Upp­gjörið: Ár­mann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut

Andri Már Eggertsson skrifar
Screenshot 2026-03-02 at 06-48-39 Ármann-HamarÞór – Dropbox

Valur vann ellefu stiga sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll 78-89. Valskonur voru 22 stigum yfir í hálfleik en heimakonur sýndu mikinn karakter og minnkuðu forskot Vals minnst niður í þrjú stig en Valskonur höfðu betur að lokum. 

Valskonur byrjuðu betur í Laugardalshöllinni. Það tók gestina tæplega fimm mínútur að komast í tíu stiga forystu og stuttu síðar neyddist Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari Ármanns, að taka leikhlé.

Ármann - Valur Bónus Deild Kvenna Haust 2026Vísir/Pawel

Heimakonur enduðu á að gera síðustu tvær körfunnar í fyrsta leikhluta og minnkuðu muninn niður í átta stig. Diamond Battles opnaði síðan annan leikhluta á að setja niður skot og fá villu að auki.

Þær bláklæddu héldu áfram að hamra járnið á meðan það var heitt og munurinn fór minnst niður í þrjú stig. Eftir því sem leið á annan leikhluta náðu Valskonur vopnum sínum á ný og skutu ljósin út. Friðrik Hrafn reyndi að taka hvert leikhléið á fætur öðru til að reyna stöðva blæðinguna en ekkert virkaði. Valskonur voru tuttugu og tveimur stigum yfir í hálfleik 28-50.

Dimond Battles í leik kvöldsinsVísir/Pawel

Ármenningar sýndu karakter í seinni hálfleik og byrjuðu á að gera átta stig í röð. Jamil Abiad, þjálfari Vals, var ekki sáttur með Valsliðið og tók leikhlé eftir tæplega 90 sekúndur. Það var allt ofan í og eftir tæplega fimm mínútur hafði Ármann gert 20 stig.

Valskonur voru ellefu stigum yfir þegar haldið var í síðasta fjórðung 56-67.

Jónína Þórdís Karlsdóttir gerði 19 stig í kvöldVísir/Pawel

Það var lygileg spenna í fjórða leikhluta. Heimakonur héldu áfram að minnka niður forskot Vals og í stöðunni 75-78 tók Jamil Abiad, þjálfari Vals, leikhlé þegar 3 mínútur voru eftir. Valskonur unnu að lokum ellefu stiga sigur 78-89.

Sara Líf Boama var öflug í sigri ValsVísir/Pawel

Atvik leiksins

Edyta Ewa Falenzcyk, leikmaður Ármanns, minnkaði muninn niður í þrjú stig þegar innan við þrjár mínútur voru eftir og Valsarar tóku leikhlé í kjölfarið. Miðað við að Valsarar komust mest 25 stigum yfir var með ólíkindum að munurinn hafi aðeins verið þrjú stig á þessum tímapunkti.

Stjörnur og skúrkar

Þóranna Kika Hodge-Carr, leikmaður Vals, var virkilega öflug í kvöld og gerði 17 stig og tók 8 fráköst. 

Jónína Þórdís Karlsdóttir, leikmaður Ármanns, spilaði virkilega vel og setti niður stór skot sem hélt heimakonum inni í leiknum. Jónína endaði með 19 stig og tók 8 fráköst. 

Ármann lenti mest 25 stigum undir í fyrri hálfleik. Liðið sýndi karakter að koma til baka og gera þetta að jöfnum leik en á endanum var munurinn of mikill. 

Dómararnir 

Dómarar kvöldsins voru Davíð Kristján Hreiðarsson, Stefán Kristinsson og Bjarni Rúnar Lárusson. Þriðja liðið stóð sig virkilega vel í kvöld og þeir mega vera ánægðir með sína frammistöðu. 

Stemning og umgjörð

Það er alltaf gaman að koma í Laugardalshöllina. Umgjörðin var til fyrirmyndar og þar var allt til alls. Mætingin var allt í lagi en hægt að setja spurningarmerki við tímasetningu leiksins en allir aðrir leikir í umferðinni voru spilaðir í gær.

„Orka í liðinu í fyrri hálfleik og stelpurnar voru með sjálfstraust“

Jamil Abiad, þjálfari Vals, á hliðarlínunni í leik kvöldsinsVísir/Pawel

Jamil Abiad, þjálfari Vals, var ánægður með sigur kvöldsins í Laugardalshöll.

„Ég var ánægður með stelpurnar í fyrri hálfleik en mjög ósáttur með þær í seinni hálfleik. Við vorum 22 stigum yfir í hálfleik en í seinni hálfleik vorum við með þrettán tapaða bolta sem var ekki gott,“ sagði Jamil og hélt áfram að tala um hvað var að ganga vel í fyrri hálfleik.

„Það var orka í liðinu í fyrri hálfleik og stelpurnar voru með sjálfstraust. Í seinni hálfleik fóru þær í svæðisvörn sem gerði okkur erfitt fyrir og við hefðum átt að leysa það betur.“

Jamil tók undir að mögulega var hugarfarsbreyting í liðinu farandi inn í síðari hálfleik 22 stigum yfir. 

„Ég hata leiki sem við erum með mikla forystu því hugarfarslega er miklu auðveldara að halda einbeitingu þegar leikir eru jafnir en þetta er eitthvað sem við verðum að vera betri í,“ sagði Jamil að lokum. 

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira