu félögum. Makye Richard var með 21 stig og 10 stoðsendingar fyrir Njarðvík og Aleksa Ilic skoraði 20 stig. Leikurinn fór fjörlega af stað og átti Njarðvík flotta byrjun. Heimamenn náðu sér í fínasta forskot áður en Valsmenn byrjuðu hægt og rólega að saxa á þá. Eftir því sem leið á leikhlutann tóku Valsmenn stjórn og snéru leiknum sér í hag og voru sanngjarnt yfir 18-25 eftir fyrsta leikhluta. Annar leikhluti hófst með mikilli baráttu og bæði lið að spila flotta vörn. Isaiah Coddon setti fyrstu stig leikhlutans þegar tæpar tvær mínútur voru liðnar. Það var ágætis pirringur í liði Njarðvíkur og var hann að einhverju leyti skiljanlegur í garð dómarana en línan virtist á köflum ekki vera sú sama fyrir bæði lið. Valsarar héldu sínu striki og fóru með örugga forystu inn í hálfleikinn 38-46. Það færðist ágætis hiti í þriðja leikhlutann, meiri harka og pirringur hjá Njarðvíkingum. Valsmenn nýttu sér það og létu leikinn spilast svolítið upp í hendurnar á sér. Valur var með tíu stiga forskot eftir þriðja leikhluta 62-72. Fjórði leikhluti fór fjörlega af stað en Valsmenn hleyptu Njarðvíkingum þó ekki nálægt sér. Makye Richard sýndi frábær tilþrif þegar hann blokkaði tilraun Jelani Simmons sem var að stökkva upp í sniðskot en Richards sló boltann úr höndunum á honum. Þetta var þó ekki nóg til þess að kveikja neista í heimamönnum og Valsmenn fóru að lokum með öruggan sigur af hólmi 85-93. Atvik leiksins Verð bara að gefa blokkinu hjá Makye Richard á Jelani Simmons þetta. Þetta voru tilþrif leiksins í leik sem var aldrei í neinni hættu. Stjörnur og skúrkar Pablo Bertone var atkvæðamestur í liði Vals með 22 stig. Dwayne Lautier lét líka sína gömlu félaga aðeins finna fyrir sér. Hann endaði með 18 stig og var að valda vandræðum. Hjá Njarðvík var Makye Richard potturinn og pannan í því sem heimamenn gerðu. Hann endaði með 21 stig. DómararnirJóhannes Páll, Davíð Kristján og Bjarni Rúnar sáu um flautuleikinn í kvöld.Furðuleg lína sem þeir settu eða settu ekki og voru nálægt því að missa leikinn í rugl á köflum. Betur má ef duga skal.Stemning og umgjörðIceMar höllinn stendur yfirleitt fyrir sínu. Frábært mannvirki sem Njarðvíkingar eiga og umgjörðin alltaf rúmlega 10,5 hérna suður með sjó. Flott mæting sem skapaði flotta stemningu.ViðtölFinnur Freyr Stefánsson þjálfari ValsVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Við vorum kannski með aðeins fleiri hágæða leikmenn“„Erfiður leikur og erfitt að spila við þá í þessu nýja flotta húsi þeirra og bara gríðarlega ánægður með að labba í burtu með sigur“ sagði Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals eftir sigurinn í kvöld.„Mér fannst þetta detta of mikið niður varnarlega á köflum. Þegar það gerist þá er maður svolítið órólegri heldur en þegar vörnin er sterk. Við verðum að bæta okkur töluvert mikið á þeim endanum“Valsmenn voru með gæðin til þess að klára þennan leik á meðan Njarðvíkingar eru enn svolítið vængbrotnir.„Njarðvík er með tvo frábæra leikmenn úti og við fáum Jelani inn og það hjálpar til að við vorum kannski með aðeins fleiri hágæða leikmenn“Það mátti skynja svolítinn pirring í IceMar höllinni í kvöld hjá heimamönnum.„Það er ekkert þægilegt að vera fara inn í þetta og vera 0-2 og fara inn í leik þrjú. Þetta er bara furðuleg staða og það vantar rosalega mikið hjá mörgum liðum og fá lið sem að eru tilbúin og þá er vont að lenda í einhverri holu“„Maður er strax farinn að finna fyrir smá skjálfta hjá liðunum. Við erum mjög þakklátir fyrir að vera búnir að vinna þessa fyrstu þrjá leiki miðað við stöðuna á hópnum hjá okkur“„Það eru keppnismenn í öllum liðum og allir vilja gera vel og það bara skein í gegn og kannski var pirringurinn þar“ sagði Finnur Freyr Stefánsson. Körfubolti Bónus-deild karla UMF Njarðvík Valur