Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson og Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifa 5. október 2026 07:16 Kæru borgarfulltrúar Ég heiti Haraldur og er 28 ára drengur. Ég bý í fallegri íbúð þar sem ég nýt þess að dunda við að perla og búa til skartgripi, oft með gárann minn á öxlinni. Ég er mjög félagslyndur og finnst gaman að spjalla. Ég á ótrúlega mörg frændsystkini og eignast oft ný. Fólk sem verður á vegi mínum og hefur aðgang að Íslendingabók, reynist oft vera skyldmenni mín. Það þykir mér mjög vænt um. Ég á frekar litla fjölskyldu og við mamma vorum alltaf tvö ein þar til ég flutti að heiman árið 2022. Aumingja mamma var voðalega stressuð þegar ég flutti og þurfti að fara á hælið í Hveragerði. Ég er býsna snjall og get bjargað mér með ýmislegt þegar á reynir. Ég get hringt á lækni og fengið hann heim til mín þegar ég er slappur og ég gat hringt á lögregluna þegar mamma stal kókinu mínu. Ég gat meira að segja pantað Covid sprautu heim til mín en mamma stoppaði það. Ég sagði Covid konunni samt allt satt, ég hef ekki tök á að koma sjálfur á staðinn, keyri ekki og get ekki tekið strætó. Starfsfólkið í íbúðakjarnanum þar sem ég bý, hjálpar mér með allt sem ég þarf hjálp við og er líka fjölskylda mín. Þau gera allt sem mamma gerði áður og meira en það. Þau finna uppá allskonar til að gera á kvöldin. Þegar ég bjó hjá mömmu var oftast, það sem mamma kallaði "baðstofu-fíling" á kvöldin sem var alveg ágætt svona stundum. Starfsfólkið mitt lærir að þekkja mig en það getur verið flókið af því ég er, það sem mamma segir, "mikið ólíkindatól". Það sem er mikilvægast fyrir mömmu, sem er bráðum að verða gömul, er að vita af mér í góðum höndum hjá fólki sem hugsar vel um mig og gætir mín. Mamma er svakalega þakklát fyrir gott starfsfólk og er alltaf að biðja Guð að blessa það. Ég verð alltaf háður öðrum um svo margt. þótt ég sé fullorðin að árum og sjálfráða samkvæmt lögum, get ég ekki axlað ábyrgð á sjálfum mér líkt og ófatlað fólk gerir. Þeir sem hugsa um mig axla þá ábyrgð. Það er mikil ábyrgð, segir mamma. Starfsfólkið skilur að þótt ég sé góður í að spjalla og hringja í lögguna, er ég oft annars hugar, rata ekki og les hvorki né skrifa. Svo hef ég alveg glatað tímaskyn. Ég er samt ekki tæknilúði eins og mamma. Frá því íbúðakjarninn minn opnaði hefur mikið gengið á og stundum algjört rugl í gangi. Það hafa verið ótal forstöðukonur og karlar og starfsfólk í hundraðatali sem hefur byrjað og hætt. Þá gripu stjórnendur hjá borginni í taumana og smátt og smátt fór allt að verða gott. Svo gott að íbúðakjarninn okkar fékk verðlaun fyrir að vera"Hástökkvari ársins" árið 2024. Í kjarnanum mínum vinna margir. Sumir eru í fullu starfi, sumir í hlutastarfi, tímavinnu eða í afleysingum. Stundum hættir fólk og nýtt fólk kemur í staðinn. Reynsluboltar í kjarnanum þjálfa nýtt starfsfólk en stjórnendur, svokallaðir millistjórnendur, hafa umsjón með þjálfuninni og þeir halda uppi mikilvægu viðhorfi í garð íbúa. Það eru millistjórnendurnir sem leggja línurnar og skapa hefðir og siði sem lifa áfram með nýjum stjórnendum. Eitt það mikilvægasta sem þeir gera, er að kenna starfsfólki að axla þá óendanlega mikilvægu ábyrgð sem felst í því að þjóna fólki með fötlun. Starfsfólk kemur og fer en góðir millistjórnendur tryggja að í íbúðakjarnanum ríki nauðsynlegar reglur, verklag og viðhorf svo íbúar geti lifað innihaldsríku lífi við öryggi og góða umönnun um aldur og ævi. Kæru borgarfulltrúar.Ekki taka burtu þetta mikilvæga fólk í lífi mínu. Ég þarf svo mikið að finna að ég geti treyst því að það sé og verði hugsað vel um mig. Annars verðum við mamma bæði svo stressuð. Okkur finnst að það ætti frekar að hækka laun þessa mikilvæga fólks frekar en hagræða því. Við erum sultuslök þessa dagana og það er starfsfólkinu og millistjórnendunum í íbúðakjarnanum mínum að þakka. Guð blessi þau öll. Við mamma skrifuðum þetta saman og er birt með mínu leyfi. Haraldur Þorgeirsson og Ásta Kristrún Ólafsdóttir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun