Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Jakob Bjarnar skrifar 12. október 2026 14:53 Ingibjörg, Sigmundur Davíð, Þorgrímur, Þórarinn Ingi og Jens Garðar. Þingmennirnir sem skelltu sér í sund utan opnunartíma. Þingmennirnir sem laumuðust í sund í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku frömdu húsbrot að mati Ásthildar Lóu Þórisdóttur þingmanns Flokks fólksins. Hún hafnar því staðfastlega að slík framkoma eigi við um þingmenn almennt. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, segir ekkert fréttnæmt við sundferðina.
Ummæli Ástu Lóu féllu í sérkennilegri deilu við Björn Þorláksson á Samstöðinni í gærkvöldi. Á Facebook-síðu sinni veltir Björn upp þeirri spurningu hvort mannamót á borð við heimsóknir í kjördæmavikum séu ekki fyrst og fremst svallveizlur. „Svona fullyrðingar sem setja alla þingmenn undir sama hatt kunna að hljóma töff í eyrum einhverra en eru ekki beint vönduð fréttamennska og ansi langt seilst að bendla hina 58 sem sinna sama starfi við … ja, húsbrot sem 5 menn frömdu í fylleríi í vinnuferð,“ segir Ásta Lóa sem er reyndar aðallega að rukka Björn um svör við ýmsum athugasemdum sem hún hefur sent Birni í gegnum tíðina. Fram hefur komið að þetta voru fimm þingmenn, þau Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknarflokksins, Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður sama flokks, Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Jens Garðar Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í sund í fylgd með heimamönnum Fram kom í frétt RÚV að sundferðin hefði verið í kjölfar kynningar Six Rivers, fyrirtæki auðmannsins Jims Ratcliffe, á hótelinu Fossgerði sem fulltrúar úr sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps sóttu líka. Hótel Fossgerði er í göngufæri við sundlaugina. Samkvæmt upplýsingum Vísis var vel veitt á kynningunni, bæði í mat og drykk, og setið fram eftir við umræður. Það hafi svo verið undir miðnætti sem þingmenn í fylgd heimamanns skelltu sér í sund. Selárlaug í Vopnafirði. Ef um væri að ræða glæp, sem Ingibjörg Isaksen hafnar alfarið, þá væri þetta vettvangurinn.vísir/Kolbeinn Tumi Ingibjörg segir í samtali við Vísi þetta einfaldlega hafa verið þannig að þau hafi farið, í fylgd með heimamönnum, í sund. Ekkert „skinny dipping“ í gangi „Já, utan opnunartíma. En þetta var utan vinnutíma og enginn stórglæpur. Búið mál. Það er verið að gera úlfalda úr mýflugu, við ættum frekar að einbeita okkur að verðbólgunni og því að kjarasamningar haldi. Þetta er engin frétt,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg gefur ekkert út á ummæli Ástu Lóu, hún hafi ekki verið þarna og Vísir verði bara að spyrja hana út í ummælin. Spurð hvort þau hafi verið „skinny dipping“ eða hafi farið kviknakin í laugina segir hún ekkert slíkt hafa verið uppi. „Ég er fyrrum sundkona og það var ekkert slíkt í gangi.“ „Mér finnst þetta engin frétt“ Jens Garðar er á svipuðum slóðum og Ingibjörg: „Mér finnst þetta engin frétt og þetta var ekki á opinberum vinnutíma.“ Jens segist vilja hlífa heimamönnum sem séu ekki vanir að svara fyrir svona nokkuð líkt og þingmenn sem séu brynjaðir fyrir svona nokkru og hann telur ekki ástæðu til að tjá sig frekar um málið. Jens Garðar Helgason telur hér ekki um svo mikið sem frétt að ræða.vísir/vilhelm Hann hlær þegar hann er spurður um það hvort hópurinn hafi farið í „skinny dipping“. Það hafi ekki verið málið. Og hann gefur heldur ekkert út á orð Ásthildar Lóu; fái menn sér í glas utan vinnutíma þá sé það tilfallandi og fátt eitt athugavert við það. Eftir því sem Vísir kemst næst kippa Austfirðingar sér ekki upp við það þó að menn skjótist í sund, á öllum tímum sólarhringsins ef því er að skipta. Þingmenn voru þarna um ellefuleytið, voru í 45 mínútur og svo var farið heim. Þorgrímur vildi í samtali við RÚV ekki tjá sig um það sem gerðist utan vinnutíma. Samkvæmt heimildum Vísis voru einhverjir þingmannanna sem mættu aðeins síðar á fyrsta viðburð skipulagðrar dagskrár daginn eftir.
Alþingi Kjördæmaskipan Vopnafjörður Sund Norðausturkjördæmi Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira