„Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. október 2026 20:02 Stefán Darri og Eva Dögg giftu sig við rómantíska athöfn í Frakklandi. Coralie Monnet „Við eigum mjög margt sameiginlegt en erum líka mjög ólík á ákveðinn hátt; ég er fiðrildið sem fær yfirleitt 150 hugmyndir daglega, fylgi innsæinu og sköpunarkraftinum, en hann er ótrúlega góður í að koma hlutunum niður á jörðina og keyra þá áfram án þess að gefast upp. Það er samspil sem virkar alveg ótrúlega vel,“ segja hjónin Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson sem giftu sig með pomp og prakt í Frakklandi í haust.
Eva Dögg er 42 ára listrænn stjórnandi, hönnuður og frumkvöðull og stofnaði fyrirtækin L’Atelier Alba, The Face Ritual Method og RVK Ritual. Stefán Darri er 31 árs og er meðstofnandi og rekstrarstjóri hjá Swapp Agency, ásamt því að vera fyrrum handboltakappi. Ástin var svo sannarlega í loftinu í brúðkaupi Evu Daggar og Stefáns Darra.Coralie Monnet Hjónin byrjuðu saman í ágúst árið 2018 og fögnuðu átta ára sambandsafmæli rétt fyrir brúðkaupið. „Við eigum saman tvö yngstu börnin okkar en erum sex manna fjölskylda með fjögur börn alls,“ segir Eva Dögg en hún ræddi við blaðamann um ástina, líf þeirra hjóna og stóra daginn. Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við vorum búin að búa í Suður-Frakklandi í um þrjá mánuði þegar Stefán bað mín. Áður en hann gerði það hafði hann reyndar talað við eldri börnin mín og spurt þau hvort þau væru samþykk því að hann myndi biðja mig að giftast sér. Þau sögðu auðvitað já og voru því öll með í leynimakkinu, allir á heimilinu vissu hvað var að fara að gerast nema ég. Einn daginn eftir vinnu og skóla bauð hann okkur í óvænta litla fjölskylduferð í pínulítið fallegt þorp hérna nálægt sem heitir Savasse. Það var frídagur daginn eftir og þetta var sama dagsetning og þegar við kysstumst fyrst. Stefán hafði leigt yndislegt hús með sundlaug og við byrjuðum kvöldið á því að fara saman út að borða pizzu. Það var rigning en við létum það ekkert stoppa okkur, fórum í sund og áttum ótrúlega notalegt kvöld saman þó að okkur hafi verið pínu kalt. Seinna um kvöldið voru krakkarnir að horfa á mynd, yngsta dóttir okkar sofnuð og við Stefán tvö ein að spjalla þegar hann fór niður á annað hné og bað mín. Það var ótrúlega fallegt og persónulegt, litla fjölskyldan okkar í kringum okkur en samt bara við tvö. Akkúrat eins og ég hefði viljað hafa það. Engin sýning eða stórt atriði, bara við. Eva og Stefán áttu einlæga og rómantíska trúlofun. Saga Sig Hann hafði látið sérhanna hringinn fyrir mig og hann var undir innblæstri vintage-skarts, með smaragði. Mjög snemma í sambandinu hafði ég einhvern tímann sagt honum að ef ég fengi trúlofunarhring myndi ég miklu frekar vilja smaragð en demant og hann hafði munað það. Auðvitað sagði ég já og hann hafði falið kampavínsflösku sem við opnuðum síðan eftir á. Daginn eftir fundum við yllitré í blóma rétt fyrir neðan húsið og ég tíndi fullt af ylliblómum. Við fórum svo á dásamlegan franskan veitingastað í hádegismat og þegar við komum heim bjó ég til ylliblómasíróp úr blómunum. Þetta varð óvart að lítilli trúlofunarhefð hjá okkur. Á hverju vori þegar ylliblómin blómstra hér í Suður-Frakklandi geri ég ylliblómasíróp og við reynum að fara aftur á sama veitingastað, sem við köllum alltaf „trúlofunarstaðinn okkar“. Lyktin og bragðið af ylliblómum minna mig því alltaf á þessa stund sem er mér svo dýrmæt. Stefán Darri og Eva Dögg eiga fjögur börn og búa öll saman í Suður-Frakklandi. Þar trúlofuðu þau sig. Saga Sig Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við vorum búin að hugsa um hann síðan við trúlofuðumst en við ákváðum endanlega brúðkaupsdaginn rúmu ári fyrir brúðkaup. Þetta varð samt til frekar náttúrulega og lokamyndin mótaðist svona síðustu mánuðina fyrir stóra daginn. Ég er ekki týpan sem gat bara valið fagurfræðina á Pinterest og síðan endurskapað hana. Mig langaði að þetta væri mjög persónulegt og væri í raun bara partýútgáfa af lífinu okkar hér í Frakklandi sem við myndum bjóða vinum okkar og