Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Smári Jökull Jónsson, Telma Tómasson og Lovísa Arnardóttir skrifa 13. október 2026 06:39 Fyrstu gulu viðvaranirnar taka gildi klukkan sex í fyrramálið. Vísir/Anton Brink Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við slæmu ferðaveðri sem fram undan er og biðlar til fólks um að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið hefur gengið yfir. Veðurfræðingur segir veðrið verða verst á Norðvesturhluta landsins. Það verði hvasst sunnan til í fyrramálið og lægðin færi sig svo norðar.
Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur á Veðurstofunni segir veðurspána fyrir morgundaginn ekki hafa breyst mikið og því líklega halda. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið, fyrst á suður- og Suðausturlandi þar sem gular viðvaranir taka gildi klukkan sex í morgunsárið, ef spár ganga eftir. Lægðin færir sig síðan til vesturs og gert ráð fyrir 15-25 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum við Faxaflóann og Breiðafjörðinn þegar líður á morguninn og talsverðri úrkomu. Ferðaveður verður varasamt og lausamunir geta fokið. Versta spáin er fyrir norðanverða Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra þar sem gera á norðan stórhríð, með hvassviðri, lélegu skyggni og snjó á vegum, sem sagt engu ferðaveðri. Þar taka appelsínugular viðvaranir gildi síðdegis á morgun og gilda inn í nóttina. Óvenju djúp lægð „Það verður óvenju djúp lægð sem kemur að landi núna og verður kominn stormur í fyrramálið víða á landinu, austanstormur. Það fylgir þessu mikil úrkoma, það verður mikið vatnsveður,“ segir Hrafn. Til fjalla og á Norðurlandi gæti fylgt líka slydda og snjókoma. Hann segir lægðina fara tiltölulega hratt yfir landið og það verði ör breyting á veðri. Seinnipartinn verði vindur norðlægari vestantil á landinu og þá komi kaldara loft með og þá verði norðanhríð, sérstaklega á Norðvesturlandi. „Þessi hríð byrjar á Vestfjörðum en dregst svo yfir inn á land meira og kemur inn á Norðvesturlandið með slyddu og snjókomu.“ Hrafn segir viðbúið að það verði ekkert ferðaveður, mjög slæmt veður, á Vestfjörðum og Norðvesturlandi seinni partinn og annað kvöld þegar það gangi í þessa norðanhríð en veðrið verði skaplegra sunnan og vestan til á landinu seinni partinn á morgun. „Þetta verður verst á norðvesturhluta landsins,“ segir hann og að með þessu kólni og það megi búast við versnandi færð. Byrjar að hvessa í fyrramálið Hann segir að það byrji að hvessa í nótt og í fyrramálið verði kominn stormur sunnantil sem færi svo norðantil og þá verði meiri snjókoma. „Það verður komið vonskuveður í fyrramálið.“ Hann segir mikilvægt að fylgjast vel með veðurspá og færð ef það þarf að vera á ferðinni, sérstaklega á Norðvesturlandi. Hægt er að fylgjast með veðri á vef Veðurstofu og færð á vef Vegagerðarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð klukkan 07:23 með viðtali við veðurfræðing.
Veður Færð á vegum Tengdar fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Á áttunda tug taka afstöðu til sakar í Landsbankamálinu Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Sjá meira
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43