Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Jakob Bjarnar skrifar 9. október 2026 14:44 Hlaðvarparar vilja nú láta sverfa til stáls. Hafi Elva Ýr talið sig vera að lægja öldur með grein sinni í vikunni, þar sem hún talaði um að bakara og smiði, þá varð henni ekki að ósk sinni. vísir Landsliðið í hlaðvarpi hefur skrifað grein sem er öðrum þræði svar til Elvu Ýrar Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar sem senn lætur af störfum. Öll segjast þau hafa fengið bréf, sum hver mörg bréf, frá nefndinni þar sem hún hvetur þau til að skrá sig sem fjölmiðla hjá nefndinni. Að öðrum kosti fái þau sektir.
Þetta eru þau Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir hjá Komið gott, Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson sem eru með Chess after dark, Þórarinn Hjartarson sem rekur Eina Pælingu, Gísli Freyr Valdórsson sem er með Þjóðmál, Gurrý Jónsdóttir, Lína Birgitta og Sólrún Diego sem eru með spjallið auk þess sem undir bréfið ritar Hjörvar Hafliðason sem er með Dr. Football. Hjörvar, sem býr svo vel að eiginkona hans er framkvæmdastjóri SFS, lögmaðurinn Heiðrún Lind Marteinsdóttir, hefur þegar skráð sitt hlaðvarp hjá nefndinni en samkvæmt þessu er hann ekki sáttur. Þessir hlaðvarparar hafa staðið í stríði við fjölmiðlanefnd lengi vel og nú virðist sem þeir vilji láta sverfa til stáls. Um bakara og smiði Tilefni bréfsins er, sem fyrr segir, grein Elvu sem hún birti á Vísi í vikunni. Þar segir hún meðal annars að fjölmiðlanefnd, líkt og aðrar stjórnsýslustofnanir, þurfi að fara eftir þeim lögum sem gilda hverju sinni. „Henni er ekki heimilt að hætta að hafa eftirlit með tilteknum ákvæðum laga nema lögunum sé breytt á Alþingi. Annað rímar illa við stjórnarskrá og grundvallarhugmyndir um réttarríkið. Alþingi setur lög, en framkvæmdavaldið fylgir þeim eftir.“ Í grein sinni, sem heitir „Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd“, segir hún að það vilji loða við að bakarar séu hengdir fyrir smiði. Hlaðvarpararnir leggja út af þessu í grein sem þau kalla Glassúrfólkið: Í grein sinni rekja þau að fjölmiðlanefnd hafi krafist þess að stjórnendur vinsælla hlaðvarpa skrái þætti sína sem fjölmiðla, ellegar megi þau búast við háum fjársektum. Glassúrfólkið sem skapar ekkert „Líkingin um bakarann og smiðinn er ágæt, en í hana vantar eina persónu. Smiðurinn er Alþingi, sem smíðar lögin. Bakararnir eru fólkið sem býr eitthvað til úr engu, oftast á kvöldin og um helgar, á eigin kostnað og eigin ábyrgð. Og svo er það glassúrfólkið. Glassúrfólkið hvorki bakar né smíðar. Það kemur að kökunni þegar aðrir hafa bakað hana og skreytir hana reglum, eyðublöðum og sektarhótunum. Og það fær greitt um hver mánaðamót, hvernig sem kakan bragðast.“ Og það er ljóst hver er glassúrsmiðurinn í þessari frásögn, nefnilega Fjölmiðlanefnd. Þau að meðan Fjölmiðlanefnd fari um sjálfala sé ekkert Norðurlanda sem fari sömu leið. Og það sem meira er, Logi Már Einarsson, ráðherra málaflokksins, sé ósammála stefnu nefndarinnar. Engu að síður sæki hún, þrátt fyrir veikan lagagrunn, hart að hlaðvörpurum. „Alþingi setti lögin, það er rétt. En það var nefndin sem samdi leiðbeiningar um skráningu hlaðvarpa, leiðbeiningar sem hún segir sjálf að séu „hvorki almenn lög né lögskýringargagn“. Og það var nefndin sem ákvað hvaða hlaðvörpum skyldi skrifað.“
Fjölmiðlar Hlaðvörp Samfélagsmiðlar Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að hafa verði hagsmuni almennings af öflugum fjölmiðlum að leiðarljósi en ekki sérhagsmuni við endurskoðun á fjölmiðlalögum. Kröfur um skráningu fjölmiðla, sem hlaðvarpar vilja ekki undirgangast, hafi verið gerðar til að tryggja að upplýsingar um eignarhald yrðu alltaf aðgengilegar. 8. október 2026 13:50 Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim. 7. október 2026 14:10 Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Vinna er hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við að breyta lögum um fjölmiðla. Ein helsta fyrirhugaða breytingin er að hlaðvörp verða ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Þannig virðast hlaðvarparar hafa unnið stríðið við Fjölmiðlanefnd, sem geisað hefur um nokkur misseri. 12. júní 2026 10:07 Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira
Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að hafa verði hagsmuni almennings af öflugum fjölmiðlum að leiðarljósi en ekki sérhagsmuni við endurskoðun á fjölmiðlalögum. Kröfur um skráningu fjölmiðla, sem hlaðvarpar vilja ekki undirgangast, hafi verið gerðar til að tryggja að upplýsingar um eignarhald yrðu alltaf aðgengilegar. 8. október 2026 13:50
Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim. 7. október 2026 14:10
Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Vinna er hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við að breyta lögum um fjölmiðla. Ein helsta fyrirhugaða breytingin er að hlaðvörp verða ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Þannig virðast hlaðvarparar hafa unnið stríðið við Fjölmiðlanefnd, sem geisað hefur um nokkur misseri. 12. júní 2026 10:07