Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. október 2026 23:16 Táragasi hefur verið beitt og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. Getty Franskir menntaskólanemendur héldu áfram mótmælum í dag og kalla nú eftir stuðningi háskólanema og gulvestunga þar sem haustfrí skólanna nálgast. Innanríkisráðuneytið telur 161.500 hafa mótmælt á landsvísu en samtök nemenda segja þátttakendur hafa verið 480 þúsund.
Le Monde greinir frá því að hvatt sé til þátttöku í víðtækari mótmælum laugardaginn 17. október. Ólíkt mati yfirvalda segja nemendasamtökin þátttöku hafa aukist lítillega frá þriðjudeginum í síðustu viku. Eins og Vísir fjallaði um fyrir helgi beinast mótmælin meðal annars að kennaraskorti, yfirfullum kennslustofum og skólahúsnæði í niðurníðslu. Þá höfðu stjórnvöld boðað þrjú þúsund afleysingakennara til að bregðast við ástandinu en mótmælendur töldu þær aðgerðir ekki nægja. Greta mætti til stuðnings Greta Thunberg heimsótti í morgun Paul-Éluard-menntaskólann í Saint-Denis, norðan Parísar, til að sýna nemendum stuðning. Skólinn var í fremstu röð í upphafi mótmælaöldunnar. Innanríkisráðuneytið gerir ráð fyrir 160 þúsund mótmælendum.Getty Samkvæmt umfjöllun Reuters fóru mótmælin að mestu friðsamlega fram en til átaka kom meðal annars í París, Lyon, Strasbourg og Nantes. Lögregla beitti táragasi og hluti mótmælenda grýtti lögreglu og vann skemmdarverk. Í Lyon var mótmælaganga stöðvuð eftir að hópur fólks fyrir framan meginkröfugönguna réðst á verslanir og bensínstöð og lenti í áflogi við lögreglu. Langir skóladagar ofarlega á blaði Stjórnvöld hafa jafnframt leitað eftir ábendingum nemenda á sérstökum samráðsvef. Í samantekt Le Monde á rúmlega sextíu þúsund ábendingum frá 6. til 8. október kemur fram að skipulag skóladagsins sé algengasta umkvörtunarefnið. Um sjötíu prósent ábendinganna vörðuðu meðal annars langa skóladaga, eyður í stundatöflum, mikla heimavinnu og stutt matarhlé. Ástand skólabygginga og hitastig í þeim komu næst, en einnig var kvartað undan kennaraskorti og fjölmennum bekkjum.
Frakkland Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sjá meira