Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Lovísa Arnardóttir skrifar 15. október 2026 09:57 Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir. Hlutverk stofnunarinnar verður að reka úrræði fyrir einstaklinga sem dæmdir hafa verið til þess að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn í samræmi við ákvæði almennra hegningarlaga. Þar á meðal eru einstaklingar sem lokið hafa afplánun en talið er að séu enn hættulegir samfélaginu.
Viljayfirlýsing var undirrituð í nóvember um að ríkinu yrði tryggð lóð fyrir stofnunina í Reykjavík. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að miðstöðin eigi að taka formlega til starfa 1. apríl 2027 þegar lög um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn taka jafnframt gildi. Miðað er við að skipað verði í embættið eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 1. febrúar 2027. Verkefni starfsfólks miðstöðvarinnar verða til dæmis að sjá um framkvæmd öryggisráðstafana og að taka við dómum og úrskurðum um öryggisráðstafanir til framkvæmdar og skráningar frá ríkissaksóknara. Þá á miðstöðin að hafa eftirlit og umsjón með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum, sem og umsjón með einstaklingum sem gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum. Hún fer jafnframt með eftirlit með öryggisgæslustöðum sem reknir eru á grundvelli samnings við sveitarfélög og einkaaðila. Í tilkynningu segir að starfsfólk miðstöðvarinnar eigi jafnframt að veita ráðgjöf og faglegan stuðning öllum þeim aðilum sem veita skjólstæðingum þjónustu samhliða öryggisráðstöfunum. Þá eiga þau einnig að sjá um að veita viðeigandi hagaðilum jafnframt fræðslu um málefni stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar. Í tilkynningu segir um helstu verkefni og ábyrgð forstjóra: Forstjóri undirbýr starfsemi stofnunarinnar, meðal annars með því að ganga frá ráðningu starfsfólks og gera ráðstafanir til þess að gildandi samningar um öryggisráðstafanir færist yfir til miðstöðvarinnar við gildistöku laganna í apríl nk. Forstjóri vinnur með hlutaðeigandi ráðuneytum að húsnæðismálum nýrrar stofnunar. Forstjóri kemur að öðrum verkefnum á undirbúnings- og innleiðingartímanum, svo sem gerð stjórnvaldsfyrirmæla og samhæfingu gagnvart þjónustukerfum. Forstjóri veitir miðstöðinni forstöðu og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar. Hann sér til þess að starfsemi miðstöðvarinnar sé í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli, reglugerðir og erindisbréf sem ráðherra setur. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum uppbyggingu og þróun nýrrar stofnunar, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri framkvæmd öryggisráðstafana. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir: Háskólapróf sem nýtist í starfi. Þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði miðstöðvarinnar Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Farsælli reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumörkun. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum. Reynslu og hæfni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum. Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur. Hafa áhyggjur af einstaklingum á leið úr afplánun Nokkur mál hafa komið upp síðustu misseri þar sem íbúar eða sérfræðingar innan til dæmis fangelsismálakerfisins lýsa áhyggjum af einstaklingum sem eru á leið úr fangelsisvistun en stafar enn ógn af og einstaklingum sem þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála.
Félagsmál Fangelsismál Geðheilbrigði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Hlaut dóm fyrir að ráðast á móðurina tveimur árum fyrir andlátið Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann. 25. október 2024 12:57 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira
Hlaut dóm fyrir að ráðast á móðurina tveimur árum fyrir andlátið Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann. 25. október 2024 12:57