vandamönnum inn í. Þannig varð hugmyndin meira og meira skýr: þetta átti ekki bara að vera einn fallegur brúðkaupsdagur heldur heil helgi þar sem fólkið okkar fengi að upplifa heiminn sem við höfum orðið svo ótrúlega ástfangin af. Hjónin voru í góðu flæði með skipulagið á brúðkaupinu sem var haldið í Frakklandi tveimur árum eftir að þau trúlofuðu sig.Coralie Monnet Þið voruð með annað brúðkaup, ekki satt? Jú, við giftum okkur í raun tvisvar. Fyrst löglega á Íslandi í apríl og svo héldum við stóra brúðkaupið heima hjá okkur í Alba-la-Romaine í september. Mér fannst gaman að hugsa um þetta næstum eins og tvo kafla í sömu sögu og leyfa fötunum að endurspegla það. Fyrir löglega brúðkaupið á Íslandi fann ég antíksilkikjól frá Ítalíu, franska vínrauða hæla og var með slör eftir Sigríði Ágústu með fjórum blómum, eitt fyrir hvert barn. Hann varð útgangspunkturinn að öllu lúkkinu og við gerðum alveg heilan dag úr athöfninni. Eva Dögg fann þennan guðdómlega antík-silkikjól í nytjaverslun fyrir brúðkaupið á Íslandi. Saga Sig Við byrjuðum á jóga í Swimslow sem Estrid vinkona mín og yogakennari leiddi, fórum svo á Kaffi Vest sem er staðurinn okkar, þar sem Stefán gaf mér antíkperlur frá einmitt Ítalíu líka, sem ég var svo með seinna um daginn. Hjalti vinur minn sem er prestur gifti okkur og það var svo falleg og náin athöfn. Hann spilaði líka á gítar og söng. Við höfum sjaldan grátið jafn mikið. Eftir á fórum við á Uppi Bar og drukkum kampavín og borðuðum köku með fólkinu okkar og fórum svo á langþráð deit. Eva og Stefán fögnuðu íslenska brúðkaupinu með kampavíni og köku.Saga Sig Saga Sig tók myndir og þetta var ótrúlega dýrmætur dagur. Það brúðkaup var auðvitað miklu, miklu minna og nánara en Frakklandsbrúðkaupið, en alls ekki minna mikilvægt fyrir okkur. Þvert á móti fannst mér eitthvað ótrúlega fallegt við að eiga þennan litla, persónulega kafla fyrst. Amma og afi hans Stefáns gátu fagnað deginum með okkur og nánasta fjölskyldan sem komst ekki til Frakklands. En mikilvægast var þó að eiga þennan dag fyrir okkur, bara við saman. Brúðkaupsdagurinn heima á Íslandi var ómetanlegur fyrir brúðhjónin.Saga Sig Hvar hélduð þið stóra brúðkaupið og var erfitt að ákveða staðsetninguna? Í Alba-la-Romaine í Ardèche, litla þorpinu okkar í Suður-Frakklandi. Það var aldrei spurning um annað. Alba er ótrúlegur staður; eldgamalt rómverskt miðaldaþorp, umkringt vínekrum, með þröngum steinlögðum götum, gömlum húsum og kastala yfir þorpinu. Alba er það sem er kallað hér í Frakklandi „Village de caractère“ og sagan nær meira en tvö þúsund ár aftur í tímann. Við höfum byggt lífið okkar hér og það hefði verið skrítið að búa til einhvern „brúðkaupsheim“ annars staðar. Hjónin buðu gestum inn í einstakan brúðkaupsheim í Frakklandi.Coralie Monnet Mig langaði miklu frekar að bjóða öllum inn í okkar heim. Sama hefði ég gert ef við byggjum á Íslandi eða einhvers staðar annars staðar. Stefán er ættaður að vestan og ef við hefðum enn átt heima á Íslandi þá hefðum við örugglega gift okkur þar, þar sem Vestfirðirnir skipta okkur ótrúlega miklu máli. Athöfnin var í þorpinu okkar og veislan í Château d’Alba, kastalanum sem gnæfir yfir gamla bænum. Elstu hlutar kastalans eiga rætur aftur á miðaldir og byggingin hefur þróast í gegnum aldirnar. Það gaf öllu þessa ótrúlegu tilfinningu fyrir sögu án þess að við þyrftum að einhvern veginn „skreyta“ hana fram. Veislan fór fram í fallegum kastala.Coralie Monnet Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Algjörlega fullkominn og líka smá kaótískur sem er örugglega eðlilegt þegar maður stendur fyrir öllu skipulaginu sjálfur og er ekki að vinna með neinn brúðkaups-infrastrúktúr. Ég byrjaði daginn mjög snemma, eftir alltof lítinn svefn því við vorum að skemmta okkur kvöldið áður og fórum að sjálfsögðu síðust heim. Ég fór út að hlaupa og hitti síðan vinkonur mínar í pilates úti undir berum himni. Svo eftir friðsælan morgun varð smá stress. Við uppgötvuðum meðal annars á brúðkaupsdaginn sjálfan að við vorum ekki með neina dúka! Þá vantaði á öll borðin. Þrátt fyrir