Fótbolti

Glódís og Þor­steinn sátu fyrir svörum

Aron Guðmundsson skrifar
Glódís og Þorsteinn svöruðu spurningum blaðamanna  í dag.
Glódís og Þorsteinn svöruðu spurningum blaðamanna  í dag.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Króatíu í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 annað kvöld. Landsliðsþjálfarinn og fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag. 

Blaðamannafundurinn var í hádeginu og þar voru Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði. 

Íslenska landsliðið er í kjörstöðu til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi um sæti á HM 2027 sem fer fram í Brasilíu á næsta ári eftir 4-0 sigur gegn Króatíu ytra í fyrri leik liðanna fyrir helgi. 

Sjá má upptöku af fundinum hér að neðan.

Klippa: Blaðamannafundur KSÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×