Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Lovísa Arnardóttir skrifar 1. október 2026 06:36 Unnið hefur verið að því að sníða kerfið að breyttum reglum hjá Skattinum í allt sumar. Vísir/Vilhelm Skatturinn stefnir að því að opna fyrir umsóknir fljótlega um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Samkvæmt svörum frá embættinu er enn unnið að uppfærslum á kerfum sem eiga að halda utan um umsóknir vegna ráðstöfunarinnar.
Úrræðið átti að taka gildi í dag en lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í júní. Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að fólk muni geta ráðstafað sinni séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt. Leiðbeiningar hafa verið birtar á island.is um nýtingu úrræðisins. Samkvæmt svörum frá skattinum er stefnt að því að opna fyrir umsóknir fljótlega og að það verði auglýst sérstaklega á næstu dögum. Samkvæmt skriflegu svari Skattsins er í grunninn notast við sama kerfi og áður við móttöku umsókna og afgreiðslu þeirra. „Þó hefur þurft að leggja mikla vinnu í uppfærslur á því kerfi vegna þeirra breytinga sem lög nr. 71/2026 kveða á um,“ segir í svarinu. Sjá hversu mikið er eftir inni í umsókn Þá segir að verkefnið sé nokkuð umfangsmikið því ljóst sé að stór hluti landsmanna hafi nýtt sér það að ráðstafa séreignasparnaði inn á lán og gera megi ráð fyrir því að margir muni vilja halda ráðstöfun áfram eða hefja ráðstöfun í fyrsta skipti. Í nýju lögunum er heimild til að ráðstafa séreign samanlagt í 120 mánuði en var áður í samfellda 120 mánuði. Í frétt um málið í júlí kom fram að stefnt yrði að því að unnt verði að sjá hversu langan tíma af 120 mánuðunum viðkomandi hefur þegar nýtt og jafnframt hversu langur tími er eftir af heimildinni. Samkvæmt svörum Skattsins um málið munu geta umsækjendur séð í umsókn sinni hversu marga mánuði þeir eiga eftir og eiga ekki að þurfa að reikna það sjálfir. „Rétt er að benda á að umsóknir gilda um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst. Frá þessu er ein undantekning þannig að umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda frá janúar 2026,“ segir að lokum. Tímabundin en nú varanleg Ráðstöfunin var fyrst kynnt árið 2014 undir formerkjum leiðréttingar og var hægt að sækja um hana á heimasíðunni leiðretting.is. Í umfjöllun um málið í sumar kom fram í svörum Skattsins að þróun kerfisins væri umfangsmikil. Eldra „leiðréttingakerfi“ um ráðstöfun á séreignarsparnaði hafi átti að gilda í tvö og hálft ár en hafi svo ítrekað verið framlengt í stuttan tíma í einu. Af þessum ástæðum hafi þurft að smíða kerfið á stuttum tíma og vegna þess að um var að ræða tímabundna ráðstöfun hafi ekki verið ráðist í umfangsmiklar umbætur á því þar sem óljóst var hversu lengi heimildirnar yrðu í gildi. Nú hefur það verið gert.
Lánamál Fjármál heimilisins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Alþingi Lífeyrissjóðir Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Sjá meira