alls kyns stress á brúðkaupsdaginn heppnaðist hann fullkomlega.Coralie Monnet Ég fékk mitt eina alvöru bridezilla móment þarna, og kannski nokkrum sinnum yfir daginn, en ég verð að hrósa Tönju yndislegu vinkonu minni sem var með allt í teskeið og hjálpaði okkur svo ótrúlega mikið, bæði dagana fyrir og á daginn sjálfan. Án hennar hefðum við ekki getað klárað þetta. Hún kom til Frakklands sem brúðkaupsgestur og varð svo að bæði persónulegum aðstoðarmanni og brúðkaupsskipuleggjanda og bjargaði okkur. Við fórum í að redda dúkum á síðustu stundu, vinir hans Stefáns ruku í næsta bæ og náðu því, frænka hans Stefáns pikkaði upp og valdi sextíu kíló af vínberjum fyrir skreytingarnar, sem betur fer talar hún reiprennandi frönsku, og vinir okkar og fjölskylda hjálpuðu til við að græja borðin og diskana. Sextíu kíló af vínberjum prýddu borðin.Coralie Monnet Svo á einhverjum tímapunkti var mér einfaldlega skipað af Tönju minni að hætta að reyna að stjórna öllu og fara að gera mig tilbúna. Þá varð ég auðvitað of sein í mitt eigið brúðkaup. Engum sem þekkir mig kom það sérstaklega á óvart. Þegar ég loksins kom í athöfnina hvarf allt hitt. Dagurinn varð þessi ótrúlega blanda af ást, hlátri, fallegum hlutum, mat, víni, tónlist, vinum og fjölskyldu og smá kaosi, sem er líklega mjög góð lýsing á okkur. Það voru ýmsir hlutir sem gleymdust en það skipti bara engu máli. Þegar ég mætti þá hvarf einhvern veginn öll fullkomnunaráráttan mín og allt varð æði og nákvæmlega eins og það átti að vera. Þegar stóra stundin rann upp gleymdi Eva Dögg öllu stressi og náði að njóta í botn.Coralie Monnet Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið? Já og það var mjög mikilvægt fyrir okkur. Við vildum að þetta væri brúðkaupshelgi frekar en bara eitt brúðkaup. Við gerðum Le Wedding Gazette dagblað, með dagskrá, korti, sögum og info um okkur og svæðið, auk krossgátna, sudoku o.s.frv. Allir gestir fengu brúðkaupsdagblað.Coralie Monnet Fólk kom frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Spáni, Makedóníu, Frakklandi og víðar að og allt í einu var litla franska þorpið okkar fullt af Íslendingum. Það eitt var alveg dásamlegt. Við vorum alltaf með eitthvað fólk heima í kaffi, mat eða drykk, margir voru komnir á mið/fimm svo á fimmtudeginum fórum við öll saman í langan franskan hádegisverð sem var alveg frá 11.30 til 17:00 og á föstudeginum vorum við meðal annars með vínsmakkanir yfir daginn og svo afslappaða „The Night Before“-veislu með hljómsveit í uppgerðri hlöðu í útjaðri þorpsins. Þar fengu heimarnir okkar að blandast aðeins saman. Við vorum meira að segja með Bæjarins Beztu pylsur pop up, sem okkur fannst alveg fullkomið. Takk Baldur frændi. Ardèche-vín og íslenskar pylsur í litlu frönsku miðaldaþorpi. Það var gríðarlegt stuð í kvöldverðinum fyrir brúðkaupið.Coralie Monnet Síðan voru tequila-turnar, gamlir silfurbakkar með „Le Wedding“-eldspýtum og sígarettum og almennt aðeins meira stuð en maður býst kannski við af hefðbundnum „rehearsal dinner“. Morguninn eftir, á brúðkaupsdaginn, var svo meðal annars pilates með brúðinni og hlaup með brúðgumanum og svo gerðu sig allir til fyrir veisluna. Sunnudagurinn var markaðsdagur því hér í þorpinu er alltaf risa stór markaður á hverjum sunnudegi. Við héngum svo á barnum eftir markaðinn og spjölluðum yfir pastis, hlupum aðeins upp í kastala við og allir vinir okkar og tókum smá til og fórum svo í sundlaugarpartý. Enduðum svo á pizzum og grilli í garðinum okkar heima. Á mánudeginum var svo fólk farið að tygja sig af stað og þá vorum við með morgunkaffi og kveðjustundir heima hjá okkur langt fram eftir degi. Alveg fullkomið! Brúðkaupshelgin var fullkomin hjá hjónunum.Coralie Monnet Voruð þið sammála í skipulaginu? Já, ótrúlega mikið. Við erum mjög lík þó svo við séum líka mjög ólík en það virkaði okkur í hag. Ég var með mjög sterka sýn á útlitið og upplifunina en Stefán er miklu jarðbundnari og skipulagðari en ég. Ég var með allt mitt opið í illustrator og hann með allt sitt opið í Excel en við vorum alltaf sammála um stemninguna! Ég held líka