Skoðun

Reykja­vík beygir af

Brynhildur Bolladóttir skrifar

Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. Þegar að sömu kjörnu fulltrúar biðja hins vegar sérfræðinga um að gera skýrslur til þess að fræða sig um ákveðin mál, væntanlega í þeirri von um að hjálpa sér að taka um þau afstöðu, þá er skynsamlegt að taka mark á þeim.

Í þessari viku hefur umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar til umfjöllunar að endurgera hægri beygju framhjáhlaup frá Bæjarhálsi til norðurs, inn á Höfðabakka. Í raun ríkir svo mikil sátt um þessi áform meirihlutans að Miðflokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við þau. Eini hængurinn er sá að fagleg rök mæla gegn þeim.

“The overall operational benefit of reinstating the slip lane is therefore limited.”

Samkvæmt úttekt verkfræðistofunnar COWI hafa umferðartafir aukist lítillega á gatnamótunum en samkvæmt skýrslunni er það ekki fjarlægingu framhjáhlaupsins að kenna. Í úttektinni er þvert á móti mælt gegn því að taka það upp aftur. Framhjáhlaup er talið hafa neikvæð áhrif á öryggi allra vegfarenda, þar með talið ökumanna enda eru aftanákeyrslur mjög tíðar í slíkum framhjáhlaupum.

Verkfræðistofan VSB gerði úttekt á slysahættu í hægri beygju framhjáhlaupi árið 2023. Þar segir m.a. í niðurstöðukafla:

„Athyglisvert er að hægri beygju framhjáhlaup eru algeng hérlendis þrátt fyrir að fáar rannsóknir séu til sem styðja við notkun hennar. Öryggi og skilvirkni þessara lausna er að mestu óþekkt. Engin gögn fundust um slysagreiningar, öryggismat né umferðamat á þessum útfærslum.

Í þessu rannsóknarverkefni voru skoðuð þau tíu gatnamót á höfuðborgarsvæðinu sem voru með flest slys í hægri beygju framhjáhlaupum. „Algengasta tegund slysa eru aftanákeyrslur, þar sem ekið er aftan á bíl sem er kyrrstæður eða ekið er aftan á bíl sem bremsar.“ (bls. 28)

Samtök um bíllausan lífsstíl hafa mótmælt þessum áformum við fulltrúa umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og koma hér fram eindregnum mótmælum gegn því að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt.

Það er í lagi að vera ósammála en förum eftir niðurstöðum sérfræðinga og förum ekki í breytingar sem eru hættulegar fyrir okkur öll - gangandi og hjólandi en ekki síst akandi.

Fyrir hönd Samtaka um bíllausan lífsstíl,

Brynhildur Bolladóttir, formaður.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×