Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. október 2026 08:01 Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin, segir samfélagsmiðla mikla áhrifavalda í parasambandi í dag. Það sé alls ekki aðeins bundið unga fólkinu. Vísir/Anton Brink Það þarf ekki margra ára uppsafnaða gremju til að setja parasamband á hliðina. Í dag geta sakleysisleg skilaboð eða „læk“ á samfélagsmiðlum kallað fram svipað óöryggi, vanlíðan og sársauka og ef maki hefði haldið framhjá. Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt: Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin, en bætir við: En það er ekki bara unga fólkið sem er duglegt að koma. Ég fæ reglulega inn fólk á sjötugs- og áttræðisaldri þar sem trúnaðarbrestur vegna samskipta á samfélagsmiðlum hefur gjörsamlega sprengt sambandið í loft upp.“ Því já, samfélagsmiðlar eru orðnir stór áhrifavaldur í öllum aldurshópum. „Trúnaðarbrestur er trúnaðarbrestur. Hvort sem einhver er að sofa hjá öðrum eða daðra á bak við maka sinn á netinu, þá fer af stað sami sársauki og sama vinnuferlið til að endurheimta traustið.“ Að vera illt en elska Íris hefur áður verið okkur innan handar í pararáðgjöf. En sjaldan er góð vísa of oft kveðin og í dag ætlum við því að þiggja frá Írisi nokkur bjargráð til að hjálpa okkur að rækta ástina og parsambandið. Því áskoranir geta dúkkað upp hjá pörum, óháð aldri. „Yngri kynslóðir eru kannski fljótari að leita sér hjálpar, en á sama tíma eru flækjurnar ólíkar eftir æviskeiðum. Pör án barna takast á við lífsskipulag og afbrýðisemi; svo koma áföll eins og ófrjósemi eða álag vegna lítilla barna; síðar áhyggjur af unglingum, tóm hreiður og að lokum nýir skór þegar barnabörnin bætast við. Mennskan í okkur er bara ótrúlega snjöll við að búa til flækjur.“ Íris segir það að samstilla tvo ólíka heila sem koma úr ólíku umhverfi líka heilmikla áskorun út af fyrir sig. Því miður búi margir við vanlíðan dags daglega án þess að átta sig alveg á hvaðan hún kemur. Fólki er stundum hreinlega illt í sambandinu sínu, ef maður getur orðað það þannig. Og það kemur í tímabilum. Þetta er svolítið eins og sést í þáttunum Viltu finna milljón? Þegar þriðji aðili kemur að borðinu í einhverri umræðu segja pörin oft: „Vá, við höfum aldrei getað talað um þetta áður!““ Það hefur bara vantað vettvanginn til að samtalið gangi upp og þar liggur galdurinn: að greina gömul slæm mynstur og hjálpa fólki að finna nýjar leiðir til að ræða saman,“ segir Íris og bendir þar á skemmtilega samlíkingu. Samkvæmt rannsóknum er eitt af hverjum fjórum pörum að glíma við verulegan vanda á hverjum tímapunkti. Þetta þýðir í raun að flestir munu á einhverjum tímapunkti lenda í blindgötu. Spurningin er þá ekkert endilega eingöngu sú hvort sambandið lifi af ólgusjó, heldur hvaða verkfæri fólk hefur til að sigla í gegnum hann. Því í langtímasambandi munu koma upp erfiðleikar, því þannig er lífið. „Við þurfum að hætta að líta á ágreining sem merki um dauðadæmt samband,“ útskýrir Íris og bendir á að ágreiningur sé eðlilegur í langtímasambandi og mikilvægt sé að hafa fókusinn frekar á því að auka færni okkar til að takast á við hann. Það mun seint verða þannig að tvær manneskjur verði alltaf sammála um allt. Það spilar margt inn í hvað triggerar okkur, hvernig var tekist á í upprunafjölskyldum okkar, álag og hvernig taugakerfi hvers og eins er. Mikilvægasta bjargráð hvers og eins er að kunna að róa sig niður þegar við finnum að eitthvað triggerar okkur.“ Gagnrýnisgusan Íris segir að þar megi gjarnan greina ákveðin mynstur sem bandaríski sálfræðingurinn John Gottman hefur rannsakað ítarlega. „Oftast hefur konan meiri tilhneigingu til að taka upp mál sem hvíla á henni og vill ræða þau fram og til baka. Karlmaðurinn getur hins vegar upplifað þessar aðstæður sem beina ógn eða skammir. Í stað þess að hlusta frýs hann kannski eins og dádýr á hraðbraut, fer í vörn eða lokar alveg á samskiptin.“ Íris segir gagnrýni oftast kalla á gagnrýni á móti. Þess vegna sé mikilvægt að hugsa málin aðeins í ró og næði, áður en fólk hellir sér kannski yfir makann og endar í samtali sem það ætlaði sér ekki í. Íris gefur gott ráð þessu tengt.Vísir/Anton Brink Að sögn Írisar þurfa báðir aðilar að læra að skipta um gír og gefur okkur tvær góðar reglur til að styðjast við þegar einhver ágreiningur eða gremja er í gangi. #1. Tökum stuttan fund með okkur sjálfum. Ef mikil óánægja er til staðar hættir fólki til að „gusa“ öllu yfir makann í einu. Gagnrýni kallar alltaf á gagnrýni eða vörn á móti. Áður en mál er tekið upp er nauðsynlegt að sortera hvað maður vill í raun segja og setja orð á eigin tilfinningar í stað þess að ráðast á hinn.“ Gott að taka fund með sjálfum sér áður en maður tekur fund með maka og spyrja sig: Hvað gerðist sem truflaði mig? Hvað fann ég — hvaða tilfinningar vöknuðu hjá mér? Hvers þarfnast ég? #2. Að róa taugakerfið. Hinn aðilinn þarf að gera sér grein fyrir lífeðlisfræðilegu viðbrögðunum. „Það er engin lífshætta í gangi. Það að snúa líkamanum að makanum, anda djúpt niður í maga og horfa í augun á honum er eitt það mikilvægasta sem hægt er að þjálfa. Að sýna skilning er ekki það sama og að samþykkja allt sem kemur fram, heldur einfaldlega að sýna að manni sé ekki sama.“ Æskuheimilið Annar mikilvægur þáttur sem Íris nefnir er hvernig mynstur flytjast á milli kynslóða. Börn læra ekki aðeins af því sem sagt er, heldur skynja þau andrúmsloftið heima. „Það sest í taugakerfið á okkur ef við ölumst upp við krefjandi samskipti eða þrúgandi þögn og rifrildi. Þegar fólk lendir svo í átökum í sínu eigin sambandi koma þessi gömlu viðbrögð ósjálfrátt upp. Maður heyrir fólk segja með skelfingu: „Ég er orðin alveg eins og mamma eða pabbi“.“ Íris segir mikilvægast í þessu að átta sig á eigin viðbrögðum og taka ábyrgð á þeim. Ekki að kenna fortíðinni eða makanum um allt sem úrskeiðis fer. Íris segir okkur öll taka sitthvað af æskuheimilinu eða þeim aðstæðum sem við ólumst upp við. Miklu skipti þó að taka ábyrgð á sjálfum sér en kenna ekki öðrum um. Þá sé mikilvægt að taka smá stöðu á okkur áður en við göngum inn á seinni vaktina; mætum heim, þreytt eftir vinnu.Vísir/Anton Brink Tómi tankurinn Íris heldur áfram með góðu ráðin en eitt af því sem oft veldur spennu eða togstreitu í samböndum er að þegar fólk kemur heim eftir langan vinnudag er tankurinn oft tómur og fólk ekki endilega búið að stilla sig inn á þessa „seinni vakt“ sem þó hefst um leið og við komum heim. Íris gefur okkur nokkur góð ráð til að styðjast við í daglegu lífi: Vertu þinn eigin veðurfræðingur. „Láttu vita hvernig veðrið er innra með þér þegar þú kemur heim. Ef þú ert úrvinda og með lágan þröskuld, segðu það strax: ‚Ég er alveg búin á því núna, ég þarf 15 mínútur til að jafna mig.“ Það kennir fjölskyldunni umburðarlyndi.“ Kveiktu á hvíldarkerfinu yfir daginn. „Streitukerfið okkar er í stanslausri yfirvinnu en hvíldarkerfið þarf að iðka markvisst. Farðu afsíðis, lokaðu augunum, taktu djúpa andardrætti niður í maga eða hlustaðu á stutta hugleiðslu,“ segir Íris og bendir til dæmis á appið Sterk saman. Við þurfum að muna að hlaða batteríið okkar reglulega yfir daginn alveg eins og símana okkar. 20 sekúndna þakklæti. „Að stoppa í 20 sekúndur nokkrum sinnum á dag og minna sig á það sem er gott – gagnvart makanum, heilsunni eða litlu hlutunum – hjálpar heilanum að sjá heildarmyndina og minnkar líkurnar á að smámunir verði að stórátökum.“ Íris segir það jafn sjálfsagt og hvað annað að rækta parsambandið með því að sækja pararáðgjöf. Það sé oft fyrirbyggjandi leið sem unga fólkið sækir sér í meira mæli en það eldra, viðhorfið sé þó að breytast.Vísir/Anton Brink Eðlilegt að leita aðstoðar Íris bindur miklar vonir við að viðhorf samfélagsins til pararáðgjafar sé að breytast. „Í vinnunni finnst okkur sjálfsagt að sækja ráðgjöf, halda fundi og fá sérfræðinga inn til að leysa vanda. Eins leitum við til fjármálaráðgjafa eða sálfræðings. Af hverju ætti parasambandið, sem er einn mikilvægasti grunnurinn í lífi okkar og barnanna okkar, að vera undanskilið?“ spyr Íris. Orkan sem fer í að líða illa er líka svo svakalega þreytandi. „Að vera í stöðugu þrasi og ganga með óleystan vanda veldur gríðarlegri vanlíðan og álagi sem hefur bein áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Það er svo mikil orka sem fer í að draga svona þyngsli með sér inn í hvern einasta dag. Að leita sér hjálpar á ekki að vera neyðarúrræði rétt áður en gengið er að lögfræðingi, heldur sjálfsögð fyrirbyggjandi ræktun á sambandinu.“ Geðheilbrigði Fjölskyldumál Tengdar fréttir „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Hann er bæjarstjóri í Hafnarfirði og hún er kennari í Álftanesskóla. Saman eru þau hjónin Valdimar Víðisson og Sigurborg Geirdal, sem nýverið stofnuðu Instagramsíðuna Nýtt í hverjum mánuði á Instagram. 28. desember 2025 08:02 Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ „Það fer nú eiginlega eftir því hvernig við skilgreinum rangur maki. “ svarar Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur í upphafi samtals um val á réttum eða röngum maka. 22. desember 2024 08:02 Stórt hlutverk og gefandi að vera stjúpforeldri þótt réttindin séu engin Það eru eflaust til ófá samfélög jafn vön því og á Íslandi að fjölskyldur séu samsettur hópur með einhverjum hætti og að börn séu alin upp af stjúpforeldri. 19. janúar 2026 07:00 Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár „Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 15. mars 2026 08:02 Í sambúð með ADHD: „Upplifði oft eins og hann nennti ekki að hlusta á mig“ Síðustu árin hefur umræða um ADHD hjá fullorðnum aukist til muna. Enda var ADHD lengi vel fyrst og fremst tengt við greiningu barna. Jafnvel tengt við þau óþekkustu í bekknum. 21. maí 2023 08:01 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fleiri fréttir Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
Samkvæmt rannsóknum er eitt af hverjum fjórum pörum að glíma við verulegan vanda á hverjum tímapunkti. Þetta þýðir í raun að flestir munu á einhverjum tímapunkti lenda í blindgötu.
Geðheilbrigði Fjölskyldumál Tengdar fréttir „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Hann er bæjarstjóri í Hafnarfirði og hún er kennari í Álftanesskóla. Saman eru þau hjónin Valdimar Víðisson og Sigurborg Geirdal, sem nýverið stofnuðu Instagramsíðuna Nýtt í hverjum mánuði á Instagram. 28. desember 2025 08:02 Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ „Það fer nú eiginlega eftir því hvernig við skilgreinum rangur maki. “ svarar Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur í upphafi samtals um val á réttum eða röngum maka. 22. desember 2024 08:02 Stórt hlutverk og gefandi að vera stjúpforeldri þótt réttindin séu engin Það eru eflaust til ófá samfélög jafn vön því og á Íslandi að fjölskyldur séu samsettur hópur með einhverjum hætti og að börn séu alin upp af stjúpforeldri. 19. janúar 2026 07:00 Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár „Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 15. mars 2026 08:02 Í sambúð með ADHD: „Upplifði oft eins og hann nennti ekki að hlusta á mig“ Síðustu árin hefur umræða um ADHD hjá fullorðnum aukist til muna. Enda var ADHD lengi vel fyrst og fremst tengt við greiningu barna. Jafnvel tengt við þau óþekkustu í bekknum. 21. maí 2023 08:01 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fleiri fréttir Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
„Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Hann er bæjarstjóri í Hafnarfirði og hún er kennari í Álftanesskóla. Saman eru þau hjónin Valdimar Víðisson og Sigurborg Geirdal, sem nýverið stofnuðu Instagramsíðuna Nýtt í hverjum mánuði á Instagram. 28. desember 2025 08:02
Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ „Það fer nú eiginlega eftir því hvernig við skilgreinum rangur maki. “ svarar Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur í upphafi samtals um val á réttum eða röngum maka. 22. desember 2024 08:02
Stórt hlutverk og gefandi að vera stjúpforeldri þótt réttindin séu engin Það eru eflaust til ófá samfélög jafn vön því og á Íslandi að fjölskyldur séu samsettur hópur með einhverjum hætti og að börn séu alin upp af stjúpforeldri. 19. janúar 2026 07:00
Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár „Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 15. mars 2026 08:02
Í sambúð með ADHD: „Upplifði oft eins og hann nennti ekki að hlusta á mig“ Síðustu árin hefur umræða um ADHD hjá fullorðnum aukist til muna. Enda var ADHD lengi vel fyrst og fremst tengt við greiningu barna. Jafnvel tengt við þau óþekkustu í bekknum. 21. maí 2023 08:01