að hann hafi stundum þurft að treysta því að þessar mjög sérstöku hugmyndir í hausnum á mér myndu einhvern veginn verða að heild og meika sens! En við vorum sammála um grundvallaratriðið: við vildum ekki brúðkaup sem væri „fullkomið“ á kostnað þess að vera lifandi. Við vildum að fólki liði vel, borðaði ótrúlega vel og mikið, drykki mjög gott vín, dansaði, hlægi og fyndi fyrir okkur í öllu. Gleðin átti að vera í fyrirrúmi alla brúðkaupshelgina og það tókst.Coralie Monnet Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu? Að staðurinn, fólkið og upplifunin kæmu á undan týpískum brúðkaupstrendum. Okkur finnst eitthvað svo fallegt við hluti sem hafa nú þegar átt líf, eins og allt í kringum okkur hér í Frakklandi. Þess vegna notuðum við mikið af antíkmunum, gömlum textíl, kertum, vínberjum og hlutum sem ég hafði sankað að mér hér, frekar en að kaupa fullt af „wedding décor“. Maturinn var allur úr héraði og á árstíð svo það meikaði sens að vera líka með blóm á árstíð og öll vínberin og líka plómurnar, salvían og ólífugreinarnar sem skraut því við vorum með brúðkaupið akkúrat yfir mesta uppskerutímann. Þessi hugsun er líka stór hluti af því sem ég er að byggja upp í L'Atelier Alba. Ég vil vinna með heimili, gamla hluti, handverk og hönnun sem verður fallegri með tímanum, frekar en hluti sem eru keyptir fyrir eitt augnablik og svo hent. Brúðkaupið sótti mikinn innblástur í franska umhverfið og beint úr býli.Coralie Monnet Hvaðan sóttuð þið innblástur? Mest úr sjálfu lífinu okkar. Franska sveitin, Alba, vínekrurnar, gömlu húsin, sunnudagsmarkaðarnir, hlutir sem ég finn á „brocantes“, frönsk matarmenning, Ísland, Kaupmannahöfn, tískuárin mín og allt það sem ég hef sankað að mér sjónrænt í gegnum árin. Mig langaði alls ekki að brúðkaupið liti út eins og „French wedding theme“. Við búum hérna, þetta er heimilið okkar. Þetta er raunverulega lífið okkar. Þess vegna fannst mér miklu áhugaverðara að taka það sem þegar var til staðar og ýkja það bara aðeins. Kannski var það eiginlega hugmyndin á bak við allt: „Our life, but turned all the way up“. Allt við brúðkaupið endurspeglaði hjónin.Coralie Monnet Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir þau? Fötin voru eiginlega eitt stærsta sköpunarverkefnið í kringum brúðkaupið fyrir mig. Ég kem úr tískuhönnun og hef unnið sem hönnuður og listrænn stjórnandi í mörg ár, þannig að ég vissi frá byrjun að ég myndi eiga erfitt með að labba bara inn í brúðarkjólabúð og velja mér kjól. Mig langaði að búa til söguna alveg sjálf. Ég er menntaður og starfandi fatahönnuður og hafði mjög sterka tilfinningu fyrir því að ég vildi ekki bara fara út í búð eða á netið og velja mér hefðbundinn brúðarkjól. Ég vildi að kjóllinn hefði sögu. Fyrst reyndi ég að finna antíkkjól en fann aldrei þann rétta fyrir mig. Ég gerði því kjólinn sjálf úr fullt af gamalli franskri blúndu sem ég var búin að sanka að mér síðustu tvö ár. Ég vildi ekki að hann liti út eins og „brúðarkjóll“ í hefðbundnum skilningi. Mig langaði að hann gæti næstum hafa fundist í gamalli franskri kistu; að maður vissi ekki alveg hvort hann væri nýr eða hundrað ára. Glæsileg brúður.Coralie Monnet Það er eitthvað við gamlan textíl sem snertir mig mjög. Hann hefur þegar lifað lífi. Einhver hefur búið hann til, snert hann, varðveitt hann. Síðan tekur maður þetta efni og gefur því nýtt hlutverk og nýja sögu. Fyrir mér varð það næstum eins konar tákn fyrir brúðkaupið sjálft, lífið okkar, ástina okkar og hjónabandið sem við erum að stíga inn í: gamalt efni, fyrra líf með alls konar götum sem þarf að bæta og ófullkomleika, handverkið og svo eitthvað alveg nýtt og fallegt búið til úr því öllu saman. Það var líka eitthvað mjög fallegt við að gera sjálf flíkina sem ég gekk í til mannsins sem ég var að giftast. Hún var ekki bara keypt fyrir daginn. Ég hafði eytt tíma með henni, unnið í henni og lagt hendurnar mínar í hvert smáatriði. Eva elskar gamlan textíl.Coralie Monnet Það tengist líka mjög sterkt því sem ég er að gera með L'Atelier Alba núna. Mig langar ekki bara að hanna nýja hluti heldur vinna með fortíðina; antík, handverk, textíl og hluti sem bera ummerki um líf. Að taka eitthvað gamalt og setja það í nýtt samhengi frekar en að byrja alltaf á auðu blaði. Á einhvern hátt finnst mér kjóllinn líka hafa orðið eins konar fyrsta „manifesto“ fyrir þann heim án þess að ég hafi endilega ákveðið það fyrirfram. Slörið var risastórt í cathedral-stíl og ég fann það á Írlandi. Ég litaði það sjálf með mömmu minni með helling af svörtu tei heima í baðkarinu, daginn fyrir brúðkaup, til að ná rétta gamla ivory-litnum. Liturinn varð fullkominn, miklu betri en það sem ég var búin að sjá fyrir mér. Ég elska fegurð sem er ekki of fullkomin. Að maður sjái tímann, hendurnar og söguna í hlutunum. Skórnir urðu líka að skemmtilega ófullkominni sögu. Ég hafði fundið ónotaða Loewe mules second hand, sem áttu að vera hluti af lúkkinu, en þeir komu allt of seint. Ég þurfti því að redda öðrum skóm á síðustu stundu. Fallegar mæðgur á brúðkaupsdaginn, báðar í hvítum blúndum.Coralie Monnet Með antíkblúndukjólnum endaði ég síðan í sömu vínrauðu skóm og ég hafði klæðst þegar við giftum okkur löglega á Íslandi. Mér fannst það eiginlega miklu fallegra þegar upp var staðið. Allt í einu var lítill rauður þráður, bókstaflega, milli brúðkaupanna tveggja. Ég var líka með vínrauðar rósir bundnar inn í antíkblúndu sem Tanja mín gerði fyrir mig á brúðkaupsdaginn sjálfan. Allt þetta vínrauða og rósirnar var innblásið af Maríu Magdalenu en ég er búin að vera gjörsamlega heltekin af henni síðustu árin og bý núna akkúrat á hennar slóðum svo hún varð að vera sýnileg einhvern veginn í brúðkaupinu. Þaðan kemur rauði liturinn og rósirnar og allir ritualarnir. Ég elska líka svona „slys“ í stíliseringu. Oft er hluturinn sem þú neyðist til að gera á síðustu stundu miklu persónulegri en hið fullkomlega fyrir fram skipulagða. Stefán var í sérsaumuðum jakkafötum frá Thomsen, sem voru æðisleg og akkúrat í sama lit og kjóllinn þó að það hafi ekki verið planað þannig. Við fjölskyldan vorum öll í hvíttóna fötum með smaragð og búrgúndí smáatriðum en gestirnir voru allir í alveg svörtu. Stefán var í jakkafötum frá Thompsen.Coralie Monnet Það var fullkomið og nákvæmlega eins og ég var búin að sjá það fyrir mér ári áður þegar ég ákvað að það myndi vera svart dresscode. Við fjölskyldan poppuðum út og fallega umhverfið fékk að njóta sín og svo voru allir gestirnir svo flottir í kringum okkur í alveg svörtu með alls konar fallegum svörtum smáatriðum. Fyrir manneskju eins og mig þar sem fagurfræði og smáatriði skipta svo ótrúlega miklu máli þá gerði þetta daginn minn. Að horfa yfir allt fallega fólkið mitt, öll í svörtu og alveg stórglæsileg. Hver sá um hár og förðun? Förðunina gerði ég sjálf. Mér finnst ótrúlega gaman að farða mig og ég upplifi mig einfaldlega mest ég þegar ég geri það sjálf. Þegar einhver annar farðar mig, sama hversu fallega það er gert, líður mér oft eins og ég sé með grímu. Á brúðkaupsdaginn vildi ég ekki líta út eins og einhver önnur útgáfa af sjálfri mér. Ég vildi bara vera ég, bara örlítið hátíðlegri útgáfa. Fyrir hárið valdi ég „viktoríska hárgreiðslu“ sem kallast „Weeping Rose“ sem Astrid stóra systir mín og Edith vinkona mín gerðu í mig í sameiningu. Hárgreiðslan passaði ansi vel við gamla kastalann okkar. Flétturnar eru mótaðar eins og rósir hvor sínum megin á höfðinu og úr annarri þeirra fellur flétta niður, nánast eins og tár. Mér fannst svo fallegt að þetta væri raunveruleg söguleg hárgreiðsla en ekki bara nútímaleg túlkun á einhverju „viktorísku“. Hún passaði fullkomlega við antíkblúndukjólinn en tengdist líka Mary Magdalene-innblæstrinum sem fylgdi mér í gegnum allt ferlið og þessari hugmynd um ást og trúmennsku. Eva Dögg var undir innblæstri Maríu Magdalenu.Coralie Monnet Varstu með fataskipti? Já, svo sannarlega. Ég get eiginlega ekki byrjað að tala um fataskiptin án þess að nefna allra fyrsta kjólinn sem ég var í á föstudeginum, kvöldið fyrir brúðkaup. Mamma heklaði hann handa mér úr egypskri bómull sem ég fann hér í Frakklandi. Hún var á Íslandi og ég hér heima í Alba og sendi henni nokkur mál af og til, en svo passaði hann fullkomlega og er svo ótrúlega fallegur og klæðilegur. Seinna um kvöldið í brúðkaupinu sjálfu, fyrir eftirréttinn, fór ég í silkikorselett sem var handgert í París og gegnsætt vintage blúndupils. Ég keypti mér líka lága og dansvænlega silfurlitaða hæla tveimur dögum fyrir brúðkaupið út af öllu skóveseninu en ég elska þessa litlu silfurskó sem ég fann hér í næsta bæ. Þegar partíið sjálft byrjaði skipti ég yfir í stuttan hvítan cocktail-kjól frá ROTATE sem var fullkominn fyrir allan dansinn. Mér finnst mjög gaman að föt og hlutir geti sagt sögu án þess að það sé of augljóst. Þegar ég horfi á brúðkaupslúkkin okkar sé ég að þau tengja eiginlega saman alla staðina sem hafa mótað okkur og sambandið okkar. Við byrjuðum saman í fjarsambandi, Stefán bjó þá í Madrid þar sem hann spilaði handbolta og ég bjó í Reykjavík. Þess vegna fannst mér sérstaklega skemmtilegt að ég hafði fundið Loewe mules fyrir brúðkaupið, spænskt merki og smá ómeðvituð tenging aftur í upphafið okkar. Auðvitað, í fullkomnum anda brúðkaupsins, komu þeir of seint! Þannig að plan A fór út um gluggann. Með antíkblúndukjólnum endaði ég þess vegna í sömu vínrauðu skóm og ég hafði klæðst á Íslandi í apríl. Eftir á fannst mér það eiginlega miklu fallegra að tengja bæði brúðkaupin saman. Svo var Kaupmannahöfn líka með. Ég bjó þar og starfaði í tískubransanum í tólf ár og þar varð mjög stór hluti af mér til. Eva skipti í partýkjól frá danska merkinu ROTATE.Coralie Monnet Þannig að ROTATE-kjóllinn, danskt merki og allt önnur orka en franska antíkblúndan og vintage-stöffið sem ég var í fyrr um kvöldið og alla helgina var fullkomin leið til að loka kvöldinu. Þegar maður horfir á þetta þá er fatnaðurinn eins konar kort af lífinu okkar. Ísland, þar sem við giftum okkur fyrst og þar sem við kynntumst. Madrid, þar sem Stefán bjó fyrsta árið okkar saman. Kaupmannahöfn, þar sem ég bjó og starfaði í tólf ár og eldri börnin okkar fæddust, og loks Suður-Frakkland, þar sem við höfum valið að byggja heimili okkar og framtíð saman. Ég elska að svo stór hluti af brúðkaupsfatnaðinum hafi verið fundinn, gamall eða nytjafatnaður. Ég vil frekar leita lengi að einhverju sem hefur karakter og sögu en að kaupa allt nýtt. Brúðkaupið kveikti líka svolítið aftur í mér faglega. Ég hef unnið við hönnun, listræna stjórnun og uppbyggingu vörumerkja í mörg ár og áttaði mig á því hvað ég hef saknað þess að skapa heila heima, að vinna með hugmynd, sjónræna stefnu, rými, hluti, stíliseringu og að segja sögu sem eina heild. Það er mikið af því sem ég vil gera meira af núna, bæði í gegnum L'Atelier Alba og í samstarfi við önnur vörumerki og skapandi verkefni. Mér finnst mjög spennandi að vera komin á þann stað að geta sameinað allt sem ég hef gert áður, tísku, hönnun, markaðsherferð og fleira, við lífið sem við erum að byggja hér í Frakklandi. Þegar allt kom til alls töluðu öll smáatriðin fallega saman og endurspegluðu sögu hjónanna.Coralie Monnet Hvað stendur upp úr? Það er erfitt að velja eitt augnablik. Að sjá allt þetta fólk sem við elskum komið saman í litla þorpinu okkar var eiginlega yfirþyrmandi. Fólk hafði ferðast langt og allt í einu voru íslenska, franska, danska og enska að hljóma út um allt Alba. Og svo auðvitað að ganga með elsta syni mínum upp til Stefáns þar sem hann beið með elstu dóttur okkar, sjá litlu börnin okkar labba upp til Stefáns alveg ein með hringana og hjálpast svo fallega að. Að fagna og vera með Stefáni. Þegar maður hefur verið að skipuleggja svona mikið og hugsa um fjármálin, dúka, vínber, diska, glös, gesti, börn og hundrað litla hluti þá kemur allt í einu augnablik þar sem ekkert af þessu skiptir máli. Fyrir framan þig stendur bara manneskjan sem þú ert að velja, lífið okkar og börnin okkar. Það situr mest eftir! Ég hef aldrei litið á hjónaband sem eitthvað sem maður gerir bara af því að það sé næsta skref eða af því að maður hafi verið saman nógu lengi. Fyrir mér er hjónaband miklu meira meðvitað val. Það er æðsta birtingarmynd andlegrar iðkunar. Að velja eina manneskju sem sinn félaga í lífinu, aftur og aftur. Það er auðvitað ást og rómantík en líka vinátta, leikur, frelsi, tryggð og mikil vinna. Að verja lífinu með manneskju sem leyfir þér að vera algjörlega þú sjálf, hvetur þig til að elta stærstu draumana þína en heldur þér líka aðeins á jörðinni. Einhver sem speglar þig, ögrar þér, hlær með þér og stendur með þér þegar lífið verður erfitt. Tveir einstaklingar sem halda áfram að vaxa hvor í sínu lagi en velja samt að ganga í gegnum lífið saman. Og mér finnst það líka bara ótrúlega sexí. Að horfa á manneskju sem þú þekkir svona vel og hugsa: Ég vel þig núna, alltaf og ennþá. Tilgangurinn með stóru brúðkaupi var fyrst og fremst að hafa alveg ótrúlega gaman og fagna ástinni og lífinu með fólkinu okkar. En athöfnin sjálf hafði líka mjög djúpa merkingu fyrir mig. Að standa fyrir framan allt fólkið sem þú elskar mest, fólkið sem þekkir þig best og hefur fylgt þér í gegnum alls konar útgáfur og tímabil lífsins og segja upphátt: Þetta er manneskjan sem ég vel. Sama hvað lífið færir okkur ætla ég að halda áfram að velja þig, aftur og aftur. Er það ekki líka það sem hjónaband þýðir: ekki eitt stórt „já“ á einum degi, heldur ótal lítil já það sem eftir er af lífinu? Hjónin segja ótal lítil já hvort við annað í gegnum lífið með hjónabandinu.Coralie Monnet Sá einhver um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Já, veislustjórarnir okkar voru hún Soffía Tinna, ein af mínum bestu vinkonum frá Kaupmannahafnarárunum, en við bjuggum saman í Danmörku og höfum brallað ýmislegt saman síðustu rúm 20 árin. Þú finnur varla glæsilegri veislustjóra og svo Stefán Hauk, frændi Stefáns. Þau voru fullkomið teymi, fyndin, hlý, stórglæsileg og mjög góð í að halda utan um hópinn án þess að veislunni yrði of stýrt. Við vorum svo ánægð með allt þeirra og erum alveg endalaust þakklát. Þau hugsuðu virkilega út í hvert einasta smáatriði án þess að maður tæki nokkuð eftir því af því það var svo náttúrulegt. Við vorum líka með helling af lifandi tónlist yfir helgina, bæði heil hljómsveit og líka vinkona okkar með gítarleikara, og okkur fannst mikilvægt að dagskráin yrði ekki svo þétt að fólk fengi aldrei tíma til að vera bara saman, spjalla og njóta. Við vorum með ýmsar danskar brúðkaupshefðir sem héldu ótrúlega mikilli stemningu uppi, mjög skemmtilegar ræður, söngatriði og meira að segja ljóðalestur. Svo voru nokkrir lykilmenn sem héldu stemningunni uppi, flestallir Framarar í húð og hár. Tengdafaðir minn Þór Björnsson var með mikið stuð sem hristi hópinn saman og Adrian Sabido, minn allra besti frændi, kom með spænsku víbrurnar sem við þurftum og alla partýfjölskyldustemninguna í veisluna, svo að allir brutust út í dans og dönsuðu við Gipsy Kings uppi á borði og út um allan kastalagarð í miðju borðhaldi. Ég verð að þakka honum og öllu stemningsfólkinu fyrir að vera meistarar og stemningspartýfólk. Það vantaði ekki stuðið!Coralie Monnet Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Hvað við gátum á endanum bara sleppt takinu. Það tók samt smá tíma. Ég vinn við skapandi stjórnun og er vön að sjá fyrir mér hvert smáatriði. Svo auðvitað hélt ég að ég þyrfti að hafa stjórn á öllu en ég er samt frekar góð í að sleppa og treysta svo mér gekk alveg ágætlega vel með það eftir nokkra góða andardrætti. Það fór hellingur úrskeiðis. Dúkarnir voru ekki til. Ég var sein. Hlutir gerðust ekki nákvæmlega þegar þeir áttu að gerast. Dagurinn fór í aðeins of mikið stress og reddingar. Alls konar gleymdist, við pöntuðum nokkra kassa af kampavíni sem við svo föttuðum síðan að væri hvítvín í veislunni sjálfri og redduðum kampavíni hjá vínbónda í nágrenninu, sem er ótrúlegt að hafi tekist á laugardagskvöldi í frönsku sveitinni. Svo við fengum sem betur fer kampavínsturninn sem ég þráði. Kokteilarnir okkar, Negroni og Paloma, fóru í vitlaus glös og merkingarnar mínar gleymdust og margt annað en veistu hvað? Það skipti engu máli. Hjónin náðu blessunarlega að redda kampavíni rétt í tæka tíð.Coralie Monnet Kannski varð dagurinn meira okkar fyrir vikið. Til dæmis datt rafmagnið út í smá stund í föstudagspartíinu akkúrat þegar Silla, litla systir hans Stefáns, var að halda ræðuna sína. Við vorum með pylsur, live tónlist og ótrúlega mikið sem gekk fyrir rafmagni í gamalli hlöðu. Þá endaði Silla á því að fara með ræðuna í myrkrinu og allir lýstu upp með vasaljósi á símunum sínum og úr varð ótrúlega falleg, einlæg og innileg stemning sem passaði svo ótrúlega vel við fallegu ræðuna hennar. Allt fór nákvæmlega eins og það átti að fara og það er svo fallegt og gott að treysta því. Hvað voru margir gestir? Um 140 gestir. Það var stórt brúðkaup en samt fannst mér það ótrúlega náið, kannski af því að svo stór hluti fólksins var með okkur rúmlega alla helgina. Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Já, ekki byrja á því að skipuleggja brúðkaup. Byrjið á því að hugsa um hvernig þið viljið að fólki líði. Pinterest og samfélagsmiðlar geta mjög auðveldlega látið mann halda að maður þurfi 700 hluti sem maður vissi ekki einu sinni að væru til. En eftir á man enginn hvort servétturnar voru nákvæmlega rétt bundnar, hvaða trend var í gangi í brúðkaupum þetta árið eða eitthvað svoleiðis. Fólk man hvernig því leið. Það man hláturinn, matinn, tónlistina, ræður, dansinn, óvæntu augnablikin og ástina. Og leyfið einhverju að vera ófullkomnu. Það er oft það sem verður sagan sem þið segið aftur og aftur. Annað sem ég hefði verið til í að gera og sé svo eftir að hafa ekki gert var að taka mat fyrir mig/okkur til hliðar og borða daginn eftir. Maður gleymir sjálfur að borða því það er svo mikið í gangi og maður hefur sjálfur kannski ekki alveg nógu mikinn tíma til að njóta matarins. Við lögðum svo ótrúlega mikla áherslu á matinn og mér finnst svo leiðinlegt að við misstum eiginlega sjálf af öllum aperoinum því við vorum í myndatöku og ég var að skipta um skó og græja mig eitthvað. Fáið einhvern til að gera brúðkaups doggy bag til að borða saman og njóta betur daginn eftir. Það er lykillærdómur! Við vorum líka svo „upptekin“ að við gleymdum myndatöku með fjölskyldunni okkar og finnst það mjög leiðinlegt. Það er ekki hægt að spóla til baka og græja það. Ekki gleyma því sem er í raun og veru mikilvægt! Eva segir mikilvægt að eitthvað fái að vera ófullkomið í brúðkaupi.Coralie Monnet Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu? Mjög skrýtin! Það er smá eins og að koma niður á jörðina eftir að hafa verið í einhverjum öðrum heimi. Við vorum með svo mikið af fólkinu okkar í kringum okkur, svo mikla eftirvæntingu og svo mikla orku í langan tíma og síðan allt í einu er bara þriðjudagur og það þarf að sækja börn og setja í vél. Við höfum líka fundið fyrir ákveðnum post-wedding blues, sem ég held að sé mjög eðlilegt eftir svona stóran tilfinningalegan hápunkt. Allt í einu er þetta bara búið og þú ætlar ekkert að giftast aftur. Þetta er sjokkerandi. En á sama tíma finnst mér brúðkaupið hafa kveikt eitthvað nýtt í mér. Það minnti mig mjög sterkt á hvað ég elska að skapa heila heima, fallega hluti, stemningu, sögur, rými og upplifanir. Það er nákvæmlega sú átt sem ég vil fara meira í núna með L'Atelier Alba og í öðrum skapandi verkefnum. Eva fann fyrir mikilli sköpunargleði út frá brúðkaupinu.Coralie Monnet Ætlið þið í brúðkaupsferð? Já! Við fórum í smá minimoon-brúðkaupsferð strax eftir brúðkaupið, eina nótt á Hotel Amour í París en við elskum að vera þar. Það var dásamlegt eftir allt brjálæðið. Svo fórum við beint til Makedóníu í annað brúðkaup, svo það var ferðalag strax eftir brúðkaup en kannski ekki alveg brúðkaupsferð. Við nutum þess að vera tvö saman og lenda eftir allt saman, en við eigum líka eftir að gera stærra ferðalag seinna þegar lífið með fjögur börn og öll logistík sem lífinu fylgir leyfir. Þá förum við í rómantíska ferð til Marokkó og Korsíku, ég hlakka til þess! Að gera eitthvað meira úr the honeymoon þó að hún sé ekki alveg strax því það er alltaf svo mikið í gangi hjá okkur, sem er ákveðið lúxusvandamál.
Brúðkaup Ástin og lífið Íslendingar erlendis Frakkland Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira