Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar 8. október 2026 09:32 Góð stærðfræðikennsla byggir á mörgu. Börn þurfa að skilja hugtök, sjá samhengi, ræða lausnir og læra að beita stærðfræðilegri hugsun. En þau þurfa líka að æfa sig. Reikna, gera mistök, fá endurgjöf og reyna aftur þar til færnin sem áður krafðist mikillar fyrirhafnar verður auðveld. Þar liggur ein af stóru áskorunum stærðfræðikennslunnar. Börn læra á mismunandi hraða. Eitt barn þarf tíu dæmi til að ná tökum á ákveðinni færni, annað þrjátíu og það þriðja enn meiri æfingu. Á sama tíma þarf kennarinn að halda utan um heilan bekk, greina hverjir hafa náð tökum á efninu, hverjir þurfa meiri þjálfun og hverjir eru tilbúnir að halda áfram. Þetta er einmitt dæmi um verkefni þar sem tæknin getur verið einstaklega öflugt verkfæri. Vel hannað stafrænt námsefni getur gefið nemanda tafarlausa endurgjöf, aðlagað verkefni að stöðu hans og tryggt að hann fái þá æfingu sem hann þarf. Á sama tíma getur það gefið kennaranum upplýsingar um stöðu nemenda og skapað meira svigrúm fyrir það sem kennarinn gerir best: að útskýra, ræða, greina misskilning og hjálpa börnum að öðlast raunverulegan skilning. Hvað segja PISA-gögnin? Þegar rætt er um stafræna tækni í námi er yfirleitt stokkið sitt í hvora öfgana; tækni eða ekki tækni. Því er gagnlegt að skoða hvað gögnin segja. Í PISA skoðaði OECD meðal annars sambandið á milli þess tíma sem 15 ára nemendur sögðust nota stafræn tæki í skólanum til náms og árangurs þeirra í stærðfræði. Meðaltal OECD-ríkjanna var eftirfarandi: Mynstrið er athyglisvert. Nemendur sem nýttu stafræn tæki til náms í hófi stóðu að jafnaði betur í stærðfræði en nemendur sem notuðu þau ekkert. Við mjög mikla notkun dalaði árangurinn hins vegar. Þetta eru fylgnigögn. Þau segja okkur því ekki að ákveðinn fjöldi klukkustunda við stafrænt nám valdi ákveðnum námsárangri. OECD hefur hins vegar bent á að niðurstöðurnar samræmist því að hófleg notkun geti tengst betri árangri en ofnotkun og röng notkun lakari árangri. Það er mikilvægur greinarmunur. Tíminn segir ekki hvað gerðist Tvö börn geta bæði hafa varið þrjátíu mínútum fyrir framan skjá en fengið gjörólíka reynslu. Annað getur hafa hoppað á milli myndbanda og skilaboða. Hitt getur hafa leyst stærðfræðiverkefni sem laga sig að getu þess, fengið endurgjöf eftir hvert svar og æft nákvæmlega þá færni sem það þurfti að styrkja. Mælieiningin „30 mínútna skjátími“ greinir ekki þar á milli. Notum styrkleika hvers verkfæris Bók hefur sína styrkleika. Blýantur og blað hafa sína. Samtal við kennara hefur sína. Kubbar og önnur áþreifanleg hjálpargögn geta gert óhlutbundna stærðfræði sýnilega og skiljanlega. Stafræn tækni hefur líka eigin styrkleika. Hún getur farið yfir hundruð svara án tafar. Hún getur brugðist strax við því sem nemandinn gerir. Hún getur boðið tveimur börnum í sama bekk upp á ólíka þjálfun á sama tíma. Hún getur safnað upplýsingum sem gera kennaranum kleift að sjá mynstur sem erfitt væri að greina með öðrum hætti. Góð stærðfræðikennsla snýst um að nýta þessa ólíku styrkleika saman. Þess vegna er áhugaverðasta spurningin ekki hversu margar mínútur af kennsludeginum fara fram á skjá. Spurningin er hvað við náðum að gera á þessum mínútum. Markmiðið er betra stærðfræðinám. Verkfærin eigum við að velja út frá því. Höfundur er stjórnarmaður Menntatæknisamtaka Norðurlandanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar